Fréttatíminn - 15.01.2016, Side 61
skólAjógúrT
Skólajógúrt er nú sykurminni og
uppfyllir viðmið Skráargatsins um
sykurmagn í jógúrt. Jógúrtin er afar
kalkrík, inniheldur trefjar og fæst
núna einnig í stærri umbúðum.
Veldu það sem hentar
þinni fjölskyldu.
HollArI
Í fjÖLskyLdusTÆRÐ
NÝJUN
G
1 LÍTRA
UMBÚ
ÐIR
BETRI
KAUP
HV
ÍT
A
HÚ
SÍ
Ð
/ S
ÍA
| 61fréttatíminn | Helgin 15. janúar-17. janúar 2016
Vill ekki
ofbeldi og
blótsyrði
Apple TV Tangerine er bandarísk bíó-
mynd um vændiskonurnar Sin-Dee og
Alexöndru. Þegar önnur þeirra kemst á
snoðir um að kærasti hennar sé henni
ótrúr leggja stöllurnar upp í leit að
honum sem leiðir þær um allt Tinsel-
town-hverfi Los Angeles.
Myndin hefur vakið athygli fyrir að vera
raunsæ sýn inn í heim þeirra Sin-Dee
og Alexöndru og hafa leikkonurnar tvær
hlotið mikið lof fyrir frammistöðu sína í
myndinni. Einnig er myndatakan í Tan-
gerine óvenjuleg, en myndin er öll tekin
upp á iPhone 5 snjallsíma.
Netflix Escape from a Nazi Death Camp
er heimildarmynd frá 2014 um flótta
um 300 fanga úr fangabúðum nasista
í Sobibor. Flóttinn var árangursríkasti
flótti fanga á tíma Þriðja ríkisins, en eru
nú aðeins örfáir enn á lífi sem tóku þátt
í honum. Myndin er þeirra síðasta tæki-
færi til að segja sína mögnuðu sögu.
Podcast vikunnar Í hlaðvarpsþáttunum
Reply All er talað við allskyns fólk sem
á það sameiginlegt að internetið hefur
haft áhrif á líf þess. Einstaklingar sem
hafa það að atvinnu sinni að kaupa
og selja lén, aðrir sem misstu vinnuna
vegna samfélagsmiðla og hinir ýmsu
sem internetið hefur komið upp um.
Þættirnir koma út einu sinni í viku og
eru 20-30 mínútna langir. Þáttastjórn-
endurnir eru þaulvanir útvarpsmenn,
skemmtilegt teymi, sem glæða þættina
lífi með húmor og fræðslu.
ég hef ekki átt sjónvarp í ár
svo ég hef ekkert getað séð nýja
þætti, en vinur minn var akk-
úrat að koma með nýtt sjón-
varp til mín í dag, en kemur því
ekki í gang. Ef hann lagar það
get ég horft á sjónvarpið þegar
ég er í fríi á laugardögum. Áður
horfði ég oft á sakamálaþætti
eins og Midsomer Murders í
sjónvarpinu, þeir eru góðir því
það er ekki of mikið ofbeldi eða
blótað í þeim. Ég er ekki hrifin
af þáttum sem eru með mikið af
því. Ég mæli líka með þáttunum
um Hercules Poirot eftir bók-
um Agötu Christie, og reyndar
flestum myndum eftir bókunum
hennar.
Netflix.The Culture High er beitt heimildamynd um herferð yfirvalda Bandaríkjanna
gegn kannabisneyslu þjóðarinnar. Saga hennar er rakin allt frá því Nixon Bandaríkja-
forseti lýsti yfir stríði á hendur fíkniefnum 1971 til dagsins í dag, þegar stríðið virðist
tapað enda hefur neytendum kannabisefna ekki fækkað síðan þá. Myndin hefur
fengið fjölda tilnefninga til verðlauna og fengið frábæra dóma.
Sófakartaflan
Francisca Mwansa
Tapað stríð
Kvikmyndaperla
tekin upp á iPhone
Flótti úr
fangabúðum
Internetið
gefur og tekur