Fréttatíminn

Issue

Fréttatíminn - 15.01.2016, Page 54

Fréttatíminn - 15.01.2016, Page 54
Fákafen 9 | Sími 581-1552 | www.curvy.is 280cm 98cm Bláu húsin Faxafeni  S. 588 4499  Opið mán.-fös.  11-18  lau. 11-16 Tískuvöruverslun fyrir konur Leitið upplýsinga á auglýsingadeild Fréttatímans í síma 531 3310 eða á auglysingar@frettatiminn.is Fréttatímanum er dreift á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri auk lausadreifingar um land allt. Dreifing með Fréttatímanum á bæklingum og fylgiblöðum er hagkvæmur kostur. Ert þú að huga að dreifingu? Leitið upplýsinga á auglýsingadeild Fréttatímans í síma 531 3310 eða á auglysingar@frettatiminn.is Fréttatímanum er dreift á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri auk lausadreifingar um land allt. Dreifing með Fréttatímanum á bæklingum og fylgiblöðum er hagkvæmur kostur. Ert þú að huga að dreifingu? 54 | fréttatíminn | Helgin 15. janúar–17. janúar 2016 listakonan þorgerður Ólafs- dóttir opnar um helgina sýningu sem byggir á safni af gömlum plast- munum sem fundist hafa víða um land. Þumalputtareglan um hvort eitthvað teljist til fornminja er að munir séu 100 ára. Listakonan veltir upp spurningum um hverju ber að safna og halda til haga. Hver ákveð- ur hvað er rusl og hvað er fornmun- ur? Sýningin opnar í Harbinger-gall- eríi á laugardag, klukkan 17. Er plast rusl eða þjóðargersemi? Melkorka Katrín Tómas- dóttir hefur vakið athygli fyrir ljósmyndirnar sínar og listaverk. Hrár stíll hennar í ljósmyndum og list er laus við alla glansímynd og glamúr. Svanhildur Gréta Kristjánsdóttir svanhildur@frettatiminn.is Listamaðurinn Melkorka á erfitt með að lýsa stílnum sínum en játar að tíundi áratugurinn heillar hana og að finna megi vott af rússnesk- um „post-soviet“ stíl. Hún segir glans og glamúr aldrei hafa heillað sig og hennar helsta viðfangsefni sé líkaminn þar sem líkamshár og nekt fá að njóta sín. Aðspurð hvort hún sé meðvituð um aðdáendur sína sem líta upp til þess sem hún er að gera á samfélagsmiðlum, fer hún hjá sér. „Það er ákveðinn hópur af yngra fólki sem virðist fylgjast með mér sem er ótrú- lega gaman. Kannski er fólk orðið þreytt á þessum fullkomnu mynd- um á samfélagsmiðlum, maður er farinn að sjá í gegnum svoleiðis.“ Melkorka Katrín, kölluð Korka, heitir í þjóðskrá Ingibjörg en geng- ur undir listamannsnafninu Korki- mon. Melkorka er í skiptinámi í myndlist við Listaháskóla Íslands en hún hefur búið í New York frá 12 ára aldri. Hún segir það hafa mótað sig sem listamann. „Ég var mikið ein fyrstu árin, New York er stór borg og þetta var allt saman nýtt fyrir mér. Ég hef aldrei verið hluti af vinahópi og þrífst illa í margmenni. Einveran varð til þess að ég var stöðugt að fást við eitt- hvað, skjóta myndbönd og teikna. Eina af mínum bestu vinkonum, Anna Maggý, er ljósmyndari og við vinnum mikið saman. Sú vinátta Hitaðu þig upp fyrir Fóstbræðra spurningakeppni Spurningakeppni um grínþætina Fóstbræður verður haldin á Húrra, miðvikudaginn 20. janúar kl. 20. Hér eru þrjár laufléttar spurning- ar til að hita þig upp: 1 Hvað vinnur Siggi Litli Sörensen við á fullorðinsaldri? 2 Hvað heitir konan sem hringdi í persónulega trúbadorinn Helga úr bankanum? 3 Hvaða orð vantar í lagatextann: „Svona er það, leggjum af stað, í ____, lífið sjálft, sei sei já.“ 1. Bílasali 2. Guðrún Guðmundsdóttir 3. Ævintýraferð Fullkomnun er úrelt Mynd | Rut Sigurðardóttir Melkorka Katrín Úr seríunni „lesbian stepdad lll“. og það samstarf hefur gert mikið fyrir mig. Hjá okkur er allt leyfi- legt í listinni og ekkert sem heldur aftur að okkur. Ég hugsa ég klári námið mitt hérna heima, aðstaðan er frábær í skólanum og með mér er fólk á öllum aldri. Það veitir mér innblástur að sjá fólk hætta því sem það er að gera og fara að búa til list.“ Melkorka segist sjaldan byrja með endi í huga. „Ég er sífellt að vinna í einhverju og gleymi mér í því. Það er ekki fyrr en ég er búin sem ég tek eitt skref aftur á bak og reyni að átta mig á því hvað ég hef skapað.“ „Womanhood as weapon“.

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.