Fréttatíminn - 15.01.2016, Blaðsíða 54
Fákafen 9 | Sími 581-1552 | www.curvy.is
280cm
98cm
Bláu húsin Faxafeni S. 588 4499 Opið mán.-fös. 11-18 lau. 11-16
Tískuvöruverslun fyrir konur
Leitið upplýsinga á auglýsingadeild
Fréttatímans í síma 531 3310 eða á
auglysingar@frettatiminn.is
Fréttatímanum
er dreift á heimili á
höfuðborgarsvæðinu
og Akureyri auk
lausadreifingar um land allt.
Dreifing með
Fréttatímanum á
bæklingum og fylgiblöðum
er hagkvæmur kostur.
Ert þú að huga
að dreifingu?
Leitið upplýsinga á auglýsingadeild
Fréttatímans í síma 531 3310 eða á
auglysingar@frettatiminn.is
Fréttatímanum
er dreift á heimili á
höfuðborgarsvæðinu
og Akureyri auk
lausadreifingar um land allt.
Dreifing með
Fréttatímanum á
bæklingum og fylgiblöðum
er hagkvæmur kostur.
Ert þú að huga
að dreifingu?
54 | fréttatíminn | Helgin 15. janúar–17. janúar 2016
listakonan þorgerður Ólafs-
dóttir opnar um helgina sýningu
sem byggir á safni af gömlum plast-
munum sem fundist hafa víða um
land. Þumalputtareglan um hvort
eitthvað teljist til fornminja er að
munir séu 100 ára. Listakonan veltir
upp spurningum um hverju ber að
safna og halda til haga. Hver ákveð-
ur hvað er rusl og hvað er fornmun-
ur? Sýningin opnar í Harbinger-gall-
eríi á laugardag, klukkan 17.
Er plast rusl eða
þjóðargersemi?
Melkorka Katrín Tómas-
dóttir hefur vakið athygli
fyrir ljósmyndirnar sínar og
listaverk. Hrár stíll hennar
í ljósmyndum og list er
laus við alla glansímynd og
glamúr.
Svanhildur Gréta Kristjánsdóttir
svanhildur@frettatiminn.is
Listamaðurinn Melkorka á erfitt
með að lýsa stílnum sínum en játar
að tíundi áratugurinn heillar hana
og að finna megi vott af rússnesk-
um „post-soviet“ stíl. Hún segir
glans og glamúr aldrei hafa heillað
sig og hennar helsta viðfangsefni
sé líkaminn þar sem líkamshár og
nekt fá að njóta sín. Aðspurð hvort
hún sé meðvituð um aðdáendur
sína sem líta upp til þess sem hún
er að gera á samfélagsmiðlum,
fer hún hjá sér. „Það er ákveðinn
hópur af yngra fólki sem virðist
fylgjast með mér sem er ótrú-
lega gaman. Kannski er fólk orðið
þreytt á þessum fullkomnu mynd-
um á samfélagsmiðlum, maður er
farinn að sjá í gegnum svoleiðis.“
Melkorka Katrín, kölluð Korka,
heitir í þjóðskrá Ingibjörg en geng-
ur undir listamannsnafninu Korki-
mon. Melkorka er í skiptinámi í
myndlist við Listaháskóla Íslands
en hún hefur búið í New York frá
12 ára aldri. Hún segir það hafa
mótað sig sem listamann. „Ég var
mikið ein fyrstu árin, New York er
stór borg og þetta var allt saman
nýtt fyrir mér. Ég hef aldrei verið
hluti af vinahópi og þrífst illa í
margmenni. Einveran varð til þess
að ég var stöðugt að fást við eitt-
hvað, skjóta myndbönd og teikna.
Eina af mínum bestu vinkonum,
Anna Maggý, er ljósmyndari og við
vinnum mikið saman. Sú vinátta
Hitaðu þig upp
fyrir Fóstbræðra
spurningakeppni
Spurningakeppni um grínþætina
Fóstbræður verður haldin á Húrra,
miðvikudaginn 20. janúar kl. 20.
Hér eru þrjár laufléttar spurning-
ar til að hita þig upp:
1 Hvað vinnur Siggi Litli Sörensen við á fullorðinsaldri?
2 Hvað heitir konan sem hringdi í persónulega trúbadorinn Helga
úr bankanum?
3 Hvaða orð vantar í lagatextann: „Svona er það, leggjum af stað,
í ____, lífið sjálft, sei sei já.“
1. Bílasali 2. Guðrún Guðmundsdóttir 3. Ævintýraferð
Fullkomnun er úrelt
Mynd | Rut Sigurðardóttir Melkorka Katrín
Úr seríunni „lesbian stepdad lll“.
og það samstarf hefur gert mikið
fyrir mig. Hjá okkur er allt leyfi-
legt í listinni og ekkert sem heldur
aftur að okkur. Ég hugsa ég klári
námið mitt hérna heima, aðstaðan
er frábær í skólanum og með mér
er fólk á öllum aldri. Það veitir mér
innblástur að sjá fólk hætta því
sem það er að gera og fara að búa
til list.“
Melkorka segist sjaldan byrja með
endi í huga. „Ég er sífellt að vinna í
einhverju og gleymi mér í því. Það
er ekki fyrr en ég er búin sem ég tek
eitt skref aftur á bak og reyni að átta
mig á því hvað ég hef skapað.“
„Womanhood as weapon“.