Fréttatíminn - 18.12.2015, Blaðsíða 8
NÝ LÍNA AF DÚNPARKA
REYKJAVÍK AUSTURSTRÆT 5 / ÞINGHOLTSSTRÆTI 2-4
GARÐABÆR MIÐHRAUN 4 • AKUREYRI HAFNARSTRÆTI 106 • WWW.ICEWEAR.IS
HILMAR | DÚNPARKI
Kr. 47.500
ICEWEAR GJAFABRÉF
Frábær jólagjöf sem fellur aldrei úr gildi!
Félags- og hús-
næðismálaráð-
herra hefur gert
samkomulag
við Rannsóknar-
setur í fötlunar-
fræðum um að
setrið annist
útgáfu og dreif-
ingu á kynn-
ingarefni um
ofbeldi gegn fötluðum konum
og hvert fatlaðar konur geti
sótt stuðning hafi þær sætt
ofbeldi. Í samkomulaginu felst
að Rannsóknarsetur í fötl-
unarfræðum annast prentun
bæklinga og skýrslna sem
gerð voru í tengslum við rann-
sóknarverkefnið: Ofbeldi
gegn fötluðum konum og
aðgengi þeirra að stuðnings-
úrræðum, að því er ráðuneytið
greinir frá. Skýrslunum verð-
ur dreift til opinberra stofn-
anna sem koma að þjónustu
við fatlað fólk og bæklingar
sendir víðsvegar um landið,
til félagsþjónustu sveitar-
félaga, heilsugæslustöðva,
lögreglustöðva, íþróttafélaga
og víðar þar sem fatlað fólk
sækir þjónustu eða tekur þátt í
félagsstarfi.
Jafnframt verða hönnuð tvö
veggspjöld sem annars vegar
eru ætluð til vekja almenning
til vitundar um ofbeldi gegn
fötluðum konum og hins vegar
með upplýsingum um eðli of-
beldis gegn fötluðum konum
og hvert konur geta leitað eftir
stuðningi.
Stjórnmál ráðherra Semur við rannSóknarSetur
Fræðsla um ofbeldi gegn fötluðum konum
Eygló Harðar-
dóttir, félags-
og húsnæðis-
málaráðherra.
Í nýjum þjóðarpúlsi Gallup kemur fram að 55% þjóðarinnar vilja aðskilnað ríkis og kirkju þegar skoðaðir eru þeir sem taka beina afstöðu, þ.e.
þeir sem segjast hlynntir eða andvígir aðskilnaði.
Þegar þeir eru teknir með í reikninginn sem segj-
ast hvorki hlynntir né andvígir aðskilnaði er hlut-
fall þeirra sem eru hlynntir aðskilnaði hins vegar
rúmlega 71%. Stuðningur við aðskilnað er mestur hjá
stuðningsmönnum Pírata en minnstur hjá stuðnings-
mönnum stjórnarflokkanna.
48% taka ekki afstöðu til starfa biskups
Rúmlega 37% þeirra sem taka afstöðu bera mikið
traust til þjóðkirkjunnar, ríflega 31% ber lítið traust til
þjóðkirkjunnar og svipað hlutfall hvorki mikið né lít-
ið. Konur bera meira traust til þjóðkirkjunnar en karl-
ar, fólk ber almennt meira
traust til þjóðkirkjunnar
eftir því sem það er eldra
og íbúar landsbyggðar-
innar bera almennt meira
traust til þjóðkirkjunnar
en höfuðborgarbúar. Þeir sem
kysu Framsóknarflokkinn ef
kosið yrði til Alþingis í dag
bera meira traust til þjóð-
kirkjunnar en þeir sem
kysu aðra flokka og þar á
eftir koma þeir sem kysu
Sjálfstæðisflokkinn.
Þeir sem styðja ríkis-
stjórnina bera að sama
skapi meira traust til
kirkjunnar en þeir sem
styðja ekki stjórnina.
