Læknablaðið - 01.01.2016, Qupperneq 47
LÆKNAblaðið 2016/102 47
U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R
Vigdís
Stefánsdóttir
Erfðaráðgjafi
á Landspítala
vigdisst@landspitali.is
Erfðafræði er sífellt mikilvægari þáttur
í allri heilbrigðisþjónustu og þó hún sé
kennd í grunnnámi lækna, er hún ekki
mjög fyrirferðarmikill hluti námsins. Í
daglegum praxís kemur oft upp spurning
um hvort rétt sé að skoða frekar erfðaþætti
og þá getur verið gott að hafa aðgengilegar
upplýsingar.
Í ársbyrjun 2014 fékk hópur fagfólks í
erfðafræði frá 6 Evrópulöndum (Bretlandi,
Hollandi, Tékklandi, Íslandi, Ítalíu og
Spáni) Erasmus-styrk til að búa til fræðslu-
og kennsluefni í erfðafræði. Stjórnandi
verkefnisins af hálfu
Plymouth-háskóla er Heather Skirton,
formaður European Board of Medical
Genetics. Með henni eru þeir Jackson
Leigh kennari í lífvísindum og Peter Lunt
sem hefur áratuga reynslu í erfðafræði,
kennslu, rannsóknum og klíník. Frá
Hollandi koma Isa Houwink heimilis-
læknir og Martina Cornel í VU University
Medical Centre í Amsterdam. Frá Tékk-
landi koma Vaclava Curtisova sem er
barna- og erfðalæknir og Milan Macek
sem er reyndur vísindamaður, stjórnandi
erfðarannsóknarstofu og erfðalæknir.
Frá Íslandi kemur undirrituð, Vigdís
Stefánsdóttir erfðaráðgjafi og formaður
Mannerfðafræðifélags Íslands. Frá Ítalíu
er Daniela Turchetti erfðafræðingur með
sérþekkingu á erfðafræði krabbameina og
frá Portúgal Milena Paneque erfðaráðgjafi
og sálfræðingur.
Á vefinn primarycaregenetics.org er
þegar komið talsvert fræðsluefni og bætist
stöðugt við. Það sem þegar er komið er á
ensku en verður á öllum tungumálunum
sex og staðfært fyrir hvert land. Þar er
einnig vísun í kennsluefni og próf sem
vistað er hjá Plymouth-háskóla. Kennslu-
efnið er einkum ætlað læknum í grunn-
þjónustu en einnig hjúkrunarfræðingum
og ljósmæðrum og öðrum sem áhuga hafa
á að kynna sér erfðafræði betur. Þessi próf
gefa endurmenntunareiningar eftir lengd,
stysta eining gefur eina klukkustund og
lengsta prófið tvær.
Fræðslu- og kennslueiningarnar fjalla
um meðgöngutengd vandamál, hugsanlegt
arfgengi krabbameina, hjartasjúkdóma,
erfðasjúkdóma hjá börnum og efnaskipta-
sjúkdóma, svo eitthvað sé nefnt.
Kennsluefnið byggir á ákveðnum til-
fellum en einnig eru tiltekin rauð flögg
eða atriði sem gott er að hafa í huga þegar
verið er að meta sjúkling og leiðir til grein-
ingar á hans vandamálum. Von þeirra
sem standa að verkefninu er að sem flestir
nýti sér þessa ókeypis fræðslu og endur-
menntun.
Slóðir í kennsluefnið verða á
primarycaregenetics.org, wvef Mann-
erfðafræðifélags Íslands – mannis.is og
gen.is.
Erfðafræðikennsla fyrir lækna
og annað fagfólk í grunnþjónustu
Vefur www.primarycaregenetics.org
Fræðsluefni um krabbamein – opið öllum.
Á ensku eins og er en verður einnig á
íslensku.
Aðeins þarf að skrá sig (ókeypis).
https://open.plymouth.ac.uk/course/view.
php?id=4
Læknadagar eru
í góðum höndum
R Á Ð S T E F N U R | F U N D I R | V I Ð B U R Ð I R
Skógarhlíð 12
105 Reykjavík
Sími 585-4300
conferences@icelandtravel. is | conferences.is
conferences.is
Iceland Travel Ráðstefnur hefur haldið utan um skipulag Læknadaga
til margra ára.
Iceland Travel Ráðstefnur sérhæfir sig í skipulagningu, undirbúningi og
utanumhaldi ráðstefna og funda.
Nánari upplýsingar um þjónustu okkar er hægt að nálgast í
síma 585-4200 eða á heimasíðunni www.conferences.is. FRÁ ÖLDUNGADEILD
Fyrirlesari 3. febrúar á fundi öldungadeildar verður Ólafur Gíslason, listfræðingur.
Erindi hans nefnist Mannslíkaminn í myndlistinni.
Fundir eru jafnan fyrsta miðvikudag hvers mánaðar
og hefjast kl. 16, en kl. 15.30 fáum við okkur kaffi og vínarbrauð.