Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.02.2016, Side 17

Læknablaðið - 01.02.2016, Side 17
LÆKNAblaðið 2016/102 77 Inngangur Hjólreiðar hafa notið aukinna vinsælda undanfarin ár erlendis.1,2 Þrátt fyrir að hjólreiðar virðist verða sífellt algengari samgöngumáti á höfuðborgarsvæðinu liggja ekki fyrir nákvæmar tölur um fjölda þeirra sem stunda hjólreiðar á svæðinu. Í ferðavenjukönnun sem fram­ kvæmd var árið 2002 voru 0,3% ferða fólks á höfuð­ borgarsvæðinu farnar á reiðhjólum en 3,8% í könnun sem gerð var árið 2011, er þetta rúmlega 12­földun á notkun reiðhjóla á því tímabili.3 Í átakinu Hjólað í vinn- una voru alls 2510 þátttakendur árið 2004 þar sem hjól­ aðir voru 93.557 km en árið 2011 tóku yfir 11.000 manns þátt og hjóluðu 830.486 km.4 Því bendir margt til þess að hjólreiðamönnum á höfuðborgarsvæðinu fari hratt fjölgandi líkt og erlendis. Þá er það yfirlýst stefna Reykjavíkurborgar að þrefalda hlutdeild hjólreiða í samgöngum í borginni.5 Í ljósi þessarar þróunar er mikilvægt að meta áhrif hennar á slysatíðni reiðhjóla­ manna. Opinber skráning reiðhjólaslysa er hjá Samgöngu­ stofu og byggir á lögregluskýrslum um umferðarslys. Í gagnabanka Samgöngustofu voru 317 tilfelli skráð á árunum 2005­2010.6 Í upplýsingum frá Samgöngustofu kemur fram að árið 2005 slösuðust 25 við hjólreiðar en árið 2010 reyndust þeir 82 talsins.7 Eru því vísbend­ ingar um fjölgun reiðhjólaslysa í umferðinni á Íslandi á því tímabili. Inngangur: Hjólreiðar verða sífellt vinsælli samgöngumáti á Íslandi. Opinber skráning reiðhjólaslysa byggir á lögregluskýrslum en minni reið- hjólaslys eru líklega ekki tilkynnt til lögreglunnar þar sem önnur ökutæki eða einstaklingar koma ekki við sögu. Því er hugsanlegt að tíðni reið- hjólaslysa sé vanskráð. Markmið þessarar rannsóknar var því að kanna faraldsfræði slasaðra í reiðhjólaslysum sem leita til bráðamóttöku Land- spítala vegna áverka. Efniviður og aðferðir: Rannsóknin náði til allra sem leituðu á bráðamót- töku Landspítalans vegna reiðhjólaslyss frá 1. janúar 2005 til 31. desemb- er 2010. Allar sjúkraskrár voru yfirfarnar og eftirfarandi breytur skráðar: kyn, aldur, ár, mánuður slyss/áverka, hjálmanotkun, slysagreiningar, alvar- leiki áverka og innlagnir. Hjá innlögðum voru aukalega eftirfarandi breytur skráðar: legudagar á gjörgæslu og á legudeildum, myndgreiningarrann- sóknir og aðgerðir. Niðurstöður: Alls voru 3472 komur á bráðamóttöku vegna reiðhjólaslysa, þar af 68,3% karlar en 31,7% konur. Fjöldi slasaðra á ári er því um 579. Meðalaldur slasaðra reyndist 22,6 ár (1-95 ára). Flestir slasast (72,4%) við leik eða tómstundaiðju og í 45,7% tilfella áttu slysin sér stað við íbúðarsvæði utandyra. Flest slysin voru mánuðina frá maí til septem- ber eða 71,3%. Orsök slysa var í 44,0% tilvika skráð sem lágt fall eða stökk. Hjálmanotkun var einungis skráð í 14,2% tilvika. Af líkamssvæðum áverkastigsins reyndist áverki oftast á efri útlim eða í 47,1% tilfella. Lítill áverki (ISS ≤3 stig) (áverkaskorið ISS: Injury Severity Score) reyndist hjá 65,6% sjúklinga og 29,3% sjúklinga voru með meðaláverka (ISS 4-8 stig). Alls lögðust 124 sjúklingar inn og meðallegutími var 5 dagar. Enginn lést á rannsóknartímabilinu. Ályktanir: Reiðhjólaslysum hefur fjölgað lítillega á rannsóknartímabilinu en fjölgun slysa virðist minni en fjölgun hjólreiðamanna. Fleiri karlar en konur leita á sjúkrahús vegna afleiðinga reiðhjólaslysa og meirihluti slas- aðra er ungur að árum. Slysin eiga sér yfirleitt stað á vorin og á sumrin. Flestir slasast lítið en 3,6% slasaðra þurfti að leggja inn á Landspítala. ÁGRIP Mörg hjólreiðaslys eru ekki tilkynnt til lögreglunnar þar sem önnur ökutæki eða einstaklingar koma ekki við sögu í slysinu. Í erlendum rannsóknum hafa allt að 90% reiðhjólaslysa ekki verið skráð í gagnagrunna lögreglu og líklegt er að hið sama eigi við um skráningu lögreglu hér á landi.1,8,9 Brýnt er því að afla nánari upplýsinga um reiðhjólaslys til að meta frekar umfang og alvarleika þeirra. Markmið þessarar rannsóknar var að kanna faralds­ fræði slasaðra í reiðhjólaslysum sem leita til bráðamót­ töku Landspítalans vegna áverka. Efniviður og aðferðir Rannsóknin var afturskyggn og náði til allra sem leituðu á bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi vegna áverka eftir reiðhjólaslys frá 1. janúar 2005 til 31. desember 2010. Undir reiðhjólaslys falla öll slys sem hljótast af notkun reiðhjóls. Ekki voru í úrtakinu slys í tengslum við þrí­ hjól eða hlaupahjól né heldur tilfelli þar sem reiðhjól olli slysi án þess að vera í notkun, til dæmis ef það féll á viðkomandi í geymslu. Leitað var rafrænt að reiðhjóla­ slysum í bæði norræna skráningarkerfi Landspítala um ytri orsakir áverka (NOMESCO) og í sjúkraskrám Land­ spítala að orðinu reiðhjól, hjól og hjálmur. Allar sjúkra­ skrár voru yfirfarnar og eftirfarandi breytur skráðar: Greinin barst 10. ágúst 2015, samþykkt til birtingar 5. janúar 2015 Höfundar hafa útfyllt eyðublað um hagsmunatengsl. Komur slasaðra á bráðamóttöku Landspítala eftir reiðhjólaslys árin 2005­2010 Ármann Jónsson1 læknir, Sævar H. Lárusson2 verkfræðingur, Ágúst Mogensen2 afbrotafræðingur, Hjalti Már Björnsson1,3 læknir, Brynjólfur Á. Mogensen1,2,3 læknir 1Bráðamóttöku Landspítala, 2Rannsóknarnefnd samgönguslysa, 3læknadeild Háskóla Íslands. Fyrirspurnir: Hjalti Már Björnsson bráðalæknir hjaltimb@landspitali.is http://dx.doi.org/10.17992/lbl.2016.02.65 R A N N S Ó K N

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.