Fréttatíminn

Eksemplar

Fréttatíminn - 15.01.2016, Side 64

Fréttatíminn - 15.01.2016, Side 64
FRÁ 11.30–14.30 HÁDEGIS TRÍT 2ja rétta 2.990 kr. 3ja rétta 3.790 kr. FORRÉTTUR BLEIKJA Á SALTBLOKK FRÁ HIMALAYA Hægelduð bleikja, yuzu mayo, truŽu mayo, stökkt quinoa, epli HREFNA Skarlottulauks-vinaigrette, stökkir jarðskokkar NAUTARIF 24ra tíma hægelduð nautarif, reyktur Ísbúi, gulrætur, karsi AÐALRÉTTUR LAMBAKÓRÓNA Grillaðar lambahryggsneiðar, sveppa „Pomme Anna“ SKARKOLI Sjávargras, grænn aspas, blóðappelsínu- og lime beurre blance JARÐARBERJA YUZU-SALAT Spínat, yuzu tónuð jarðaber, parmesan kex, ristuð graskersfræ, pipar- og mynturjómaostur EFTIRRÉTTUR KARAMELLU CRANKIE Karamellumousse, pistasíu-heslihnetubotn, karamellukaka SÚKKULAÐI RÓS Súkkulaðimousse, hindberjahlaup, Sacherbotn ARPÍKÓSU MASCARPONE Apríkósuhlaup, karamellukrem, pralín, mascarponemousse, Sacherbotn ÞÚ VELUR ÚR ÞESSUM GIRNILEGU RÉTTUM Austurstræti 16 Sími 551 0011 apotek.is ÞÚ ÁTT SKILIÐ SMÁ TRÍT Íslenskur veitingastaður á besta stað í 2. hverfi í París. „Frakkar eru svolítið erfiðir og halda fast í hefðirnar en yngri kyn- slóðin vill sjá eitthvað nýtt eins og þetta,“ segir Eva Gunnarsdóttir sem á næstu vikum opnar veit- ingastaðinn Lemon í París. Eva er 36 ára, þriggja barna móðir sem kynntist manninum sínum í fríi í París fyrir áratug og var flutt út til hans tveimur mán- uðum síðar. Hún rekur Lemon í París ásamt fjölskyldu sinni og tengdafjölskyldu. „Það hefur alltaf verið draumur minn að eiga veitingastað,“ segir Eva. Lemon verður í 2. hverfi, rétt fyrir ofan göngugötuna Rue Montorgueil þar sem mikið af fólki er á ferðinni. „Þetta er alveg svakalega skemmti- legt hverfi sem er að breytast hratt,“ segir hún. Þó matarúrvalið í París sé ekk- ert slor hefur Eva ekki áhyggjur af eftirspurn eftir heilsusamlokum og djúsum Lemon. „Þetta er klár- lega eitthvað sem vantar í París, eitthvað ferskt, flott og gæjalegt. Svo skemmir ekki fyrir að þetta er íslenskt – þegar fólk hugsar til Íslands hugsar það um eitthvað ferskt, hreint og gott.“ | hdm Krakka Gaman eru grínþættir sem hópur krakka skrifar, leikur og framleiðir sjálfur. Í hópnum Krakka Gaman eru átta krakkar á aldrinum 9-16 ára sem síðastliðið ár hafa gert sjö grínþætti og birt á Youtube. Gerð myndbandanna kemur þannig til að krakkarnir í hópnum eru börn vinafólks sem oft kemur saman og heldur matarboð. Í löngum boð- um, þar sem spjallað er fram eftir kvöldi, tóku krakkarnir til þess ráðs að búa til þætti til að stytta sér stundir. Krakkagaman-hópurinn kemur nú alltaf saman þegar slík matar- boð eru haldin. Krakkarnir byrja á að koma með hugmyndir að atriðum og skrifa handrit. Svo eru þau tekin upp og allir skiptast á að leika og hjálpast að með upptöku hljóðs. Eggert Geir kýs heldur að vera fyrir aftan myndavélina og sér um myndatöku, klippingu og eftirvinnslu. Eggert hefur haft áhuga á framleiðslu kvikmynda í fjögur ár og pabbi hans sýndi honum klippiforrit í tölvunni. Síðan hefur hann safnað sér fyrir kvikmyndavél, hljóðnemum og öðru til að framleiða Krakka Gaman og annað efni. Svo virðist vera að hópurinn sé farinn að vekja athygli fyrir þætt- ina og er framtíð hans björt. Margrét Vilhelmína er eina stúlkan í hópnum, eins og er, og segir að ókunnugir krakkar hafi stundum komið að máli við sig vegna þáttanna. „Það hafa einhverjir krakkar sagt við mig: „Hey, ert þú ekki stelpan í Krakkagamni?“ Það eru ekki endilega krakkar sem ég þekki, bara krakkar í sundi og svoleið- is.“ Hópurinn er rétt að byrja og langar að gefa út DVD-disk þegar hann er komin með 10 þætti og hefja svo framleiðslu á annari seríu. Þættirnir eru nú sjö talsins, en Krakka Gaman 8 er væntanlegt á Youtube. | sgþ Lemon opnar í París Eva Gunnarsdóttir og Jón Arnar við Lemon sem opnaður verður í París í lok febrúar eða byrjun mars. Gera grínþætti í matarboðum Framleiðsla grínþáttanna Krakka Gamans er einstaklega metnaðarfull. Margrét Ketill Dagur Konráð Kolbeinn Flóki Þeir Dragon og Tiger eru naggrísabræður sem eru að hasla sér völl í leiklistarbransanum. Aðdáendur þeirra hafa séð þeim bregða fyrir í grínþáttunum Tólf núll núll og á Twitter aðgangi eiganda þeirra, @sveppalicio- us. Þrátt fyrir að ættartré þeirra liggi ekki fyrir þykja þeir svo líkir að þeir hljóti að vera bræður. Að sögn að- standenda naggrísanna eru þeir jafn líkir í útliti og þeir eru ólíkir að lundarfari. Dragon þykir hvers manns hugljúfi og elskar að hafa athyglina á sér, á meðan Tiger er feiminn og hleypur frekar í burtu en að vera í sviðsljósinu. Þegar eigandi naggrísanna sá DJ Flugvél og Geimskip auglýsa eftir ólöglegum dýrum í myndband sitt fann hann á sér að naggrísirnir væru tilvaldir í slíkt mynd- band og sendi tónlistarkonunni mynd af þeim og sagði henni frá ferli þeirra. Hún heillaðist af útliti bræðr- anna og nú eru þeir stjörnurnar í nýjasta myndbandi hennar. | sgþ Líf mitt sem naggrís Dragon og Tiger eru á barmi heimsfrægðar Sjarmi naggrísanna þykir óumdeildur og er vert að fylgjast með ferli þeirra þróast. 64 | fréttatíminn | Helgin 15. janúar–17. janúar 2016

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.