Fréttatíminn - 18.12.2015, Blaðsíða 110
Í takt við tÍmann Edda konráðsdóttir
Óhrædd við að ganga í strákafötum
Edda Konráðsdóttir er 23 ára Breiðhyltingur sem starfar sem verkefnastjóri hjá Klak
Innovit. Hún lærði viðskiptafræði í Háskóla Íslands og fór mikinn í félagsstörfum á
námsárunum. Edda stundar jóga og drekkur kokteila en borðar ekki kjöt.
Staðalbúnaður
Það fer rosalega mikið eftir skapi og árstíðum
hvernig ég klæði mig. Ég enda samt oftast í stíl-
hreinum, svörtum fötum þó ég reyni að lífga upp á
þetta með einni og einni flík. Ég hef unnið í JÖR og
verið viðloðin fyrirtækið frá því búðin opnaði svo
fatastíllinn mótast svolítið af því, ég er til dæmis
alltaf í JÖR kápunni minni og chelsea boots. Annars
er ég ekki mikið að einblína á ákveðnar búðir eða
hvort þær eru ætlaðar konum eða körlum. Ég hef
til dæmis keypt svolítið af herrafötum á mig sjálfa í
Húrra Reykjavík og í GK. Ég hef gaman af því leika
mér að unisex stíl.
Hugbúnaður
Ég fer svolítið í jóga. Það er líkamsræktin mín. Svo
er ég í nokkrum klúbbum. Það er til dæmis voða
fínt að fara í gufuklúbbinn einu sinni í viku. Ég hef
verið að dúlla mér við að sauma í frítíma mínum
og svo finnst mér gaman að teikna og mála með
mömmu minni. Ég fer nú ekki mikið út að skemmta
mér en mér finnst næs fá mér kokteil á Bar Ananas.
Ég er hrifin af vel útlítandi kokteilum og þar er suð-
ræn stemning eins og maður sé í útlöndum. Ef ég
fer á djammið fer ég oftast á Prikið. Ég er með Net-
flix en ég hef ekki mikinn tíma til að horfa á þætti.
Núna er ég að horfa aftur á Arrested Development.
Það er gott að geta gripið í þá eða Seinfeld.
Vélbúnaður
Ég er með nýjan iPhone 6s plús, risastóran til að
geta verið enn óðari á samfélagsmiðlunum en áður.
Ég er mest á Snapchat og Twitter (@eddakon).
Ég er að verða of óþolinmóð fyrir Instagram og
Facebook. Ég fíla íslenska Twittersamfélagið, þar
er fullt af flottu fólki og mikil gróska. Þar hef ég
kynnst fullt af fólki, til dæmis stelpunum í matar-
klúbbnum mínum. Ég fæ flestar mínar fréttir af
Twitter. Ég er reyndar rosa mikið í símanum og er
til dæmis alveg Calendar-óð. Ég set allt í Google
Calendar. Það er nefnilega mikilvægt að hafa allt
í röð og reglu – svona upp að vissu marki.
Aukabúnaður
Ég er pescetarian, grænmetisæta sem
borðar fisk. Ég fékk meiri áhuga á elda-
mennsku eftir að ég hætti að borða kjöt
og er til dæmis dugleg að búa til mitt eigið
pestó og hummus. Mér finnst gaman að
gera allskonar tilraunir og fusion og er
mikill matgæðingur. Ég dröslast um
á hálfbiluðum Opel. Það er yfirleitt
spennandi rússíbanareið að koma í bíl-
túr með mér. Þegar ég á lausa stund
reyni ég að staldra aðeins við og
hitta fjölskylduna mína, til dæmis
ömmu. Það er mikilvægt. Maður
má ekki gleyma sér alveg í
vinnu og áhugamálum en
ég viðurkenni að ég geri
það oft. Uppáhalds-
staðurinn minn er lík-
legast bústaðurinn
í Grímsnesi en þar
var ég mikið með
fjölskyldunni þegar
ég var lítil. Þar er
gott að kúpla sig
aðeins út.
Lj
ós
m
yn
d/
H
ar
i
HIN FAGRA OG FORNA ALBANÍA
PÁSKAFERÐ
19. – 30. MARS
ALBANÍA
WWW.TRANSATLANTIC.IS SÍMI: 588 8900
Albanía hefur nú loksins opnast fyrir erlendum ferðamönnum. Enn
hefur alþjóðavæðingin ekki náð að festa þar rætur og er lítt sjáanleg.
Þar má sjá ævaforna menningu, söguna á hverju horni, gríðarfallega
náttúru og fagrar strendur og kynnast einstakri gestrisni heimamanna
þar sem gömul gildi eru í hávegum höfð.
Innifalið: Flug, hótel í London, hótel með hálfu
fæði í Albaníu, öll keyrsla í Albaníu, allar
skoðunarferðir, ísl. fararstjóri, skattar og
aðgangur þar sem við á.
VERÐ
229.900.- (per mann i 2ja manna herbergi)
Tólf bráðskemmti-
legir grínistar stíga
á svið í Tjarnarbíó
á sunnudaginn
klukkan 20. Margir
þeirra eru þaulreynd-
ir uppistandarar sem
hafa haldið eigin sýn-
ingar, komið fram í
sjónvarpi og ferðast
um heiminn til að
breiða út gleðiboð-
skapinn. Kvöldið
verður alþjóðlegt þar
sem gestir fá ekki
aðeins að hlýða á ís-
lenskt grín – heldur
einnig kanadískt og
ástralskt. Kynnir
kvöldsins verður
enginn annar en Þór-
hallur Þórhallsson,
sem hefur skemmt
landsmönnum hvort
sem er á sviði, í
útvarpi eða á sjón-
varpsskjám. Einnig
hefur hann hitað
upp fyrir erlendar
(jóla) stjörnur og
má þar helst nefna
Jon Lajoie og Pablo
Francisco. Þórhallur
var einnig Fyndnasti
Maður Íslands árið
2007.
Jólagrínið verður
um tveggja klukku-
stunda sýning og
fram koma Ari
Eldjárn, Þorsteinn
Guðmundsson,
Bylgja Babýlons, Jó-
hannes Ingi Torfa-
son, Helgi Steinar
Gunnlaugsson, Snjó-
laug Lúðvíksdóttir,
Bjarni Töframaður,
Jonathan Duffy,
Þórdís Nadía, York
Underwood og Hug-
leikur Dagsson.
Miðaverð er 3.500
krónur. Athugið að
einungis er ein sýn-
ing svo fjöldi miða er
takmarkaður. Hægt
er að kaupa miða
fyrirfram á midi.
is og á tjarnarbio.
is. Miðasala hússins
opnar klukkan 19.
Uppistand vEisla á sUnnUdagskvöld
Jólagrín í Tjarnarbíói
... gestir
fá ekki
aðeins að
hlýða á ís-
lenskt grín
– heldur
einnig
kanadískt
og ástr-
alskt.
110 dægurmál Helgin 18.-20. desember 2015