Fréttatíminn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttatíminn - 24.06.2016, Qupperneq 4

Fréttatíminn - 24.06.2016, Qupperneq 4
4 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 24. júní 2016 alla föstudaga og laugardaga Sjónvarp Fram undan er þaulseta fyrir framan sjónvarpið um helgina fyrir þá sem hafa bæði áhuga á pólitík og fótbolta. Fyrir utan venjulega fréttatíma bjóða sjónvarpsstöðvarnar upp á sextán klukkutíma af beinum útsendingum frá leikjum frá laugardegi til mánudagskvölds og 12 klukkutíma af kappræðum og kosningasjónvarpi. Samtals eru þetta 28 klukkustundir á rétt rúmlega þremur sólarhring- um; frá kvöldinu í kvöld þegar kappræður hefjast í Ríkissjónvarp- inu og þar til f lautað verður til leiksloka í leik Íslands og Englands í Nice á mánudagskvöldið. Ef við gerum ráð fyrir að tve- ir leikir fari í framlengingu og að áhugasamir horfi í korter á EM- -stofuna og líka á kvöldfréttatíma sjónvarpsstöðvanna þá má reikna með að hinir áhugasömustu muni sitja fyrir framan sjónvarpið í um 33 klukkustundir, frá 18.30 í kvöld og fram undir klukkan 21 á mánu- daginn. Ef við drögum frá 8 tíma svefn á hverri nóttu þá munu tveir þriðju hlutar vökutímans fara í áhorf á fót- bolta og forsetakosningar. Viðskipti Framleiðslufyrir- tækið Zik Zak er farið í þrot. Kvikmyndaframleiðslufyrirtæk- ið Zik Zak hefur verið úrskurðað gjaldþrota, samkvæmt tilkynningu í Lögbirtingablaðinu sem birt var í gær. Fyrirtækið hefur verið starf- andi í sextán ár og framleitt á ann- an tug kvikmynda. Fyrsta mynd fyrirtækisins var myndin Fíaskó sem var jafnframt fyrsta kvikmynd Ragnars Bragasonar leikstjóra sem er hugsanlega þekktastur fyrir Vaktarseríurnar svokölluðu. Zik Zak framleiddi einnig kvikmynd- ir Dags Kára, meðal annars Nóa Albínóa og The Good Heart. Stutt- myndin, Síðasti bærinn í dalnum, var einnig framleidd af fyrirtæk- inu, en myndin var tilnefnd til Ósk- arsverðlauna. Helstu aðstandendur fyrirtækis- ins eru þeir Þórir S. Sigurjónsson og Skúli Malmquist. Ekki náðist í þá við vinnslu fréttarinnar. -vg Zik Zak leggur upp laupana Sjónvarpshelgin mikla 28 klukkustundir af kosningum og fótbolta Sjónvarpsdagskrá hinna áhugasömustu Föstudagur 18.30 Kvöldfréttir Stöðvar 2 19.00 Kvöldfréttatími Ríkissjónvarpsins 19.55 Kappræður forsetaframbjóðenda Laugardagur 13.00 Sviss – Portúgal 16.00 Wales – Norður Írland 18.30 Kvöldfréttir Stöðvar 2 19.00 Króatía – Portúgal 19.00 Kvöldfréttir Ríkissjónvarpsins 19.10 Kosningasjónvarp Stöðvar 2 22.00 Kosningavaka Ríkissjónvarpsins Sunnudagur 12.00 Aukafréttatími Stöðvar 2 12.00 Aukafréttatími Ríkissjónvarpsins 13.00 Frakkland – Írland 16.00 Þýskaland – Slóvakía 18.30 Kvöldfréttir Stöðvar 2 19.00 Ungverjaland – Belgía 19.00 Kvöldfréttir Ríkissjónvarpsins Mánudagur 16.00 Ítalía – Spánn 18.00 Kvöldfréttir Ríkissjónvarpsins 18.30 Kvöldfréttir Stöðvar 2 19.00 Ísland – England Þórir S. Sigurjónsson var annar eigenda fyrirtækisins, en hann starfar enn við framleiðslu kvik- mynda erlendis. „Hoppaði í loftið og gólaði af gleði“ Myndlist Egill Sæbjörns- son fer fyrir hönd Íslands á Feneyjatvíæringinn á næsta ári. Verkið mun hann vinna í samvinnu við tröll sem hann kynntist fyrir hálfu ári. „Ég hoppaði upp í loftið og gólaði af gleði og dansaði um herbergið,“ segir Egill Sæbjörnsson aðspurður um viðbrögð sín þegar í ljós kom að hann færi fyrir hönd Íslands á Fen- eyjatvíæringinn. „Við sem komum að lokum til greina vorum búin að bíða í tvær vikur eftir niðurstöðum svo við vorum orðin mjög spennt. Það var búið að kynda mann svo lengi. En þetta er bara rosalegt.“ Aðspurður um verkið segir Eg- ill það verða spes því að því komi tröll sem hann kynntist fyrir hálfu ári. „Tröllin vita ekkert mjög mik- ið um mannlegt samfélag en það eru samt þau sem eru að fara til Feneyja. Þau hafa verið að fylgjast með mér gera myndlist og prófa að gera eins og það hefur verið mjög gaman. Þau eru mjög stór og skapmikil og með miklar langan- ir og vildu endilega gera sýningu með mér enda eru þau rosalegar frekjur. Ég gafst bara upp og leyfði þeim að vera með í þessu líka, ég mun hjálpa þeim og halda utan um þetta.