Fréttatíminn - 15.01.2016, Blaðsíða 42
HIN FAGRA OG FORNA ALBANÍA
PÁSKAFERÐ
19. – 30. MARS
ALBANÍA
WWW.TRANSATLANTIC.IS SÍMI: 588 8900
Albanía hefur nú loksins opnast fyrir erlendum ferðamönnum. Enn
hefur alþjóðavæðingin ekki náð að festa þar rætur og er lítt sjáanleg.
Þar má sjá ævaforna menningu, söguna á hverju horni, gríðarfallega
náttúru og fagrar strendur og kynnast einstakri gestrisni heimamanna
þar sem gömul gildi eru í hávegum höfð.
Innifalið: Flug, hótel í London, hótel með hálfu
fæði í Albaníu, öll keyrsla í Albaníu, allar
skoðunarferðir, ísl. fararstjóri, skattar og
aðgangur þar sem við á.
VERÐ
329.900.- (per mann i 2ja manna herbergi)
Heil og sæl, kæra Ásta og hjartans
þakkir fyrir bréfið þitt. Þú ert ekki
ein um þann vanda að skapa aftur
rútínu eftir löng frí, það er ein-
faldlega verkefni sem bíður Fjöl-
skyldunnar ehf. reglubundið á ári
hverju.
Hafa svefninn í lagi
Svefninn má leiðrétta á skömmum
tíma með að koma sér strax á fæt-
ur að morgni á réttum fótaferðar-
tíma fjölskyldunnar og harka af
sér daginn þannig að enginn taki
sér aukablund umfram það sem
venjulega er gert. Síðan þarf að
koma öllum tímanlega í háttinn og
samþykkja engar leifar af hátíðaó-
reglunni eins og sjónvarpsáhorf
fram eftir kvöldi. Þetta er erfitt
fyrstu þrjá til fjóra dagana og því
er mikilvægt að ríghalda í svefn-
regluna þegar helgin heldur inn-
reið sína, jafnvel meira en venju-
lega til að halda viðsnúningnum.
Undirbúningur kvöldið áður
Þú skalt líka létta þér og börnun-
um þínum lífið með að undirbúa
hvern morgun kvöldinu áður. Það
er gríðarlegur léttir fyrir börnin
að fötin þeirra og skólatöskur séu
tilbúin og útifötin klár við útgang-
inn. Svo má setja morgunverðar-
diska og morgunkorn á borðið
og gera kaffigerðaráhaldið klárt
þannig að aðeins þurfi að ýta á
einn takka í svefnrofunum. Allt
þetta sparar tíma og getur meira
að segja verið tilhlökkunarefni
að hefja daginn með spennandi
morgunverði.
Rjúfa morgunóregluna
Dóttir þín þarf síðan hjálp til að
brjótast út úr morgunóánægjunni
því hegðunin sem þú lýsir, getur
auðveldlega orðið að vítahring
sem er henni sjálfri verst en er líka
afar truflandi fyrir stóra drenginn
þinn sem þarf líka tíma og athygli
frá þér í upphafi dagsins. Byrj-
unin er að koma dóttur þinni á
fætur án þess að hún komist af
stað í mótmælum og gráti og
þú skalt ræða við hana fyrir-
fram að þú viljir hjálpa henni
til að eiga góðan morgun.
Hún hefur aldur og þroska til
að koma að umræðu og ákvörðun
um að prófa tilteknar leiðir eins
og að ef henni takist að komast
út úr dyrunum með gleði, fái hún
smáverðlaun síðdegis eins og að
spila uppáhaldsspilið við mömmu,
velja kvöldmatinn, horfa aðeins
á sjónvarpið eða hvað annað sem
er eftirsóknarvert. Slík jákvæð
styrking er mjög áhrifamikil og
þegar árangri er náð, fýkur þörfin
fyrir hana út í buskann. Þú getur
líka aðstoðað hana með að bjóða
henni að velja morgunmatinn eða
að hún horfi á barnaefni á meðan
þú hreinlega tínir á hana leppana
og ef hárgreiðslan er átakaefni,
skaltu bara sleppa henni meðan
þið byggið upp góða rútínu.
Stutt kveðjustund
Síðan er að koma kveðjustundinni
ykkar í leikskólanum aftur í gott
horf. Það er einfalt fyrst að hún
hefur alltaf verið ánægð þar og
gráturinn því aðeins hluti af því að
halda í mömmu – eins og allir vilja
gera. Talaðu hiklaust við starfs-
fólkið sem mun vinna með þér og
gefa þér ráð en ég minni þig á að
mótmæli og grátur í forstofunni
lengir bara erfiða kveðjustund
fyrir alla aðila og getur ýkt upp
vanlíðan sem var í upphafi bara
morgunþreyta og smástjórnun á
mömmunni. Oftast dugar að biðja
leikskólakennarann að taka barnið
í fangið og kveðja svo fljótt og fara
út án þess að líta til baka en gefa
svo barninu góðan tíma þegar þú
kemur að sækja.
Gangi þér virkilega vel og
hlýjar kveðjur,
Magga Pála
Uppeldisáhöldin
Magga Pála gefur foreldrum
ráð um uppeldi stúlkna og
drengja milli 0 og 10 ára.
Kæra Magga Pála.
Það hefur gengið illa hjá okkur að komast í rútínu aftur eftir
jólafríið. Ég er ein með níu ára gutta og fjögurra ára stelpu og hver
einasti morgunn eftir hátíðar er búinn að vera martröð, sérstak-
lega með stelpuna en eftir frí hefur hún ekki viljað fara í leikskól-
ann, grátið og látið illa alveg frá því að við vöknum. Ég reyni að
hugga hana en það gengur ekkert og loks fer ég frá henni grátandi
og hef komið alltof seint í vinnuna alla vikuna. Fóstrurnar segja
mér að hún sé ánægð í leikskólanum um leið og ég er farin en þetta
hefur aldrei verið svona áður og það er svo erfitt að fara frá henni
grátandi. Áttu einhver ráð eða svör fyrir mig?
Með kveðju, Ásta.
Martröð á
morgnana
Hafnarfjörður
Sjúkraþjálfarinn | Strandgötu 75
Sími 693 9770 | afgreidsla@sjukrathjalfarinn.is
Reykjavík
Sjúkraþjálfun Reykjavíkur | Seljavegi 2
Sími 898 9638 | thorgeir@srg.is
Akureyri
Efling sjúkraþjálfun | Hafnarstræti 97
Sími 861 3252 | efling@eflingehf.is
Öflug námskeið með áherslu á fræðslu og sértækar æfingar,
haldið af reyndum sjúkraþjálfurum á þremur stöðum á landinu.
Námskeiðin hafa fengið frábærar viðtökur og hefjast
næstu námskeið 25./26. janúar.
Hámark 12 í hverjum hópi. Kennt er tvisvar sinnum í viku.
Tveggja vikna námskeið :
Fræðsla og kennsla æfinga
kr. 20.000
Átta vikna námskeið:
Að auki; mælingar, sex vikna
sértæk þjálfun og eftirfylgni
kr. 45.000
www.slitgigt.is Slitgigtarskólinn
42 | fréttatíminn | Helgin 15. janúar–17. janúar 2016