Fréttatíminn - 15.01.2016, Síða 6
Kröfur Facebook um að
notendur skrái kyn sitt og
skírnarnafn gerir trans fólki
erfitt fyrir.
Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir
salka@frettatiminn.is
Þrátt fyrir hávær mótmæli hefur
Facebook ekki breytt þeirri stefnu
að skilyrða notendur til að heita
sama nafni á Facebook og skráð er
á skilríki þeirra.
Rögnu Rök Jóns, rithöfundi og
listamanneskju, var nýlega hótað
brottrekstri af samskiptamiðlinum
nema Facebook fái afrit af gildum
skilríkjum. Ragna gengur ekki
lengur undir því nafni sem skráð
er í vegabréfinu.
Rögnu er gefin vika til að senda
inn einhverskonar skilríki áður
en aðganginum verður lokað.
Eina leiðin til að opna aðganginn
aftur er að senda Facebook afrit
af þrennskonar skilríkjum, með
sama nafni.
„Sem trans manneskja og mann-
eskja sem er á kafi í stafrænum
fræðum, gerir þetta mig skelkaða.“
Ragna segir þetta jafnframt til
vitnis um hvernig persónugögn og
ótakmarkaður aðgangur að upp-
lýsingum virðist skipta fyrirtæki
eins og Facebook meira máli en
notendur þess af holdi og blóði.
„Facebook græðir á því að miðla
ítarlegum upplýsingum um not-
endur til auglýsenda. Allt annað
skiptir minna máli.“
Ragna segir þetta auðkenning-
arferli stórgallað, enda beini það
spjótum sínum að hópum sem ekki
vilja eða geta gefið upp skilríki af
öryggisástæðum. Það geti til dæm-
is verið trans einstaklingar, fólk
sem tengist pólitískum aktífisma
og fórnarlömb heimilisofbeldis.
„Tveir starfsmenn Facebook
höfðu samband við mig og ég
þurfti að útskýra fyrir þeim af
hverju ég væri ekki búin að senda
þeim skilríkin mín í pósti.“
Starfsmennirnir hafi ekkert
getað gert til að auðkenna Rögnu
án skilríkja. „Þeir spurðu mig:
„Hvernig getum við vitað að þú
sért raunverulega manneskjan
sem þú segist vera?“ En á sama
tíma er ég að tala við þá í símann.
Þetta er fáránlegt. Mér finnst
umhugsunarvert að netmiðlar trúi
gögnum frekar en fólki.“
Ragna stofnaði í kjölfarið myllu-
merkið #TransFB þar sem fólk gat
deilt sinni reynslu af auðkenn-
ingarferlinu. Fjölmargir hafa gert
það. Trans fólk um allan heim
hefur mótmælt þessari stefnu
Facebook allt frá því hún kom
til, en hún hefur ekki verið tekin
til baka.
Ragna segir ýmislegt hafa
breyst í kjölfar tæknivæðingar
og hræðslu við hryðjuverk,
því nú kalli yfirvöld sífellt á
meiri persónurannsóknir.
Ragna fer til dæmis ekki
klædd í sín venjulegu föt á
flugvelli, heldur klæðir sig
þá heldur eftir kyninu sem
skráð er á vegabréfið, til að
forðast að vera tekin fyrir af
öryggisvörslu.
Ugla Stefanía Jóns-
dóttir, talskona Trans
Íslands, hefur líka
verið tilkynnt á
þennan hátt og þurft
að auðkenna sig á
Facebook, en þar
sem nafn hennar á
miðlinum er það
sama og á skilríkj-
um hennar gat
hún auðkennt
sig. Þeir sem
tilkynntu
hana hafa
því ekki
haft er-
indi sem
erfiði.
Í til-
kynn-
ingu frá
Chris
Cox,
einum
verkefnastjóra
Facebook, segir að sérstaða Fa-
cebook sem miðils byggist á þess-
ari auðkenningarstefnu, því minna
sé þá um áreiti frá nafnlausum að-
ilum. Þó er hægðarleikur að setja
upp Facebook-aðgang með upp-
spunnu nafni, enda er ekki beðið
um skilríki við stofnun aðgangs,
heldur aðeins ef einstaklingar eru
tilkynntir fyrir falskt nafn á miðl-
inum.
Facebook Trans fólki mismunað við skráningu
Ragna Rök
Jóns segir
skilyrði
Facebook
um skírn-
arnöfn
mismuna
trans
fólki.
Bara tvö kyn viðurkennd
Það hafa verið miklar breytingar á
miðborginni síðustu ár og lítið til
góðs. Ég er efins um allar breyt-
ingar í skipulagsmálum í dag. Þessi
stóru glerhýsi og hótel þrengja að
miðbænum og ég er ekki hrifinn af
því. Þegar bílastæðum er fækkað
undir hótelstarfsemi, verður að
bæta samgöngur. Það þarf að gera
strætisvagninn að raunverulegum
valkosti og bæta aðstöðu fyrir
hjólandi og gangandi vegfarendur,
segir Sigurður Jón Ólafsson bóka-
safnsfræðingur.
