Fréttatíminn - 18.12.2015, Blaðsíða 6
Dormaverð aðeins 8.990 kr.
Sængurföt frá MistralHome
100% bómullarsatín
tveir litir. 300 tc.
Jólatilboð 20.900 kr.
O&D dúnsæng
· 90% dúnn
· 10% smáfiður
Fullt verð: 25.900 kr.
Afgreiðslutími
Mán. til fös. frá kl. 10–18
Laugardaga frá kl. 11–16
www.dorma.is
Holtagörðum
512 6800
Dalsbraut 1, Akureyri
558 1100
Aðeins 19.900 kr.
TVENNUTILBOÐ
dúnsæng + koddi
O&D dúnsæng – Stóri björn
· 50% dúnn og 50% smáfiður
Fullt verð: 19.900 kr.
+ Dúnkoddi – Stóri björn
Fullt verð: 5.900 kr.
Fullt verð samtals:
25.800 kr.
JÓLA-
TILBOÐ
verð
Frábært
og gæði
Hafðu það notalegt um jólin!
Mikið úrval af vönduðum
bómullarsængurfötum frá
Nordicform á frábæru
Dormaverði.
Dormaverð aðeins 11.990 kr.
SENDING
NÝ
turiform
Steinunn Jakobsdóttir hjá UNICEF tekur við fyrstu greiðslu frá
Sverri Björnssyni af höfundarlaunum KidWits gullkornanna.
KidWits GullKorn barnanna
Höfundarlaun gullkorna til UNICEF
„Það voru alltaf að detta skemmtileg gull-
korn úr stelpunum mínum og einn daginn
ákvað ég að byrja að skrifa þau niður,“
segir Sverrir Björnsson, grafískur hönn-
uður og upphafsmaður KidWits.net sem
afhenti höfundarlaun barna á síðunni til
UNICEF á dögunum. „Ég sagði frá þessu
hliðarverkefni mínu á vinnustaðnum og
þá kom nú í ljós að fullt af fólki átti snið-
ugar sögur úr viskubrunni barna sinna
og svo fór þetta að hlaða utan á sig þar til
ég var komin með heilan helling af gull-
kornum frá foreldrum.“
Mörgum árum eftir að Sverri fór fyrst
að safna gullkornunum saman byrjaði
hann að hugsa um að gefa efnið út. „Mér
fannst að þetta skemmtilega efni ætti að
líta dagsins ljós og vildi fá efni frá fleira
fólki, barnasnilldin er jú allsstaðar. Svo
hætti ég sem hönnunarstjóri hjá Hvíta
húsinu í fyrra og ákvað að láta þessa
gömlu hugmynd verða að veruleika,“
segir Sverrir. „Svo núna er kominn vefur,
KidWits.net, þar sem fólk getur sjálft sett
inn skemmtilegar sögur eða setningar frá
börnum, geymt þau í sínu safni og deilt
þeim út á Facebook,“ segir Sverrir en
vefurinn er líka á ensku því hugmyndin
er að KidWits verði alþjóðlegt verkefni.
„Ég ákvað að setja efnið fram í mynda-
söguformi og fyrstu gullkornin af Kid-
Wits.net eru núna í birtingu á baksíðu
Fréttatímans.“
Fyrstu höfundarlaun KidWits gullkorn-
anna runnu í liðinni viku til UNICEF því
reglan er sú að höfundarlaun barnanna
af því efni sem selst, renna beint til UNI-
CEF. „Það er eðlilegt því að sjálfsögðu
eiga börnin sjálf að njóta góðs af sínum
eigin gullkornum,“ segir Sverri og deilir
með okkur uppáhaldsgullkorni sem datt
upp úr Sunnevu dóttur hans þar sem þau
gengu um hrímaðar götur á aðventunni:
„Sjáið hvað göturnar eru fínar, einhver
hefur sett glimmer á þær.“ -hh
V ið fögnum þessari nýju að-gerðaáætlun og komum til með að taka þátt í því að
framkvæma stóran hluta af aðgerð-
unum,“ segir Salóme Guðmunds-
dóttir, en leitað var til sprotasam-
félagsins við gerð áætlunarinnar.
