Fréttatíminn - 15.01.2016, Blaðsíða 70
Hólmfríður Bjarnadóttir, eða
Hófý eins og við flest þekkjum
hana, verður á skrifstofu
Bændaferða 18. - 22. janúar
milli kl. 10:00 - 16:00.
Kíktu við í kaffi og fáðu
upplýsingar um ferðir ársins frá
einum vinsælasta fararstjóra
Bændaferða.
A L L I R V E L K O M N I R !
Hófý, fararstjóri Bændaferða
verður á skrifstofunni 18. - 22. janúar
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | Síðumúla 2, 108 RVK
Ný Hulla sería mun líta dagsins
ljós á RÚV í haust og mun Hug-
leikur halda áfram að fjalla um hin
ýmsu samfélagsfyrirbæri á sinn
einstaka hátt. „Það verða alíslensk
fyrirbæri tekin fyrir, eins og mott-
umars, undankeppni evróvisjón
og ungfrú Ísland,“ segir Hugleikur.
„Svo munu Meryl Streep, Miley
Cyrus, Jeremy Irons og Samuel L.
Jackson birtast í þáttunum. Það
reyndist erfitt að fá þau sjálf í þátt-
inn þannig að ég varð að tala fyrir
þau öll. Áhorfendur mega búast
við þéttari, skrítnari og dónalegri
þáttum en í fyrri seríunni.“
Sagan byggir á persónulegri
reynslu, segir handritshöf-
undurinn, Ólafur Egilsson.
Tökum á kvikmyndinni Eiðurinn
sem Baltasar Kormákur leikstýrir
lýkur í febrúar. Handritið er skrifað
af Ólafi Egilssyni og byggir á sögu
sem stendur honum afar nærri.
„Sagan byggir á persónulegri
reynslu minni, en ég held reynd-
ar það sé ekki til sú fjölskylda á Ís-
landi sem hefur ekki kynnst fíkn og
upplifað þá martröð sem fylgir því
að sjá ástvin missa fótanna í slíku.
Myndin fjallar um fjölskylduföður
og hjartalækni sem horfir upp á
dóttur sína lenda í „rugli“, eins og
sagt er, en ákveður að grípa harka-
lega í taumana með skelfilegum af-
leiðingum.“
Baltasar sjálfur fer með aðalhlut-
verk ásamt Heru Hilmarsdóttur,
Gísla Erni Garðarssyni, Ingvari Sig-
urðssyni og Margréti Björnsdóttur.
Aðspurður segir Ólafur að það sé þó
ekki svo að Baltasar leiki Egil Ólafs-
son, föður sinn, málið sé alls ekki
svo einfalt. „Nær væri að segja að
hann leiki mig í einni eða annarri
mynd.“
Nú þegar tökum er að ljúka von-
ast Ólafur eftir frumsýningu ári
síðar. | sgk
Baltasar Kormákur leikur samsetta feðga
Þrír íslenskir listamenn ná
inn á topp 20 yfir þá sem
mest var streymt á Spotify í
fyrra.
Rappsveitin Úlfur Úlfur er vinsæl-
asta hljómsveit landsins, sé miðað
við tölur Spotify frá síðasta ári.
Úlfur Úlfur, Bubbi Morthens og
Of Monsters and Men eru einu ís-
lensku tónlistarmennirnir sem ná
inn á topp 20 lista yfir þá sem mest
var hlustað á á Spotify hér á landi í
fyrra. The Weeknd trónir á toppn-
um.
Þegar einstök lög eru skoðuðu
kemur í ljós að lagið Cheerleader
með OMI var vinsælasta lagið meðal
notenda Spotify hér á landi í fyrra.
Uptown Funk með Mark Ronson var
annað vinsælasta lagið en Lean On
með Major Lazer í þriðja sæti. Oftast
var hlustað á Crystals með Of Mon-
sters and Men af íslenskum lögum.
Samkvæmt samantekt Spotify fyrir
Símann nær það inn á topp 40.
Mynd | Lilja Jónsdóttir
Úlfur Úlfur vin-
sælastur á Spotify
Mest streymdu listamennirnir á Íslandi
Skagfirsku rappararnir í Úlfur Úlfur eru
í níunda sæti yfir þá listamenn sem oftast
var hlustað á á Spotify hér á landi í fyrra.
Tökum á kvikmyndinni Eiðurinn lýkur senn.
Mynd | /Anton
Bubbi
Morthens.
1. The Weeknd
2. Drake
3. Kanye West
4. Sam Smith
5. Rihanna
6. Eminem
7. Beyoncé
8. Justin Bieber
9. Úlfur Úlfur
10. Kendrick Lamar
11. Bubbi Morthens
12. Sia
13. One Direction
14. Coldplay
15. Kygo
16. Hozier
17. Ed Sheeran
18. Calvin Harris
19. Maroon 5
20. Of Monsters and Men
Nanna í Of
monsters
and men.
Skrítnari og
dónalegri Hulli
Hrafnhildur Skúladóttir, fyrrverandi landsliðs-
kona í handbolta: „Ég er einmitt stödd í Pól-
landi þar sem leikurinn fer fram og er að
reyna að redda mér miða á hann. Annars á
ég miða á Frakkland-Makedóníu sem ég yrði
eiginlega að fara á ef ég fæ ekki miða á hinn.
Ég ætla að gera allt sem í mínu valdi stendur
til að fara á leik Íslands við Noreg.“
Ætlarðu að horfa á fyrsta leikinn?
70 | fréttatíminn | Helgin 15. janúar–17. janúar 2016