Fréttatíminn - 18.12.2015, Page 45
Útkall ehf. Sundaborg 9, 104 Reykjavík sími 562 2600 - www.utkallbokautgafa.is
Metsölubækur
í 22 ár
Útkallsbækur Óttars Sveinssonar hafa verið eitt vinsælasta lesefni Íslendinga í tvo áratugi. Spennuþrungnar
frásagnir úr íslenskum veruleika. Í þessari bók er lýst ótrúlegri samkennd, fórnfýsi og þrautseigju íslenskra
sjómanna á úrslitastundu. Um hver jól grúfa þúsundir Íslendinga sig yfir Útkallsbækurnar og leggja þær ekki
frá sér fyrr en að lestri loknum.
Hér er sagt frá því er á þriðja hundrað íslenskir togarsjómenn horfast í augu við dauðann á
Nýfundnalandsmiðum í febrúar 1959. Eitthvert allra versta sjóveður sem Íslendingar hafa lent í á öldinni.
Skipin eru hlaðin stórhættulegri ísingu. Togarans Júlí frá Hafnarfirði er saknað með 30 mönnum. Fulllestaður
liggur Þorkell Máni frá Reykjavík á hliðinni í sjó sem er mínus tvær gráður og ölduhæð á við átta hæða hús.
Einnig er barist upp á líf og dauða um borð í Harðbak, Júní, Marz, Norðlendingi, Bjarna riddara og fleiri
togurum. Stöðugt gefur yfir togarana í bítandi brunagaddinum - spáin er vond: áframhaldandi ofviðri,
hamfarasjór og 10 stiga frost. Tilkynnig frá danska „Titanic“, Hans Hedtoft: „SOS, við sökkvum“. Gerpir
frá Neskaupstað heldur til móts við skipið.
,, ... las Útkallsbókina í einni lotu
sem segir sitt um spennuna sem
höfundinum tekst að halda.
Sagan er safarík ..."
Sigurður Bogi
Morgunblaðið
1. SÆTI
ALMENNT EFNI