Fréttatíminn - 18.12.2015, Blaðsíða 54
Verðugur sess þess gráa
Þ
Það kennir margra grasa í jólabókafóðinu
nú, eins og endranær. Á ritstjórn Frétta-
tímans berast margar bækur til kynn-
ingar eða til gagnrýnanda, skáldsögur,
ljóðabækur, ævisögur og barnabækur,
auk fjölmargra bóka um samfélagið fyrr
og nú, menn og málefni. Inn á milli má
finna bækur um sérhæfð áhugamál, bæk-
ur um bíla og flugvélar, eða jafnvel mjög
sérhæfð, eins og traktora. Slík bók barst
ritstjórninni fyrir þessi jól. Margt gott má
segja um blaðamenn þessa ágæta blaðs,
raunar flest, en þó verður að viðurkenn-
ast að áhugi þeirra á dráttarvélum er
takmarkaður, ef nokkur. Því barst bókin
fljótt á borð undirritaðs vegna pistils sem
ég skrifaði fyrir nokkrum árum í kjölfar
þess að Bjarni Guðmundsson á Hvann-
eyri skrifaði um gráar Ferguson dráttar-
vélar sem mörkuðu upphaf vélvæðingar
víða til sveita en engin ein gerð dráttar-
véla hefur notið viðlíka vinsælda og gráni
gamli. Í pistlinum lýsti ég kynnum mín-
um af gráa Fergusoninum sem strákur í
sveit fyrir margt löngu, merkilegum grip
sem ólíkt skemmtilegra var að keyra en
elta beljurassa víða um grundir, moka
flórinn, raka eða rifja, með fullri virðingu
þó fyrir þeim ágætu störfum til sveita.
Dætur mínar gáfu mér Ferguson-bók
Bjarna í afmælisgjöf árið sem hún kom
út og síðar eignaðist ég forláta Ferguson
bolla, fagurlega myndskreyttan með þeim
gamla gráa við heyvinnslu og annað al-
mennt brúk. Gott er að drekka morgunte
úr því væna postulíni eftir að kona mín
ákvað að draga úr kaffidrykku en fá sér
te í staðinn. Það hefur þýtt mjög aukna
tedrykkju af minni hálfu, sem ágætt er.
Það vegur upp á móti eilífu kaffiþambi í
vinnunni.
Nýja traktorabókin er myndabók, þar
sem getur að líta flesta traktora frá upp-
hafi þessara þarfatækja, enda heitir hún
Traktorar í máli og myndum. Þar er farið í
gegnum sögu þessara mögnuðu tækja sem
umbyltu landbúnaði heimsins á 20. öld. Í
bókinni er fjallað um ríflega 450 traktora
af öllum stærðum og gerðum og mennina á
bak við tækin, sem ýmist unnu saman eða
tókust harkalega á, eins og þeir kappar og
uppfinningamenn, sá írski Ferguson og
ameríski Ford.
Slíka bók er gaman að skoða þótt hún
verði tæpast tekin með í rúmið, svo stór
og þung er hún. Þarna má kynnast göml-
um og nýjum græjum, stórum og smáum.
Áhugi minn á traktorum er hins vegar ekki
almennur. Ég tek ekki sérstaklega eftir
traktorum á götum úti, gröfum né öðrum
slíkum apparötum. Áhuginn er frekar
sagnfræðilegur og þá helst bundinn við
gamla traktora þar sem grái Fergusoninn
er í öndvegi.
Ég hef heldur ekki hug á að eignast trak-
tor enda hef ég ekkert við slíkt tól að gera,
jafnvel ekki gamlan grána. Ég kann auk
þess ekkert á vélaviðhald eða viðgerðir,
hvað þá að gera upp gamlar búvélar. Ég
skil hins vegar þá sem slíkt stunda og ég
þykist vita að til sé áhugamannafélag um
gamla Fergusoninn – og jafnvel fleiri drátt-
arvélar, auk þess sem menn aka á traktors-
dögum að sumarlagi í heiðursfylkingu, líkt
og þeir gera sem fornbíla halda, Bjúkka,
Kadillakka og aðrar slíkar gersemar gull-
aldar bílanna.
