Fréttatíminn - 18.12.2015, Blaðsíða 52
versta sem getur gerst? Ef maður
hugsar um það, þá er ekkert sem
getur gerst. Annað en það að ein-
hverjir verða fúlir, en það stendur
stutt yfir,“ segir Kristófer.
„Það sem ég gerði fyrir tveimur
árum var að ég sleppti því að fara á
samfélagsmiðlana í nokkra daga því
ég vildi ekki sjá viðbrögðin. Sem ég
hefði ekki átt að gera því viðbrögðin
voru svo góð,“ segir hann og hlær.
„Maður fer út í þetta ævintýri með
það fyrir augum að maður getur
aldrei gert öllum til geðs. Ef maður
reynir það þá mun það mistakast.
Maður fær fleiri til þess að hlæja
ef maður er bara trúr sínu gríni
og sinni sannfæringu. Ég tel mjög
líklegt að einhver hópur, sem vill fá
hárbeitt pólitískt skaup sem sting-
ur á einhverjum kýlum, verði fyrir
vonbrigðum,“ segir hann. „Þeir sem
hafa gaman af hefðbundnum skets-
um þar sem gert er grín að þjóðinni
sjálfri verða sáttir.“
Sköpunargleðin fær að njóta sín
Martröð þeirra sem vinna að skaup-
inu er að eitthvað markvert gerist
milli jóla og nýárs, sem ekki verð-
ur hægt að koma fyrir í skaupinu
sjálfu. Kristófer segist þó hafa smá
tíma upp á að hlaupa ef eitthvað
óvænt gerist. „Það er erfitt ef það
gerist. Sérstaklega þar sem fjár-
munir eru naumt skammtaðir í
áramótaskaupið,“ segir hann. „Það
er í rauninni lygilegt hvað það er
verið að gera gott skaup fyrir litla
fjármuni. Þá er gott að finna fyrir
því að öllum þykir vænt um skaupið og all-
ir vilja vera með í því, svo það leggja allir
mikið á sig til þess að láta þetta ganga upp.
Leikarar vilja vera í skaupinu, allavega
einu sinni,“ segir hann. „Síðustu vikurnar
er maður samt á nálum um að ekkert gerist
í þjóðfélaginu. Helst má ekkert gerast sem
ekki er hægt að leysa á einfaldan hátt.“
Kristófer hefur verið lengi í þessum
bransa og unnið mikið fyrir sjónvarp. Hann
leikstýrði hinum vinsælu þáttum um Fólkið
í blokkinni og á þessu ári gerði hann sketsa-
þættina Drekasvæðið sem sýndir voru á
RÚV. „Ég hef verið mikið í auglýsingum á
þessu ári og svo eru leikin verkefni með
hinum og þessum í þróun, sem lítið er hægt
að segja meira frá á þessu stigi,“ segir hann.
„Þau malla í kerfinu og verða vonandi að
veruleika á næstu tveimur árum. Það sem
er skemmtilegast að gera er að leikstýra
leiknu efni, en maður verður að hafa þolin-
mæði sökum þess að það líður oft langur
tími á milli og slíkt. Það er mjög gaman að
fá tækifæri til þess að gera skaupið því mað-
ur getur leikið sér með mörg mismunandi
form í einu,“ segir Kristófer. „Allar tegundir
gríns, í bland við smá spennu og tónlistar-
myndbönd. Maður fær mikið að leika sér,
svo það er skemmtilegt að leyfa sköpunar-
gleðinni að njóta sín.“
Allir vilja gott skaup
Handritsskrifin að skaupinu gengu vel en
þó voru sumir ekki alltaf sammála. „Hópur-
inn var mjög þægilegur og við tjáðum okkur
mikið um allar hugmyndir frá byrjun,“ segir
Kristófer. „Ég held að enginn hafi móðg-
ast í ferlinu og á endanum voru allir sáttir.
Auðvitað var fólk stundum ósammála um
grín enda á það að vera þannig. Það var aðal-
lega svekkelsi að geta ekki gert betur og
meira vegna tímamarka eða slíkt. Það eru
samt allir sáttir við lokaútgáfuna og það er
spenna fyrir þessu. Við notum marga leik-
ara eins og venjulega og í handritshópnum
eru frábærir leikarar sem ég nota mikið,“
segir Kristófer.
„Þarna verða líka andlit sem fólk hefur
séð áður í skaupinu og verða að vera. Það
eru allir til í að leika í skaupinu. Skaupið er
sameign okkar allra og það vilja allir að það
sé gott. Meira að segja fólkið sem elskar
það að rakka það niður. Innst inni þá langar
það í gott skaup,“ segir Kristófer Dignus
leikstjóri.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Það er í
rauninni
lygilegt hvað
það er verið
að gera gott
skaup fyrir
litla fjármuni.
Þá er gott
að finna fyrir
því að öllum
þykir vænt
um skaupið
og allir vilja
vera með í
því, svo það
leggja allir
mikið á sig til
þess að láta
þetta ganga
upp. Leikarar
vilja vera í
skaupinu,
allavega einu
sinni.
Lokalagið með Steinda og Agli Ólafssyni
Það hefur skapast sá siður á undanförnum árum
að ljúka áramótaskaupinu á tónlistaratriði og
í ár verður engin breyting á. Það er Steindi Jr.
sem semur lagið, í samvinnu við tónlistarhópinn
StopWaitGo, og er það enginn annar en söngvar-
inn Egill Ólafsson sem syngur lagið að þessu sinni
og spilar stóran þátt í laginu. „Hann er Alpha-
Male númer eitt á Íslandi,“ segir Kristófer.
„Þetta lag hefur alla burði til þess að
verða smellur í byrjun nýs
árs.“
Það sem ég
gerði fyrir
tveimur árum
var að ég
sleppti því að
fara á sam-
félagsmiðlana
í nokkra daga
því ég vildi ekki
sjá viðbrögðin.
Sem ég hefði
ekki átt að gera
því viðbrögðin
voru svo góð.“
Ljósmynd/Hari
52 viðtal Helgin 18.-20. desember 2015