Fréttatíminn - 18.12.2015, Blaðsíða 92
2015
Kæst og söltuð skata
Sterk kæst tindabikkja
Reykt tindabikkja
Saltfiskur
Plokkfiskur
Steiktar fiskbollur
Grjónagrautur með slátri
Rúgbrauð, smjör og síldarsalöt
Flatkökur með hangikjöti
Skonsur með rúllupylsu
Gulrætur, rófur, kartöflur,
hnoðmör, hamsatólg og brætt smjör.
Eftirréttur:
Jólamöndlugrautur
og íslenskar smákökur.
Möndlugjöf fyrir heppna matargesti
Aðeins 4150.- pr mann
1/2 gjald fyrir 6-12 ára
Frítt fyrir 5 ára og yngri
Pantið tímanlega
Geirsgötu 7c · 101 Reykjavík · 511 2300
www.hofnin.is
92 matur & vín Helgin 18.-20. desember 2015
Tinna Alavis heldur úti fallegu lífsstílsbloggi,
www.alavis.is þar sem hún skrifar um sín
helstu áhugamál. Tinna er búsett á Húsafelli
ásamt eiginmanni sínum og dóttur og hafa þau
komið sér vel fyrir í sveitasælunni, sem líkist
nú fallegu jólalandi. Tinna nýtur þess að baka
fyrir jólin og fékk Fréttatíminn hana til að deila
sinni útgáfu af uppáhalds sortinni, Sörum.
T inna Alavis hefur alltaf verið mikið jólabarn og finnst notalegt að njóta aðventunnar í faðmi fjölskyldunnar. „Mér finnst þessi tími
sérstaklega notalegur í faðmi fjölskyldunnar. Góði
maturinn, jólatónlistin og jólaskreytingarnar mynda
ákveðna stemningu í desember.“ Tinna nýtur þess
að undirbúa jólin á Húsafelli. „Það er minna stress
en í borginni en ég er samt mikið á ferðinni milli
Húsafells og Reykjavíkur.“ Tinna ætlar að baka fjórar
sortir fyrir jólin og hér deilir hún uppskrift af sinni
uppáhalds tegund, Sörum. „Sörukökur eru í algjöru
uppáhaldi hjá mér. Ég get borðað endalaust mikið af
þeim en ég held að galdurinn sé þessi dásamlega,
mjúka fylling.“
Smákökur uppáhaldS SorT Tinnu alaviS
Heimili
Tinnu og
fjölskyldu
hennar í
Húsafelli er
sannkölluð
jólaparadís,
en hún
nýtur þess
að skreyta
hátt og lágt
fyrir jólin.
Myndir/Tinna
Alavis
Sörukökur að hætti Tinnu Alavis:
Innihald:
260 gr. möndlur
230 gr. flórsykur
4 eggjahvítur
Krem:
120 gr. sykur
1 dl vatn
4 eggjarauður
1 ½ msk. kakó
260 gr. mjúkt, íslenskt smjör
Súkkulaði til að hjúpa
Aðferð:
Hitið ofninn í 180°C.
Setjið möndlurnar í mat-
vinnsluvél og malið þær vel.
Stífþeytið eggjahvíturnar í
topp. Til þess að vita hvort
þær séu tilbúnar getið þið
prófað að hvolfa skálinni og ef
þær hreyfast ekkert eru þær
tilbúnar. Ef þær renna til þarf
að þeyta meira.
Sigtið því næst flórsykurinn
út í stífþeyttu eggjahvíturnar
og setjið einnig möndlurnar
saman við og hrærið varlega
saman með sleif.
Notið teskeið til þess að setja
deigið á bökunarpappírinn í
þeirri stærð sem þið kjósið
(gott að hafa í huga að þær
stækka aðeins í ofninum).
Bakið í 11-12 mínútur.
Krem:
Sjóðið vatnið og sykurinn sam-
an í potti þar til blandan fer að
þykkna (u.þ.b. 7-8 mínútur).
Stífþeytið eggjarauðurnar
á meðan, þar til þær verða
kremaðar. Hellið sykurleginum
svo varlega út í þegar hann
er tilbúinn og haldið áfram að
þeyta í u.þ.b. 1 mínútu.
Næst er mjúka smjörinu og
kakóinu bætt saman við með
sleikju þar til allir kekkirnir
eru farnir. Smyrjið kreminu
á kalda botnana og kælið vel
áður en þið hjúpið kökurnar
með súkkulaði. Geymið þær
helst í frysti eða kæli.
Galdurinn felst í fyllingunni
Tinna Alavis
heldur úti
lífstílssblogg-
inu alavis.is
þar sem hún
er iðin við að
deila alls konar
girnilegum
uppskriftum
með lesendum
sínum.