Bjarni Guðmundsson hefur raunar skrif-
að merka bók um annan frumherja meðal
traktora, hinn rauða Farmall Cub og aðra
bræður hans frá International Harvester.
Farmall Cub kynntist ég ekki, enginn
slíkur var þar sem ég var sumardrengur
í sveit hjá góðu fólki í Skálmardal í Múla-
sveit, sem nú tilheyrir sameinaðri Reyk-
hólasveit, enda Múlasveitin löngu komin í
eyði. Þangað kom hins vegar stærri Inter-
national Harvester dráttarvél til viðbótar
við gráa Fergusoninn meðan ég gegndi
þar smalastörfum. Nýi traktorinn, rauður
og glansandi þegar hann kom, var allur
kraftalegri en Fergusoninn, dísilknúinn
í stað bensínvélar þess gráa, með öflug
ámoksturstæki og fleira sem vel nýttist
bændum. Okkur sumarstrákunum þótti
enn skemmtilegra að keyra þann nýja,
enda hægt að gefa inn með fótgjöf í stað
handgjafar Fergusonarins. Það auðveldaði
gírskiptingar að geta sleppt olíugjöfinni í
stað þess að rykkjast áfram á fullri hand-
gjöf þess gráa þegar skipt var.
Í minningunni lifir grái Fergusoninn
þó fremur en rauði frændinn. Hann var
traktorinn sem við strákarnir fengum að
keyra fyrst, raunar fyrsta reynsla okkar
borgardrengjanna af fullorðinsheimi.
Þess vegna skildi ég vel hálfrar aldar
gamlan draum tveggja vina sem þeir létu
rætast á liðnu sumri. Þeir kölluðu sig vini
Ferguson og óku hringinn í kringum
landið á tveimur Massey Ferguson trak-
torum. Annar þeirra var traktorinn sem
þeir unnu á í sveitinni fyrir 50 árum. Þeir
ætluðu sér hálfan mánuð í hringferðina
og styrktu um leið gott málefni með fram-
taki sínu. Ferðin gekk vel og vöktu þeir
athygli hvar sem þeir komu á sínum hæg-
fara farartækjum. Minningar þeirra voru
þær sömu og hjá okkur Gústa í sveitinni,
sem skiptumst á að reka og sækja kýrn-
ar – og keyra Fergusoninn í Skálmardal.
Gústi, Ágúst Ingi Jónsson, blaðamaður
og lengst af fréttastjóri Morgunblaðsins,
deilir æskuminningum mínum um Fergu-
soninn gráa líkt og á við hjá fyrrgreindum
æskufélögum sem lögðu í hringferðina.
Ólíklegt þykir mér þó að við Gústi end-
urtökum afrek þeirra enda veit ég lítt um
afdrif Skálmardals-Grána en annar trak-
torinn sem fyrrgreindir félagar óku hring-
veginn var sá sami og þeir unnu á í sinni
sveit. „Það kom aldrei annað til greina,“
sögðu þeir við upphaf ferðarinnar í sumar,
„en að fara á traktornum okkar.“ Sá var, að
þeirra sögn, af gerðinni Massey Ferguson,
tegund 35X. Engin frekari deili kann ég
á þeirri gerð dráttarvéla – enda er sagn-
fræðilegur áhugi minn á dráttarvélum að-
eins bundinn forvera þessa Massey Fergu-
son, þeim herskipsgráa Ferguson – sem
vissulega fær sinn verðuga sess í nýju trak-
torabókinni.
Jónas
Haraldsson
jonas@
frettatiminn.is
HELGARPISTILL
Te
ik
ni
ng
/H
ar
i
54 viðhorf Helgin 18.-20. desember 2015