Hvað á að gera við Hafnartorgið?
Ráðagóður
Sigurður Jón Ólafsson
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
tka@frettatiminn.is
Hátt í þrjú þúsund manns hafa
skrifað undir undirskriftasöfnun til
að mótmæla tilraunaborunum HS
Orku á Eldvarpasvæðinu. Grinda-
víkurbær gaf leyfi til HS Orku til
tilraunaborana á svæðinu, þótt
Skipulagsstofnun telji að fram-
kvæmdirnar muni stuðla að óaftur-
kræfu raski. Ómar Ragnarsson seg-
ir túrbínutrix í uppsiglingu. Hver
tilraunahola kosti 560 milljónir.
Fimm holur kosti hátt í 3 milljarða.
„HS orka ætlar sér varla að eyða
þessu fé nema að fá eitthvað í
staðinn?
Auðvitað heila virkjun. Og mun
þá segja, að ef náttúruverndarfólk
ætli að standa í vegi fyrir því, beri
það ábyrgð á þriggja milljarða tjóni.
Svipað var reynt við Laxár-
virkjun 1970 þegar kaupa átti strax
risatúrbínur fyrir stórstækkaða
Laxárvirkjun og kenna andófs-
fólki um tjónið sem yrði ef þær
yrðu ekki keyptar,“ segir Ómar og
minnir á að sú tilraun hafi sprungið
framan í Landsvirkjun í bókstaf-
legri merkingu þegar bændur náðu
sér í dínamít og sprengdu stífluna.
Um milljón ferðamenn sækja
Grindavík heim árlega en í lok síð-
asta árs setti UNESCO, menningar-
málastofnun Sameinuðu þjóðanna,
Reykjanesið á lista yfir 120 áhuga-
verðustu jarðvanga í heiminum.
Skipulagsstofnun taldi í um-
hverfismati að framkvæmdin
hefði talsvert neikvæð áhrif. Þau
helstu væru sjónræn vegna hávaða
á framkvæmdatíma. Það hafi
neikvæð áhrif á upplifun ferða-
manna sem sækja svæðið heim. Ell-
ert Grétarsson, ljósmyndari hefur
verið óþreytandi við að benda á að
Eldvörp séu einstakar jarðminjar á
heimsvísu. Hvergi í heiminum megi
upplifa jarðvirkni milli tveggja
jarðskorpufleka líkt og þar. Að
auki hafi svæðið að geyma söguleg
verðmæti. Hann segir að þótt ekki
sé hróflað við gígunum sjálfum
sé verið að gjöreyðileggja ásýnd
svæðisins.
Ómar segir túrbínutrix í uppsiglingu
Mynd | Ellert Grétarsson
6 | fréttatíminn | Helgin 15. janúar–17. janúar 2016
BOGGIE 3ja sæta
Slitsterkt áklæði. Margir litir.
Stærð: 186 x 77 cm, H: 85 cm.
Verð: 99.900 kr.
20%
AFSLÁTTUR
Aðeins 79.920 kr.
Aðeins 13.930 kr.
O&D dúnsæng
STÓRI BJÖRN
· 50% dúnn & 50% smáfiður
Fullt verð: 19.900 kr.
Afgreiðslutími Rvk.
Mán. til fös. kl. 10–18
Laugardaga kl. 11–16
Sunnudaga kl. 13–17
www.dorma.is
Holtagörðum
512 6800
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafjörður
NÝTTU
TÆKIFÆRIÐ
Komdu í Dorma
ÚTSALAN
í fullu fjöri
ALLT AÐ
60%
AFSLÁTTUR
NATURE’S
COMFORT
heilsurúm
Nature’s Comfort heilsudýna
með Classic botni.
Stærð: 180x200 cm.
Fullt verð: 164.900 kr.
25%
AFSLÁTTUR
Val um svart eða hvítt PU leður
eða grátt áklæði á botni.
Aðeins 123.675 kr.
Holtagarðar | Akureyri | Ísafjörður | www.dorma.is
NÝTTU
TÆKIFÆRIÐ
Komdu í Dorma
2.925 kr.
NATURE’S
COMFORT
heilsurúm
Nature’s Comfort heilsudýna
með Classic botni.
25%
AFSLÁTTUR
af öllum stærðum
Val um svart eða hvítt PU leður
eða grátt áklæði á botni.
Aðeins 123.675 kr.
Verðdæmi
180 x 200 cm
ÚTSALAN
í fullu fjöri
ALLT AÐ
60%
AFSLÁTTUR
Fibersæng & Fiberkoddi
PURE COMFORT
7.425 kr.
PURE COMFORT koddi
Fullt verð: 3.900 kr.
PURE COMFORT sæng
Fullt verð: 9.900 kr.
Koddi Sæng
25%
AFSLÁTTUR
Fullt verð: 164.900 kr.
Opið all
a daga
í janúar
Þú finnur
útsölubæklinginn
á dorma.is
Opið a
lla dag
a
í janúa
r