Fréttatíminn


Fréttatíminn - 18.12.2015, Page 44

Fréttatíminn - 18.12.2015, Page 44
É g ólst upp bæði við mikla fjölmenningu og mikla tónlist,“ segir Margrét Pálsdóttir, kórstjóri og málfræðingur, sem stofnaði í fyrravetur kór fisk-vinnslufólks í Grindavík en í honum eru Pólverjar, Íslendingar, Taílendingar og Serbar. „Til tíu ára aldurs bjó ég í Keflavík og þar var auðvitað Kaninn og ein besta vinkona mín var bandarísk svo ég vandist enskunni snemma. Sem ung stúlka söng ég mikið og fannst gaman að koma fram og syngja fyrir aðra. Ég man vel þegar ég söng í fyrsta skipti opinberlega einsöng fyrir fullu húsi þegar ég var sjö ára, á skólaskemmtun í Kross- inum í Njarðvík,“ segir Margrét sem flutti tíu ára gömul til Grindavíkur. „Í Grindavík bjuggum við í verbúð þar sem með okkur bjó fólk frá Færeyjum, Grænlandi, Englandi og Júgóslavíu. Þarna bjuggum við öll saman og ég heill- aðist fljótlega af færeysku því mér fannst hún svo ægilega skemmtileg og þarna lærði ég líka mín fyrstu orð í júgóslavnesku.“ Aldrei verið hrædd við nýjungar „Pabbi var sjómaður og hann fór í langar siglingar en kom oft heim með þýskar plötur sem varð til þess að ég heillaðist algjörlega af þýskunni og ákvað snemma að ég skyldi fara í nám til Þýskalands beint eftir stúdenstpróf,“ segir Margrét en örlögin höguðu því þannig að Þýskalandsförin beið síðari tíma. „Ég fór á sjóinn beint eftir Menntaskólann i Reykjavík, var háseti á þorskanetum og kokkur á síld, og missti af innrituninni í kennaraháskóla í Heidelberg. En það varð til þess að ég sá auglýsta stöðu í litlum sveitaskóla austur í Flóa, sótti um og fékk starfið svo þannig byrjaði ég að kenna,“ segir Margrét sem kenndi þar hin ýmsu fög auk þess að byrja að kenna söng í fyrsta sinn. „Mér finnst ægilega gaman að takast á við ný verkefni og hef aldrei verið haldin þörf fyrir að gera hlutina þannig að þeir séu fullkomnir. Það hefur aldrei neitt stoppað mig í að prófa nýja hluti og sumir myndu segja að það væri galli en þannig er ég bara. Ég settist bara við píanóið og spilaði og söng og krakkarnir sungu með.“ Draumurinn um Þýskaland varð að veruleika Eftir kennsluna fyrir austan fór Margrét í Kennaraháskól- ann þaðan sem leið hennar lá í málvísindadeild Háskóla Íslands. Eftir útskrift kenndi hún svo framsögn í Leiklistar- skólanum. „Þarna var ég að kenna og nota tungumálið auk þess að vera umkringd leiklist og skemmtilegu fólki. Ég naut mín mjög vel en eftir sjö ár fannst mér þeim kafla vera lokið. Ég var farin að vinna mikið sjálfstætt við framsagnar- kennslu fyrir ýmsar stofnanir,“ segir Margrét sem var þó ekki lengi að finna sér nýtt starf sem fullnægði ástríðu hennar fyrir tungumálinu, sem málfarsráðunautur Ríkisút- varpsins. „Ég var komin í fullt starf hjá Ríkisútvarpinu og leið mjög vel þar þegar ég sá auglýst starf íslenskukennara við nor- rænu deildina við háskólann í Kiel. Ég fékk hjartslátt þegar ég sá auglýsinguna því mig hafði alltaf dreymt um að fara til Þýskalands og ég gat ekki annað en sótt um. Það var erfitt að taka þessa ákvörðun en ég ákvað að láta ævintýraþörfina ráða og hef aldrei séð eftir því. Ég var nýfráskilin á þessum tíma með sex ára gamla dóttur en barnsfaðir minn studdi mig í þessari ákvörðun því hann vissi að það hafði verið draumur minn frá því ég var stelpa að flytja til Þýskalands. Þegar til Kielar var komið fékk ég alveg frjálsar hendur við kennsluna og ákvað að sjálfsögðu að nota tónlistina. Þetta var alveg yndislegt og þarna sá ég svo vel hvað tónlist hent- ar vel til að kenna tungumál,“ segir Margrét sem stofnaði að sjálfsögðu kór íslenskunema í háskólanum. „Það fór að sogast að mér hópur fólks sem hafði áhuga á tónlist eða var jafnvel menntað í tónlist og fyrr en varði var kominn fjórradda kór. Við gerðum ýmis- legt saman, ferðuðumst til Íslands og sungum og komum líka fram í þýska sjónvarpinu, það fannst okkur mikill heiður.