Fréttatíminn - 15.01.2016, Side 46
46 | fréttatíminn | Helgin 15. janúar-17. janúar 2016
auglýsingadeild fréttatímans
S. 531 33 00 | auglysingar@frettatiminn.isKynningar | Matur
Hægri skytta
Ólafur Stefánsson
332 landsleikir
Af flestum talinn besti leikmaður
sem við höfum átt.
Afburðamaður að öllu
leyti. Sem skytta,
leikstjórnandi og bestu
stoðsendingar hans voru
allt að því listrænar.
Það sem hefur einkennt
hann frá því hann var
ungur er að hann sökkvir sér í
hlutina og æfir sig þar til hann
hefur ná því sem hann ætlar
sér.
Besti íþróttamaður
Íslandssögunar. Einn af
fimm bestu leikmönnum
sem uppi hafa verið í
heiminum.
Les leikinn vel, sér
möguleikana, sér félagana
og hugsar næstu skref á
undan öðrum á vellinum.
Meistari í stoðsendingum.
Ómissandi leiðtogi sem leiddi
landsliðið að silfrinu á
Ólympíuleikunum. Sýnir og
sannar að aukaæfingin borgar
sig.
Frábær varnarmaður
og á sínum tíma fremsti
sóknarmaður veraldar.
Fjölbreyttur skotstíll
(ótrúleg úlnliðshreyfing)
og næmt auga fyrir gegnum-
brotum sem og línuspili gerir
hann að besta leikmanni
Íslandssögunnar.
Varamaður
Kristján Arason
245 landsleikir
Fluglæs á
leikinn og
klárlega í sama
flokki og Ólafur.
Í það minnsta einn
af fjórum bestu í heimi á
sinni tíð.
Vinstra horn
Alexander
Petersson
170 landsleikir
Frábær liðsmaður. Fórnfús,
áræðinn og harður af sér. Hefur
klárað orustur sem margur annar
hefði gefist upp á.
Annar eins eldmóður er
vandfundinn og því til
sönnunar er til dæmis
Álitsgjafar: Birna Ósk Hansdóttir, framleiðslustjóri RÚV, Edda Sif Pálsdóttir íþróttafréttamaður, Einar Jónsson þjálfari Stjörnunnar, Fanney Rúnarsdóttir, fyrrum handboltakona, Freyr Gígja Gunnarsson fréttamaður, Guðjón Guð-
mundsson íþróttafréttamaður, Guðjón Ingi Eiríksson bókaúgefandi, Harpa Melsted, fyrrum handboltakona, Magnús Agnar Magnússon, umboðsmaður og fyrrum handboltamaður og Rakel Þorbergsdóttir, fréttastjóri RÚV.
Keiluhöllin
Sportbar er
heimavöllur
EM í handbolta
Unnið í samstarfi við
Keiluhöllina í Egilshöll
Allir leikir Íslands á eM
í handbolta verða sýndir
á 15 risaskjám og yfir 60
sjónvarpsskjám í beinni
útsendingu í Keiluhöllinni
í egilshöll.
eftir breytingar í Keilu-
höllinni í egilshöll hafa
viðtökurnar verið gríðar-
lega góðar. Sportbarinn
hefur mælst vel fyrir og
hvert aðsóknarmetið af
fætur öðru hefur verið
slegið.
400 manns voru viðstadd-
ir beina útsendingu UFC
frá las Vegas í desember,
þegar gunnar nelson
barðist fram á síðustu lotu
og troðfullt hefur verið á
öllum stórleikjum í enska
boltanum.
„Stemningin sem
hefur myndast á beinum
útsendingum er oft alveg ótrúleg,“
segir Sigmar Vilhjálmsson, fram-
kvæmdastjóri Keiluhallarinnar.
„Það er svo miklu skemmtilegra
að upplifa beinar útsendingar innan
um annað fólk, þetta er eins nálægt
því og að vera upp í áhorfenda-
stúku.“
Keiluhöllin mun slá upp skemmti-
legum leik með Carlsberg, á meðan
á eM í handbolta stendur yfir.
„Þeir sem mæta á Sportbarinn
geta giskað á úrslit leiksins og þeir
sem giska á rétt úrslit fá 8 stóra
bjóra að launum sem hægt er
að njóta á næstu 4 mán-
uðum. Þeir sem giska á
réttan markamun munu
fá einn stóran af krana!,“
segir Sigmar og telur
næsta víst að það verður
mikil stemning í húsinu.
„allir landsleikir Íslands
verða líka sýndir á risa
skjám yfir öllum keilubraut-
um, eða alls 11 risaskjáir.
Þannig að þeir sem vilja gera
sér glaðan dag með fjölskyld-
unni þurfa ekki að missa af
einni mínútu af leiknum á
meðan öll fjölskyldan leikur
sér í keilu!“
Ótrúlega góð
stemning myndast
á beinum útsend-
ingum frá íþróttavið-
burðum í Keiluhöll-
inni í Egilshöll.
Lína
Þorgils Óttar
Mathiesen
247 landsleikir
Byggður eins og veðhlaupahestur
og með hausinn í lagi líka.
Var
líklega
besti línumað-
ur í heimi
þegar hann
var upp á sitt
besta. Það
sem hann
hafði fram yfir Geir var að
hann gat fúnkerað sem leik-
stjórnandi, hann stjórnaði
inni á vellinum án þess að
menn vissu af honum.
Passaði vel upp á sjálfan
sig. Fyrir Ólympíuleikana
88 var gerð rannsókn þar sem
kom í ljós að Þorgils var í jafn
góðu formi og bestu skíða-
göngumenn Noregs.
Varamaður
Geir Sveinsson
340 landsleikir
Sterkur
varnarmað-
ur og firnasterk-
ur á línunni.
Yfirvegaður
leiðtogi.
Superman-atriðið fræga.
Synd hvað hann hefur verið
óheppinn með meiðsli.
Skotfljótur, góður í
hraðaupphlaupum,
frábær í vörn.
Algjört vélmenni. Einn
besti varnarmaður sem
við höfum átt.
Tuðar aldrei, hvorki í
dómurum, andstæðing-
um eða samherjum sama á
hverju gengur.
Einhver staðfastasti
leikmaður sem við
höfum átt, hvort sem það
snýr að því að klára leik
kinnbeinsbrotinn eða
stöðva hraðaupphlaup
andstæðinganna.
Varamaður
Valdimar
Grímsson
271 landsleikur
Hafði
óbilandi trú
á sjálfum sér. Það
voru engar hindranir hjá
honum, sama í hverju hann
lenti. Hæfilega ófyrirleit-
inn.
Áræðnasti og kannski
markagráðugasti
landsliðsmaður okkar.