Fréttatíminn - 18.12.2015, Blaðsíða 81
- Lifi› heil
Lágmúla
Laugavegi
Nýbýlavegi
Smáralind
Smáratorgi
Borgarnesi
Grundarfirði
Stykkishólmi
Búðardal
Patreksfirði
Ísafirði
Blönduósi
Hvammstanga
Skagaströnd
Sauðárkróki
Húsavík
Þórshöfn
Egilsstöðum
Seyðisfirði
Neskaupstað
Eskifirði
Reyðarfirði
Höfn
Laugarási
Selfossi
Grindavík
Keflavík
www.lyfja.is
Er líða fer
að jólum...
Lyfja er til staðar allan ársins hring og þar eru jólin
engin undantekning. Þú finnur hjá okkur fjölbreytt
úrval af fallegum og nytsamlegum gjafavörum
fyrir alla fjölskylduna.
Gefðu vellíðan, gefðu gjöf frá Lyfju.
Ég uppgötvaði að
orðatiltækið „Þú ert
það sem þú borðar“
er ekki bara eitt-
hvað sem sagt er,
heldur dagsatt.
Hreyfing Úr bankageiranum í Heilsugeirann
Á hugi minn á heilsu kviknaði árið 2008 þegar móðir mín heitin
greindist með krabbamein, en
þá skall það á mér að heilsa
okkar skiptir öllu máli,“ segir
Sara, sem í kjölfarið endur-
skoðaði mataræði sitt ásamt
móður sinni. „Ég var tvítug á
þeim tíma og hafði ekki verið
að hugsa nægilega vel um mig
og mína heilsu. En þarna upp-
götvaði ég að orðatiltækið „Þú
ert það sem þú borðar“ er ekki
bara eitthvað sem sagt er, held-
ur dagsatt.“ Sara er viðskipta-
fræðingur og hafði starfað í
bankageiranum en ég dróst
alltaf nær heilsugeiranum. „Ég
fann svo mína köllun þar. Ég
lærði heilsumarkþjálfun og
fljótlega langaði mig að læra
meira á sviði hreyfingar og
ákvað að fara í ÍAK einkaþjálf-
arann sem ég kláraði síðasta
vor.“
Stuttar en kraftmiklar
æfingar
Sara er nú búsett í Danmörku
og hefur hún sett saman
æfingar sem byggja á svoköll-
uðu Hiitfit æfingakerfi. Hiit
stendur fyrir high intensity
interval training og einkennist
af stuttum en kröftugum æf-
ingum. „Hugmyndin af Hiitfit
kviknaði í rauninni eftir að ég
átti son minn og fór að leita
leiða til þess að koma mér aftur
í form í fæðingarorlofinu. Þar
sem ég hafði ekki alltaf tök á
að fara út og æfa á ákveðnum
tímum fór ég að prófa mig
áfram heima. Það hentaði mér
mjög vel að taka stuttar en
kraftmiklar æfingar og ég náði
miklum árangri,“ segir Sara. Á
vefsíðunni hiitfit.is býður Sara
upp á æfingakerfi og eins konar
fjarþjálfun. Þar sem hver æfing
tekur ekki nema í mesta lagi
hálftíma er kerfið tilvalið fyrir
fólk sem er mikið á ferðinni eða
hefur lítinn tíma fyrir líkams-
rækt. „Ég hef tekið eftir því í
gegnum tíðina að fólk notar
tímaleysi sem helstu ástæðuna
fyrir því að hreyfa sig ekki
reglulega og mig langaði að
sýna fólki að það þarf ekki
endilega einn til tvo klukku-
tíma á dag til þess að sinna
hreyfingu.“
Erla María Markúsdóttir
erlamaria@frettatiminn.is
Dæmi um Hiitfit
æfingalotu:
Stutt en kraftmikil
heilsuefling
„Ég hvet fólk til þess að gefa sér 20-
30 mín í hreyfingu daglega, þó það
sé komin desember og fólk er mjög
upptekið þá má það ekki gleyma sér í
stressinu. Það er ótrúlegt hvað maður
getur gert á stuttum tíma og auðvelt
að koma inn góðri æfingu á þessum
tíma. Vaknaðu t.d. hálftíma fyrr á
morgnana og æfðu inní stofu á meðan
fjölskyldan sefur.“
Brennsluæfing með áherslu á fætur:
1. Hnébeygjur
2. Burpees
3. Há hné
4. Framstig
5. Hliðarstig
6. Mountain climbers
„Stilltu klukkuna á 30 sekúndna keyrslu og 10 sekúnd-
ur í hvíld. Ég nota appið Interval timer sem lætur mig
vita hvenær á að hvíla og hvenær að æfa. Reyndu að
gera 4 umferðir af æfingunni og þá ertu búin. Munið
að hvíla í 30-60 sek á milli umferða. Á hiitfit.is má
finna nánari útskýringu á hverri æfingu fyrir sig.“
Helgin 18.-20. desember 2015 81