Fréttatíminn - 18.12.2015, Blaðsíða 56
J óhannes Sveinsson Kjarval fæddist á bænum Efri Ey í Meðallandi árið 1885, en kirkjubók og hans eigin móður bar ekki alveg saman um fæðingar-
daginn. Þannig taldi presturinn hann hafa fæðist þann
15. október en sjálfur hélt Kjarval lengi upp á afmæl-
isdag sinn þann 7. nóvember. Listgáfa Kjarvals kom
snemma í ljós í uppvexti hans á Borgarfirði eystra en
tilsögn í myndlist hlaut hann í Reykjavík eftir að hann
fluttist þangað árið 1902 og fyrstu einkasýningu sína
hélt hann þar árið 1908. Hann fór utan til náms árið
1911 og bjó erlendis við nám og störf í fullan áratug.
Fyrst dvaldi hann í Lundúnum en fór síðan til náms í
Kaupmannahöfn, fyrst í undirbúningsnám en var síð-
an á Konunglegu listaakademíunni í Kaupmannahöfn.
Hann sneri aftur til Íslands árið 1922 og bjó þar síðan,
ef undan er skilin dvöl hans í París árið 1928.
Ef nefnd eru „Kjarvalsverk“ sjá allir fyrir sér lands-
lagsverk hans þar sem myndefnið er byggt upp af kúb-
ískum einingum og oft með kynjaverum á sveimi. Þessi
miklu verk vann hann á stöðum ferðum um landið þar
sem hann bjó í tjaldi eða hjá bændum og málaði úti, jafnt
fjarlægan fjallahring sem það sem næst honum stóð.
Hann bjó sér til sína eigin goðsögukenndu verur sem
runnu saman við náttúrutúlkun hans og oft eru lesnar
sem túlkun hans á þjóðtrú og íslenskum ævintýrum.
En bak við málverkin var annar Kjarval, hinn síteikn-
andi og sískapandi listamaður. Skissur hans og riss
endurspegla ævintýralegt ímyndunarafl og frjóan huga
í óheftri og frjálslegri tjáningu. Hann rissaði gjarnan
hugmyndir sínar á þann pappír sem hendi var næstur,
hvort heldur það voru sendibréf, umslög, sígarettuöskj-
ur, servíettur eða víxileyðublöð.
Hinar miklu og tíðu bréfaskriftir Kjarvals við aðra
birta mynd af manni sem er einstaklega mikilvægur
í augum samferðarmanna sinna, er einskonar þjóðar-
eign. En um leið birta bréf Kjarvals sjálfs mann sem er
óhátíðlegur, léttur og kátur. Hann sendir til að mynda
Sigurði Nordal afmæliskveðju þann 22. febrúar 1956
með orðunum „Þú átt afmæli í dag, Gamli í dag.“ Og
ritar undir: „Bless Jonný“.
Kjarval þótt einstaklega bóngóður og því er urmull
af skeytum til hans frá fólki sem biður hann um að-
stoð í formi málverks, peninga eða að hann kaupi fyrir
fólk stórt og smátt sem það vanhagar um. Barn skrifar
honum því:
„Kæri Kjarval minn!
Ég er lasin og langar til að biðja þig um að gefa mér
aur fyrir appelsínu. Dódó“
Og margir urðu til að skrifa honum innblásin aðdáenda-
bréf, á borð við þetta:
„Oft hefir mig langað til að stanza yður, þegar ég hef mætt
yður á götu í Reykjavík, og þakka yður fyrir það, sem hefir
hrifið mig í list yðar. ... Hvers vegna get ég grátið þegar ég
sé hraunbreiðu og víðan fjallahring málaðan af Kjarval.
Af því að myndir yðar eru lifandi verur, þær hafa sál, og
stundum sjáum við í þeim okkar eigin sál. ... Þér eruð
túlkur íslenzku þjóðarsálarinnar.“
Kæri Kjarval
Í ár eru liðin 130 ár frá
fæðingu Jóhannesar
Sveinssonar Kjarval.
Á þessu afmælisári
kemur út vegleg
bók um teikningar
hans og pár í um-
sjón listfræðinganna
Æsu Sigurjóns-
dóttur og Kristínar
G. Guðnadóttur. Í
bókinni, Út á spáss-
íuna, er í fyrsta
sinn birt úrval af
gríðarlega umfangs-
miklu safni Kjarvals af
margs konar skrifum
og teikningum sem
varpa nýju ljósi á list
hans og líf.
„Gáðu að þér í sortanum.“
Uppkast að afmæliskveðju
til Tómasar Guðmundssonar.
Með kærleik og virðingu
Útfarar- og lögfræðiþjónusta
Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Með kærleik og virðingu
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Við önnumst alla þætti undir-
búnings og framkvæmd útfarar
ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu
og umhyggju að leiðarljósi
og af faglegum metnaði.
Þorsteinn Elísson
lí i | í i |
Metal
design
Stefán Bogi Stefánsson
gull-og silfursmiður
Skólavörðustíg 2
101 Reykjavík
Eitt kort
35 vötn
6.900 kr
Frelsi til að veiða!
00000
JÓLAGJÖF VEIÐIMANNSINS!
www.veidikortid.is
56 bækur Helgin 18.-20. desember 2015