Fréttatíminn


Fréttatíminn - 18.12.2015, Page 50

Fréttatíminn - 18.12.2015, Page 50
Skaupið er sameign okkar allra Áramótaskaup RÚV er það sjónvarpsefni sem nánast öll þjóðin horfir á og allir hafa skoðun á. Alveg sama hvernig á það er litið. Leikstjóri skaupsins í ár, Kristófer Dignus, segir það mikið ábyrgðarhlutverk að framleiða áramóta skaup. Hann segist þó vera reynslunni ríkari eftir að hafa gert það í fyrsta sinn fyrir tveimur árum, en er auðvitað spenntur fyrir viðbrögðum landsmanna. Hann segir áramótaskaupin hafa þróast mikið með árunum og í dag er ekki eins mikið einblínt á pólitíkina í landinu, enda sé hún leiðinleg. Þ etta gengur mjög vel og þetta er allt að klárast,“ segir Kristófer Dignus kvik- myndaleikstjóri, sem um þessar mundir er að vinna hið vandasama verk að leikstýra Áramótaskaupi Ríkissjónvarpsins. „Við erum að dútla í eftirvinnslu og slíku, og eigum eftir einn dag í tökum fyrir það sem vantar upp á. Ég gerði skaupið 2013 og lofaði konunni minni að gera það ekki aft- ur,“ segir hann. „Ég stóð við það, en svo kom nýtt ár og ég fann fyrir smá þrýstingi frá RÚV um að gera annað, svo ég sló til bara. Ferlið er mislangt eftir leikstjórum en ég lít á þetta sem ársverkefni. Í rauninni byrjar maður að pæla í þessu á ný- ársdag og er að pæla í þessu fram á gamlársdag,“ segir Kristófer. „Ef maður er búinn að ákveða það and- lega að bjóða sig fram í þetta þá þarf maður að hafa þetta bak við eyrað allt árið. Þetta er ekki endilega spurning um að liggja yfir fréttum og sökkva sér í pólitíkina eða slíkt, heldur að vera með angana úti og skynja hvernig þjóðfélagsandinn er. Það sem er gott við samfélagsmiðlana á netinu, er að maður fær góða heildar- sýn á það sem er í gangi hverju sinni. Nú getur maður lesið sig í gegnum Facebook og Twitter og fengið stemninguna í þjóðfélaginu beint í æð, og eiginlega dag frá degi,“ segir hann. „Því við höfum skoðun á öllu, og við erum svo fá að allir, hver einn og einasti er á netinu, sem gerir það að verkum að það er auðvelt að lesa í samfélagið. Þetta hefur hjálpað mér og höfundunum að finna hvað hefur gengið á að undanförnu, og við mun- um reyna að endurspegla það í þessu skaupi,“ segir Kristófer. Hópurinn hlýðinn Á árum áður tók áramótaskaupið nær eingöngu á pólitísku landslagi þjóðarinnar á ári hverju. Þetta hef- ur breyst á undanförnum áratug og segir Kristófer það vera vegna þess að það er svo margt annað skemmti- legra í gangi í þjóðfélaginu og póli- tík sé oft ekkert fyndin. „Ég held að sviðið sé miklu breiðara,“ segir hann. „Nú fer mikið fram á netinu og þau mál rata inn á kaffistofurnar líkt og pólitíkin gerði hér í eina tíð. Það er lítil pólitík í skaupinu í ár. Bæði vegna þess að okkur finnst íslenska þjóðin miklu skemmtilegri en það sem er að ger- ast inni á þingi, og líka var þetta frekar bragðdauft ár í pólitík,“ segir Kristófer. „Það voru ekki kosningar og eitthvað millibilsástand í gangi. Allir að bíða eftir því að geta kosið aftur og slíkt. Ég ákvað upp á mitt eindæmi hverjir yrðu í handritsteyminu,“ segir hann. „Ég valdi það nánast eingöngu út frá því hverjum maður nennir að vinna og eyða tíma með. Það fer mikill tími í þessa vinnu og það er hræðilegt ef upp kemur sú staða að þurfa að slökkva elda á milli fólks. Einnig valdi ég fólk sem getur unnið vel saman og hópurinn var mjög þægilegur,“ segir Krist- ófer en með honum í handritsteymi skaupsins eru þau Steindi Jr., Guð- jón Davíð Karlsson, Katla Mar- grét Þorgeirsdóttir og Atli Fann- ar Bjarkason, ritstjóri Nútímans. „Þetta er allt fólk sem ég þekki og hef unnið með áður,“ segir hann. „Ég veit að þau hlýða mér og er mjög fyndið og klárt. Þau hafa öll sína eiginleika og sína styrki sem sameinast vel í hóp. Sem gerir það að verkum að við fáum breiðara úr- val af gríni.“ Starfinu fylgir pressa Það er mikil pressa á framleiðend- um skaupsins því allir hafa skoðun á því, á mínútunni sem það klárast. Sumir sáttir og aðrir ósáttir og ræða það fram á nýja árið. Kristófer seg- ist þó ekki hafa miklar áhyggjur af viðbrögðunum því þau eru alltaf á báða vegu. „Ég er rólegri núna en þegar ég gerði það fyrst,“ segir hann. „Kannski er það vegna þess að mér finnst það betra en það sem ég gerði fyrir tveimur árum, ég veit það ekki. Ari Eldjárn sagði við mig fyrir tveimur árum. Hvað er það Framhald á næstu opnu Kristófer Dignus, leikstjóri Áramótaskaups Sjónvarpsins. Ljósmynd/Hari Ljúf og falleg saga um einmana kanínu sem ákveður að byggja brú í von um að nna vini hinum megin við lækinn. Bergrún Íris hlaut tilnefningu til Norrænu barnabókaverðlaunanna fyrir bókina Vinur minn, vindurinn. 50 viðtal Helgin 18.-20. desember 2015
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.