Fréttatíminn


Fréttatíminn - 18.12.2015, Page 66

Fréttatíminn - 18.12.2015, Page 66
Geysir opnar nýja verslun á Skólavörðustíg Geysir hefur opnað nýja og glæsilega verslun á Skóla- vörðustíg 7. Verslunin er hugsuð sem framlenging á upprunalegu versluninni á Skólavörðustíg 16. Í versluninni má finna aukið vöruúrval auk nýrrar fatalínu frá Geysi sem hönnuð er af Ernu Einars- dóttur. Notaleg og heimilisleg stemning verður í verslunum Geysis fram að jólum og opið verður langt fram á kvöld. G eysir sem verslun og vöru-merki er í sífelldri þróun og lengi hefur staðið til að stækka Geysi. Að sögn Lovísu V. Guðmundsdóttur, rekstrarstjóra Geysis, er í raun ekki litið á búðina sem algjörlega nýja verslun heldur meira sem framhald af upprunalega Geysi. Í nýju versluninni má finna aukið vöruúrval auk þess sem ný fatalína frá Geysi, hönnuð af Ernu Einarsdóttur, er fáanleg í verslun- inni. „Við erum að bæta ansi vel í merkjaflóruna okkar og það koma inn ný merki með nýju versluninni. Það verður meiri áhersla á kven- fatnað en það verður alltaf nóg í boði fyrir herrana líka. Verslanirnar eiga að tala ansi mikið saman og við vonumst til að fólki líði eins og það hafi bara farið upp á næstu hæð í Geysi frekar en inn í algjörlega nýja verslun,“ segir Lovísa. Með- al merkja sem eru fáanleg í nýju versluninni, auk Geysis línunnar, eru Stine Goya, Woodwood, Ganni, New Balance og Chie Mihara. Áhersla á íslensku ullina Fatalína undir merkjum Geysis hefur verið fáanleg frá árinu 2010 og í nýju línunni er lögð áhersla á íslensku ull- ina. Erna Einarsdóttir hefur hannað fyrir Geysi síðan 2013 en hún er út- skrifuð með mastersgráðu í fata- hönnun frá Central Saint Martins í London. „Með tilkomu Ernu kom fram ákveðin löngun að bæði stækka línuna og vinna meira og öðruvísi með ullina sem og önnur gæðaefni. Seinustu tvö ár hafa því farið í mikla tilrauna- og þróunarvinnu og það var virkilega gaman að kynna afrakstur þessarar vinnu í tengslum við opnun nýju verslunarinnar,“ segir Lovísa. Notaleg stemning verður í verslun- um Geysis á Skólavörðustíg fram að jólum og tilvalið að kíkja þar við á röltinu um miðborgina. Unnið í samstarfi við Geysi Geysir hefur opnað nýja og glæsilega verslun á Skólavörðu- stíg 7. Opið verður til klukkan 22 öll kvöld fram að jólum, og til klukkan 23 á Þorláks- messu. Myndir/ Axel Sigurðsson. Andi jólanna í miðbænum Sannkölluð jólastemning verður í miðbænum þessa síðustu helgi fyrir jól. Verslanir verða opnar til klukkan 22 og nóg verður af uppákomum víðs vegar um bæinn. Ingólfstorg skartar sínu fegursta, en torginu hefur verið breytt í skautasvell. Matar- markaður Krás fer fram í Fógetagarðinum laugardag og sunnu- dag og síðustu dagana fyrir jól verður settur upp jólamarkaður þar sem yfir tuttugu aðilar munu selja handverk, hönnun og ýmislegt góðgæti. N ova, í samstarfi við Sam-sung og Reykjavíkurborg, opnaði skautasvell á Ing- ólfstorgi á 8 ára afmælisdegi Nova þann 1. desember. „Við höfum séð stemninguna sem skapast í kring- um svona skautasvell og jólaþorp erlendis og okkur langaði að gera eitthvað nýtt og gefa svolítið af okk- ur í desember. Við settum því pen- inga í skautasvell og jólaþorp í stað þess að verja þeim í framleiðslu á auglýsingaefni,“ segir Guðmundur A. Guðmundsson, markaðsstjóri Nova. Umhverfis svellið er jólaþorp og jólaskreytingar og jólatónlist sjá svo um að skapa rétta jólaandann. Jólastemning líkt og þekkist erlendis Viðtökurnar hafa verið afar góð- ar og að sögn Guðmundar hafa um 10.000 manns farið á skauta en fleiri tugir þúsunda komið og skoðað. „Það er hægt að kaupa mat drykk og útivistarfatnað á torginu en mjög margir hafa nýtt sér það og notið jólastemningarinnar án þess að fara á skauta. Það er boðið upp á allt frá heitu kakói yfir í jólaglögg og rist- aðar hnetur. Fólk hefur haft á orði við okkur að það hafi skapast jóla- stemning á torginu líkt og tíðkast erlendis. Nú eigum við okkar eigið Rockefeller Center svell, Ingólfs- svell,“ segir Guðmundur, og vísar þá í eitt stærsta skautasvell New York borgar. Enginn aðgangseyr- ir er á svellið en hægt er að leigja saman skauta og hjálm gegn vægu gjaldi. Auk þess er hægt að leigja barnagrindur sem auðveldar yngstu kynslóðinni að fóta sig á svellinu. „Aðsóknin hefur verið það mikil að við fengum framlengingu á leig- unni á svellinu. Það verður opið til 3. janúar og því verður opið á milli jóla og nýárs, nánast alla daga á milli klukkan 12 og 22,“ segir Guð- mundur. Svellið verður þó lokað á aðfangadag og jóladag. Matar- og jólamarkaður í Fóg- etagarðinum Frá Ingólfstorgi er tilvalið að leggja leið sína í Fógetagarðinn, en sérstök gönguleið verður skreytt með ljósum þar á milli. Á laugar- dag og sunnudag fer fram Jólakrás, sérstök jólaútgáfa af Krás matar- markaði, sem hefur notið mikill vinsælda síðastliðin sumur. Dag- ana þar á eftir og fram á Þorláks- messu verður svo jólamarkaður í Fógetagarðinum. „Yfir tuttugu aðilar munu sýna og selja hand- verk, góðgæti og annað skemmti- legt,“ segir Hildur Gunnlaugsdóttir, einn skipuleggjandi markaðarins á vegum Reykjavíkurborgar. „Hægt verður að kaupa allt frá silkislæðum til skeggsnyrtivara, auk þess sem ýmis góðgerðasamtök verða á svæð- inu.“ Slökkvilið Reykjavíkur mun einnig láta sjá sig og hægt verður að sitja með þeim á mynd, auk þess sem dagatal Slökkviliðsins verður til sölu. „Jólamarkaðurinn verður opnaður klukkan 14 alla dagana og verður opinn til klukkan 22, en 23 á Þorláksmessu,“ segir Hildur. Ingólfstorgi hefur verið umbreytt í skautasvell. Umhverfis svellið er jóla- þorp og jólaskreytingar og jólatónlist sjá svo um að skapa rétta jólaandann. Laugavegi 35 101 Reykjavík www.einvera.is Klapparstíg 44 Skóverslun Laugarvegur 43 101 Reykjavík S. 551-2475 Jólakjólarnir fást í Öxney Prjónajólin byrja hjá okkur Laugavegur 59, 2. hæð Sími 551 8258 / www.storkurinn.is fallegar og vandaðar barnavörur Skólavörðustíg 5 • 101 Reykjavík • www.litiliupphafi.is 66 Aðventan í miðbænum
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.