„Við höfum því fengið að koma með
okkar ábendingar í þessa vinnu og
átt í afar gott samstarf við Ragn-
heiði Elínu.“ Aðgerðirnar miða að
því að starfsumhverfi fyrir frum-
kvöðla, sprotafyrirtæki og nýsköp-
unarstarf á Íslandi standist allan
alþjóðlegan samanburð. Með því
móti verði Ísland uppspretta öflugra
sprota- og nýsköpunarfyrirtækja
þar sem hagnýting þekkingar og
tækni stuðlar að aukinni verðmæta-
sköpun og fjölbreyttum störfum í
íslensku atvinnulífi.
Aukið frumkvæði íslenskra
frumkvöðla
Salóme segir að aðgerðirnar séu
samantekt á því sem sprotasam-
félagið telur að brýnast sé að taka á.
„Það er þörf á úrbótum þó svo að við
höfum náð góðum árangri. Frum-
kvöðlaumhverfið er gjörbreytt frá
því sem áður var, við finnum fyrir
árangrinum og hjólin eru farin að
snúast. Það eru allir samstilltir,
hvort sem það eru stjórnvöld, stoð-
umhverfið, háskólarnir, einkafyrir-
tæki eða fjölmiðlar, það eru allir
samstilltir um að bæta þetta um-
hverfi. Það eru ekki mörg ár síðan
frumkvöðlar voru álitnir sérvitr-
ingar en í dag er þetta orðin viður-
kennd atvinnugrein.“
Ný og fjölbreyttari fyrirtæki
hljóta styrki
Í tilkynningu frá atvinnuvegar-
áðuneytinu segir að aðgerðirnar
sem mælt er fyrir um séu markviss-
ar og skýrt afmarkaðar hvað varðar
ábyrgð og tíma og er þeim meðal
annars ætlað að bæta aðgengi frum-
kvöðla og sprotafyrirtækja að fjár-
magni. Í því felst meðal annars
að framlög til Tækniþróunarsjóðs
verði aukin um 975 milljónir króna á
næsta ári, en hlutverk sjóðsins er að
styðja þróunarstarf og rannsóknir
á sviði tækniþróunar sem miða að
nýsköpun í íslensku atvinnulífi. Sal-
óme fagnar þessari aukningu. „Við
erum jafnframt að sjá mörg ný fyrir-
tæki sem hljóta styrki og fjölbreytn-
in í atvinnulífinu er því að aukast.“
Tenging við alþjóðleg sprota-
fyrirtæki
Aðgerðirnar eiga jafnframt að
ef la alþjóðlegt samstarf á sviði
frumkvöðlastarfs og nýsköpunar.
Í tillögunum er einnig minnst á að
koma á fót árlegum frumkvöðla-
og sprotaviðburði iðnaðar- og við-
skiptaráðherra og segir Salóme að
það gæti verið liður í því að efla al-
þjóðlegt samstarf. „Við höfum að-
eins verið að stíga inn í það að vera
með alþjóðlegar ráðstefnur hérna
heima, við héldum til dæmis Slush
Play fyrr á árinu, sem er sprota- og
fjárfestaráðstefna. Við stefnum á að
hóa saman sprotasamfélaginu hér á
landi og mér finnst ekki ólíklegt að
við munum tengja það við alþjóð-
lega sprotasamfélagið, en það á eftir
að útfæra það frekar.“
Erla María Markúsdóttir
erlamaria@frettatiminn.is
nýsKöpun iðnaðar- oG ViðsKiptaráðherra Kynnir áætlun
Framlög til íslenskra frumkvöðla
aukast um 975 milljónir
Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra tilkynnti í gær, fimmtudag, að-
gerðaáætlun í þágu frumkvöðla og sprotafyrirtækja undir heitinu Frumkvæði og framfarir. Áætl-
unin byggir á 22 aðgerðum sem miða að því að efla starfsumhverfi frumkvöðla, sprotafyrirtækja
og nýsköpunar á Íslandi. Hluti af aðgerðunum felast í auknum framlögum Tækniþróunarsjóðs,
en framlögin verða aukin um 975 milljónir króna á næsta ári. Áætlunin var unnin í samstarfi við
sprotafyrirtæki á Íslandi og segir Salóme Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Klak Innovit, að
íslenskir frumkvöðlar hlakki til að láta verkin tala.
Salóme Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Klak Innovit. Mynd/Haraldur Guðjónsson.
6 fréttir Helgin 18.-20. desember 2015