“ Og hvernig leið þeim að heyra að þið væruð á leið til Feneyja? „Þau voru rosalega glöð. En þau eru líka svo gráðug í að komast og gera þetta, það er eiginlega hrikalegt. En þetta verður rosalega skemmtilegt, það sem skemmtileg- asta sem ég hef komist í.“ | hh Dómsmál Lögmaðurinn Helga Vala Helgadóttir segir of mörg mál látin niður falla og slíkt sé beinlínis vand- ræðalegt þegar kemur að kynferðisbrotum. Valur Grettisson valur@frettatiminn.is „Lögmenn eiga að láta reyna meira á þetta í einkamálum,“ segir lög- maðurinn Helga Vala Helgadóttir varðandi það að fara í einkamál í kjölfar árásarmála sem hafa verið látin niður falla hjá lögreglu eða saksóknara. Slík mál eru í bígerð hjá lögmannsstofu Helgu Völu, en að sögn Helgu er það réttlætis- kenndin sem drífur fólk áfram til þess að sækja slík einkamál. Eftir því sem Fréttatíminn kemst næst eru 11 ár liðin síðan einkamál var höfðað á svipuðum forsendum, en þá höfðaði kona einkamál gegn þremur mönnum sem áttu að hafa nauðgað henni. Í fyrstu kærði hún málið til lögreglu, en það var að lokum látið niður falla hjá ríkissak- sóknara þar sem það þótti ekki lík- legt til sakfellingar. „Það eru alveg ofboðslega mörg mál látin niður falla,“ segir Helga Vala og bætir við að það sé mjög hátt hlutfall þegar kemur að kyn- ferðisbrotum. „Það er vandræða- legt hvað það fara fá mál áfram í þeim málaflokki og ég vil meina að þegar dómarar fá ekki nauðsynlega reynslu til þess að skoða afleiðingar og viðbrögð brotaþola, eða hegðun hinna kærðu í kjölfar brota, þá sé ekki að finna nægilega mikla breidd í málunum sem fara fyrir dóminn,“ segir Helga Vala. Hún telur að ákæruvaldið, hér- aðssaksóknari og ríkissaksóknari, séu allt of ragir við að láta á reyna að gefa út ákærur í brotaflokknum, og það komi í raun niður á réttar- kerfinu. Þannig sé sakfellingarhlut- fall í ofbeldismálum sem fara fyrir dóm afar hátt, en það segir þó að- eins hálfa söguna, enda aðeins lít- ill hluti allra kærðra ofbeldisbrota sem ná svo langt sem inn í dómsali landsins. Það var síðast árið 2005 sem kona sigraði í hæstarétti þar sem hún fór í mál við þrjá karlmenn sem áttu að hafa nauðgað henni í sumar- bústað. Kærurnar voru látnar niður falla þar sem málið þótti ekki líklegt til sakfellingar. Konan sigraði hins- vegar í einkamálinu, bæði í héraði og hæstarétti. Var mönnunum gert skylt að greiða henni rúma milljón í skaðabætur. Helga Vala segir að sönnunarkraf- an í einkamálum sé minni en í saka- málum en bótakrafan í slíkum mál- um er sambærileg og í sakamálum – og hleypur oft á milljónum. Aðspurð hvað drífi brotaþola áfram til þess að fara í einkamál, svarar Helga Vala: „Tilgangurinn er alltaf sá að fá einhverskonar rétt- læti.“ Hún segir ennfremur að það sé ekki útilokað að farið verði í einka- mál vegna eltihrellamála en, eins og Fréttatíminn hefur fjallað um, þá eru slík mál oft afar þung í vöfum þegar kemur að því að ákæra í þeim og oftar en ekki látin niður falla. Lögmaður vill láta reyna meira á einkamál þegar réttarkerfið bregst Undirbýr einkamál vegna kynferðisbrots Helga Vala Helgadóttir vill láta reyna meira á einkamál þegar réttarkerfið bregst Mynd | Hari Það eru alveg ofboðslega mörg mál látin niður falla. Egill Sæbjörnsson og frek tröll munu fara á Feneyjatvíær- inginn á næsta ári. „Perkele! Útlendingastofnun neitar mér um ríkisborgararétt, í bili a.m.k.! Og ég fæ ekki að kjósa á laugardag. Þetta segir Lena Nyberg, finnsk kona, sem hefur verið búsett á Íslandi í 30 ár. „Vegna þess að ég fór í skiptinám til Finnlands í 6 mánuði fyrir tveim árum telst ég ekki hafa búið hér nógu lengi til að fullnægja skilyrðum um ríkis- borgararétt,“ segir hún á Facebook- síðu sinni. Lena segir að lögfræðingar Útlendingastofnunar telji að lögheim- ili og aðsetur sé það sama. „Ég borg- aði hér þó bæði skatta og útsvar þessa mánuði sem ég var úti en það virðist ekki skipta máli,“ segir Lena sem benti sjálf á það í umsókninni að hún hefði farið í skiptinám með þessum afleiðing- um. | þká Útlendingastofnun Neitað um ríkisborgararétt eftir 30 ára búsetu Lena Nyberg segir að lögfræðingar Útlendingastofn- unar telji að lögheimili og aðsetur sé það sama.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.