“ Tón- list og tungumál sam- einar okkur „Þegar ég flutti aftur heim tímdi ég ekki að fara aftur í fasta vinnu,“ segir Mar- grét sem flutti heim árið 2003 eftir fimm ára dvöl í Kiel. „Mig langaði bara til að vera alveg frjáls og hef verið með framsagnarnám- skeið og unnið við þýðingar. Og svo dreif ég mig loksins í söngnám og byrjaði líka sjálf í kór.“ Það var svo í fyrravetur sem Vísir í Grindavík bað Margréti um að leiða samsöng á jólahlaðborði og það varð til þess að kór fiskvinnslufólks í Grindavík, Vísiskórinn, var stofnaður. „Ég mætti á kaffistofuna og náði að plata eitthvað af fólki á æfingu. Í upphafi voru þetta Pólverjar og Íslendingar en svo bættust við Taílendingar og Serbar. Pólverjarnir kenndu okkur pólsk jólalög og við kenndum þeim þau íslensku. Svo komumst við að því að mörg jólalög eru þekkt víða um heim og við þau eru til textar á ýmsum tungumálum og því fannst okkur við í rauninni eiga þau saman. Við enduðum svo á því að syngja fimm jólalög á þessu hlaðborði, á pólsku, íslensku, serbnesku og taílensku. Mér fannst svo yndislegt að sjá þarna verkstjóra og undirmenn, sem töluðu hver sitt tungu- málið, og skildu illa hverjir aðra, sameinast þarna í söng. Það að læra nokkur orð úr tungumáli annarra auðveldar samskipti og bara það að heyra einhvern sem kann ekki ís- lensku segja góðan dag, takk eða halló, lætur okkur líða vel. Við eigum að bera þá virðingu fyrir því fólki sem býr með okkur að læra nokkur orð í tungumáli þess. Þannig sýn- um við að við erum öll eins,“ segir Margrét sem hefur eytt hálfri ævinni í að nema og kenna bæði tónlist og tungumál. „Tónlist og tungumál eiga það sameigin- legt að tengja okkur saman og það sést svo vel í gegnum bæði tónlist og tungumál hvað við eigum margt sameiginlegt. Við eigum að vera duglegri við að rækta það.“ Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is Stofnaði kór fisk- vinnslufólks í Grindavík Margréti Pálsdóttur, kórstjóra, söngkonu og mál- fræðingi, er margt til lista lagt. Hún ólst upp í verbúð í Grindavík umkringd fjölda tungumála, hefur stundað sjóinn, kennt söng í sveit, stofnaði kór í Kiel og verið málfarsráðunautur RÚV, svo nokkuð sé nefnt. Í fyrravetur stofnaði hún fjölþjóðlegan kór fisk- vinnslufólks í Grindavík til að rækta það sem helst tengir okkur mannfólkið saman, tónlistina og tungumálið. Í Vísiskórnum frá Grindavík syngja Íslendingar, Pólverjar, Serbar og Taílendingar saman lög frá hinum ýmsu löndum undir stjórn Margrétar. Margrét Pálsdóttir segist ekki vera hrædd við nýj- ungar. „Ég fór á sjóinn beint eftir Menntaskólann i Reykjavík, var háseti á þorskanetum og kokkur á síld, og missti af innrituninni í kennaraháskóla í Heidelberg. En það varð til þess að ég sá auglýsta stöðu í litlum sveitaskóla austur í Flóa, sótti um og fékk starfið svo þannig byrjaði ég að kenna.“ 44 viðtal Helgin 18.-20. desember 2015
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.