Fréttatíminn

Útgáva

Fréttatíminn - 24.06.2016, Síða 8

Fréttatíminn - 24.06.2016, Síða 8
8 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 24. júní 2016 Siemens kæliskápar á sumartilboði. Gildir til 24. júní eða meðan birgðir endast. Kæliskápur KG 36VUW20 Hvítur, 186 sm. Útdraganleg „crisper- Box“- skúffa sem tryggir lengur ferskleika grænmetis og ávaxta. LED-lýsing. „lowFrost“-tækni: Lítil klakamyndun. Stór „bigBox“- frystiskúffa. Hraðfrysting. H x b x d: 186 x 60 x 65 sm. Tilboðsverð: Fullt verð: 94.700 kr. 74.900 kr. Kæliskápur stál 186 sm KG 36VVI32 Stál, 186 sm. Orkuflokkur A+. Útdraganleg „crisperBox“-skúffa sem tryggir lengur ferskleika grænmetis og ávaxta. LED-lýsing. „lowFrost”- tækni: Mjög lítil klakamyndun og affrysting auðveld. Stór „bigBox“- frystiskúffa. Hraðfrysting. H x b x d: 186 x 60 x 65 sm. Tilboðsverð: Fullt verð: 133.900 kr. 104.900 kr. Sakamál „Það vita það allir sem vilja að þetta er tómt bull,“ segir Þórður Jóhann Eyþórsson, en hann var handtekinn ásamt Sigurði Stefáni Almarssyni, þekkt- astur sem Malagafanginn, í síðustu viku vegna gruns um aðild að hvarfi Guðmundar Einarssonar. Rúm 40 ár eru liðin frá hvarfi Guðmundar og Geirfinns en endurupp- tökunefnd rannsakar nú málið á ný eftir að Ögmund- ur Jónasson, þáverandi inn- anríkisráðherra, kom á fót rannsóknarnefnd um málið. Valur Grettisson valur@frettatiminn.is Þórður Jóhann, eða Doddi eins og hann er jafnan kallaður, hefur hlot- ið þyngsta refsidóm sem hefur fallið í hæstarétti, þegar hann var dæmd- ur í 20 ára fangelsi fyrir manndráp árið 1993, aðeins tíu árum eftir að hann varð öðrum manni að bana. Doddi slapp út úr fangelsi árið 2006 og segist hafa haldið sér á beinu brautinni síðan. Hann upp- lifir handtökuna sem aðför að sér og sinni framtíð, enda skyndilega flæktur inni í alræmdasta sakamál Íslandssögunnar. Dularfullt hvarf Guðmundar En byrjum á einkennilegu hvarfi Guðmundar Einarssonar. Í sem stystu máli var Guðmundur á dansleik í Alþýðuhúsinu í Hafnar- firði í janúar árið 1974. Hann varð viðskila við félaga sína sem fóru til Reykjavíkur. Síðar um nóttina segj- ast tvö vitni hafa séð til Guðmundar ásamt Kristjáni Viðari Viðarssyni, sem síðar átti eftir að verða dæmd- ur fyrir morðið á Guðmundi sem og Geirfinni. Þeir félagar eiga að hafa verið að reyna að stöðva bíla sem áttu leið hjá í því skyni að fá far aftur heim til Reykjavíkur. Þegar þeim tókst ekki að fá far gengu þeir heim til Sævars Cielsielski og Erlu Bolladóttur sem áttu heima á Ham- arsbraut í Hafnarfirði. Þar fyrir var Tryggvi Rúnar Leifsson. Eftir því sem greinir í dómi hæstaréttar urðu átök á milli Guðmundar og Sævars, Kristjáns Viðars og Tryggva Rúnars vegna ósættis um áfengiskaup, en Guðmundur færðist undan því að leggja fram fé til slíkra viðskipta. Lést hann í átökunum, að því er greinir frá í dómi hæstaréttar. Al- bert mun svo hafa aðstoðað hina þrjár við að flytja líkið út í Hafnar- fjarðarhraun, þar sem það var lagt í gjótu, en fært þaðan aftur á ann- an stað nokkru síðar. Líkamsleifar Guðmundar hafa aldrei fundist, eins og kunnugt er. Tryggvi, Sævar og Kristján voru allir dæmdir fyrir morðið á Guð- mundi. Allir drógu þeir vitnisburð sinn til baka strax árið 1977 og hafa sakað lögreglu og fangaverði um að hafa þvingað játningarnar fram. Nokkur orð um Malagafangann Sigurður Stefán Almarsson er fædd- ur árið 1956 og er því sextugur í ár. Hann fékk nafngiftina Malaga- fanginn á níunda áratugnum þegar hann var handtekinn á Malaga á Spáni fyrir innbrot í íslenskt sum- arhús. Fékk hann að dúsa í tæpt ár í fangelsi í landinu en DV fjallaði Þórður Jóhann hafnar alfarið að tengjast hvarfi Guðmundar Þórður Jóhann Eyþórsson hefur afplánað tvo refsidóma fyrir morð. Nú hefur hann verið bendlaður við alræmdasta sakamál seinni tíma en hann segir handtökuna aðför að framtíð sinni. Guðmundur Einars- son hvarf í Hafnarf- irði í lok janúar árið 1974. Lik hans hefur aldrei fundist. Þórður Jóhann Eyþórsson, eða Doddi Double eins og hann hefur stundum verið kallaður, var sakfelldur fyr- ir tvö morð áður en hann varð fertugur.

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.