Ríflega 37% þeirra sem
taka afstöðu segjast ánægð
með störf Agnesar M. Sig-
urðardóttur biskups en rúm-
lega 48% segjast hvorki ánægð né
óánægð með störf hennar.
Þjóðin þarf að ákveða sig
„Ég talaði fyrir því að við tækjum þessa umræðu
í Stjórnlagaráði því það hefur ekki farið fram nein
upplýst og málefnaleg umræða um þessi mál,“ segir
séra Arnfríður Guðmundsdóttir, doktor í guðfræði og
deildarforseti við guðfræði- og trúarbragðafræðideild
Háskóla Íslands, aðspurð um niðurstöðu þjóðarpúls-
ins. „Þá er ég ekki að tala um skotagrafaumræðu
heldur alvöru umræðu um það hvað það merki að
hafa þjóðkirkju og hvaða tengsl þjóðin vilji sjá milli
ríkis og kirkju. Það eru svo margar spurningar sem
við verðum að taka afstöðu til eins og til dæmis hvað
það þýðir að hafa fullan aðskilnað. Auðvitað þarf
þjóðin að ákveða þetta en hún er að segja ansi mikið
með því að þiggja þjónustu kirkjunnar, sem hún er að
gera.“
„Í þjóðaratkvæða-
greiðslu um nýja
stjórnarskrá í október
árið 2012 var tekin af-
staða til tillögu Stjórn-
lagaráðs um að nefna
þjóðkirkjuna ekki í nýrri
stjórnarskrá og þá var vilji
þeirra sem tóku afstöðu
um að hafa þjóðkirkjuna
inni afgerandi. Og þá var
niðurstaða margra skoð-
anakannana búin að
vera í þessa átt líka, þ.e
að stór hluti þjóðarinn-
ar vildi aðskilnað ríkis
og kirkju. Svo ég er ekki
viss um það hvað þessar
niðurstöður segja okkur
um vilja þjóðarinnar.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Þjóðkirkjan 55% vilja aðSkilnað rÍkiS og kirkju
„Auðvitað þarf þjóðin
að ákveða þetta en hún
er að segja ansi mikið
með því að þiggja þjón-
ustu kirkjunnar, sem
hún er að gera.“
Vill upplýsta umræðu um
samband ríkis og kirkju
Í nýjum þjóðarpúlsi Gallup kemur fram að 55% þjóðarinnar eru hlynnt aðskilnaði ríkis og kirkju.
Einnig kemur þar fram að 37% þjóðarinnar bera traust til þjóðkirkjunnar. Séra Arnfríður Guð-
mundsdóttir, doktor í guðfræði og deildarforseti við guðfræði- og trúarbragðafræðideild Háskóla
Íslands, segir nauðsynlegt að þjóðin taki afstöðu en fyrst þurfi alvöru umræðu um samband ríkis
og kirkju.
Séra Arnfríður Guð-
mundsdóttir, doktor í
guðfræði og deildar-
forseti við guðfræði- og
trúarbragðafræðideild
Háskóla Íslands, kallar
eftir upplýstri og mál-
efnalegri umræðu um
samband ríkis og kirkju.
Aðskilnaður ríkis og kirkju
30%
AlfArið Hlynnt
12%
MjöG Hlynnt
21%
Hvorki né
9%
frEkAr AndvÍG
4%
MjöG AndvÍG
10%
AlfArið
AndvÍG
14%
frEkAr Hlynnt
8 fréttir Helgin 18.-20. desember 2015
HELGARBLAÐ
Fékkstu ekki Fréttatímann heim?
Fréttatímanum er dreift á öll heimili á höfuðborgar-
svæðinu. Ef þú fékkst ekki blaðið heim, láttu okkur þá vita
með tölvupósti á dreifing@frettatiminn.is
Sjáðu blaðið líka á frettatiminn.is