Fréttatíminn - 15.01.2016, Blaðsíða 52
fréttatíminn | Helgin 15. janúar-17. janúar 201652 |
Ástin er aðalhráefnið
Antonio Neri býður
upp á ekta ítalskan
mat á Piccolo Italia
við Frakkastíg.
Unnið í samstarfi við
Piccolo Italia
piccolo italia við Frakkastíg er
eini ítalski veitingastaðurinn hér á
landi sem getur stært sig af því að
nota ekta ítalskt hráefni. Ferskur
pastailmur svífur í lofti og mætir
þar ítölskum óperutónum sem
vekur þá tilfinningu hjá gestunum
að þeir séu staddir á Ítalíu, ber
staðurinn því nafn með rentu, litla
Ítalía. eigandinn, antonino neri,
býr til pítsur, pasta, brauð og ís frá
grunni og segir ástríðuna reka sig
áfram.
Fljótlega eftir að antonino neri
kom til Íslands fyrir tíu árum
kviknaði áhugi hans á að opna
veitingastað en fyrst og fremst
vegna þess að hann taldi þörf á ekta
ítölsku hráefni. enginn þeirra ítölsku
veitingastaða sem hér var að finna
bauð ósvikinn ítalskan mat eða
hráefni að hans mati.
„Ég hugsaði með mér að ég vildi
reka minn eigin stað sem þjónar
þeim sem vilja bragða ekta ítalskan
mat,“ segir antonino eða nino eins
og hann er oftast kallaður. Með 45
ára reynslu að baki í eldhúsinu býr
hann til heimagert pasta, pítsur, ís
og ítalskt brauð sem hann selur á
veitingastaðnum Piccolo italia. „Hið
ósvikna ítalska bragð,“ er þema
staðarins en allt hráefni og vörur
eru fluttar inn beint frá Ítalíu.
Hvort sem fólk sækir staðinn til
að njóta samveru með fjölskyldu
og vinum eða menn njóta matarins
einir með sjálfum sér þá verður
enginn svikinn af því að borða besta
ítalska matinn í bænum og hlusta
á ljúfa ítalska tóna. Verðið er sann-
gjarnt og í janúarmánuði er þriggja
rétta tilboð á heimagerðu pasta
með ljúffengu panna cotta í eftir-
rétt á 3.450 krónur. Íslenskan mat
má þó líka finna á matseðlinum,
eins og hvalkjöt, lamb, folaldakjöt
og fisk en nino leggur áherslu á að
mæta þörfum viðskiptavina sinna.
Það besta við að reka veitingastað,
að hans mati, er að vita til þess að
bæði Íslendingar og ferðamenn
elska matinn sem hann býður þeim.
„Mitt aðalhráefni er ást,“ segir nino.
Nino leggur mikið upp úr
því að nota ósvikið hrá-
efni til að framkalla hið
sanna ítalska bragð.
J
Ó
N
S
S
O
N
&
L
E
’M
A
C
K
S
•
jl
.i
s
•
S
ÍA
Í fullkomnu
flæði
Sous Vide er matreiðsluaðferð sem felst í því að
sjóða í lofttæmi við lágan og jafnan hita. Með því
að elda við fullkomið hitastig – ekki of lengi og ekki
of stutt – er hægt að hámarka bragðgæði matarins.
Með Sous Vide-amboðinu frá Sansaire geta áhuga-
menn jafnt sem atvinnumenn náð fullkomnu valdi á
hitastiginu og „súvídað“ í hvaða íláti sem er. Maður
þarf ekki einu sinni að eiga pott.
laugavegi 47 www.kokka.is kokka@kokka.is
Fortíðin eltir R. Kelly
söngvarinn r. kelly er einn helsti
RnB-tónlistarmaður heims og
hefur á 20 ára ferli gefið út hverja
metsöluplötuna á fætur annarri,
trónað á toppi vinsældalista með
lög á borð við Ignition (Remix)
og I Believe I Can Fly, og unnið
með stjörnum á borð við Michael
Jackson.
Á dögunum komst Kelly í fréttir
þegar hann gekk út úr viðtali Huff-
ington post, þegar fréttakonan
Caroline Modarressy-Tehrani
spurði hann út í ítrekaðar ásak-
anir um að hann hafi brotið gegn
ungum stúlkum kynferðislega.
Allt frá árinu 1994 hefur R.Kelly
nokkrum sinnum verið kærður
fyrir kynferðisbrot gegn stúlkum
undir lögaldri og hafa fjölmargar
konur til viðbótar sakað hann um
slíkt. Vinsældir söngvarans hafa
þó ekki dalað að ráði.
Margir kannast við myndband
sem lak á netið og sýndi R. Kelly
hafa mök við unga stúlku og meðal
annars pissa upp í munn hennar.
Færri vita að stúlkan var 14 ára
gömul þegar myndbandið er tekið.
Í kjölfarið var R. Kelly kærður
fyrir framleiðslu á barnaklámi, en
hann var sýknaður af þeim kærum
því ekki var hægt að staðfesta
aldur myndbandsins, og þar með
stúlkunnar.
Til eru fleiri myndbönd sem
sýna R. Kelly hafa mök við stúlkur
undir lögaldri, en þau mál hafa
ekki farið fyrir rétt. Hjónaband
hans við söngkonuna Aaliyah, sem
þá var aðeins 15 ára gömul, komst
í fréttir árið 1994 en R. Kelly var
þá 27 ára gamall og falsaði fæðing-
arvottorð hennar svo hún virtist 18
ára. Fjölskylda Aaliyah lét ógilda
hjónabandið skömmu síðar.
Litlar afleiðingar
fyrir Kelly
En jafnvel þótt
gögn úr þeim
málum sem
höfðuð hafa
verið gegn
honum
síðustu 20
árin séu
öllum að-
gengileg,
virðast þau
ekki hafa
dregið úr vin-
sældum R. Kelly.
Jim DeRogatis,
tónlistarblaða-
maður sem fyrir
tilviljun fór að
rannsaka brot R.
Kelly árið 2000,
segir í viðtali
við Village Voice
ástæðuna fyrir
þessum litla áhuga
á glæpum R. Kelly einfalda: „Það
sorglegasta sem ég hef lært (á því
að fjalla um mál R. Kelly) er þetta:
Það er enginn sem sam-
félagi okkar er meira
sama um en ungar,
svartar konur.“
Nú virðist almenn-
ingur hafa snúið
bakinu alveg við
grínistanum Bill
Cosby, sem fjölmargar
hvítar konur hafa
sakað um gróf
kynferðis-
brot. DeRo-
gatis segir
að hefði
R. Kelly
fengið á
sig kæru
frá hvítri
konu, hefði
það vakið
sterkari
viðbrögð
almennings.
Nýjasta
plata R. Kelly,
The Buffet, hefur
ekki selst vel,
en hann biðlaði
á dögunum til
aðdáenda sinna
að kaupa plötuna
og styrkja list
hans. | sgþ
Kynningar | Matur