Fréttatíminn

Útgáva

Fréttatíminn - 24.06.2016, Síða 12

Fréttatíminn - 24.06.2016, Síða 12
12 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 24. júní 2016 dæmdur fyrir bæði morðin. Þannig heldur Erla því fram að upplýsingar Stefáns hafi leitt til þess að þau voru handtekinn mánuði eft- ir að Stefán benti á þau, og svo úr- skurðuð í gæsluvarðhald, grunuð um manndráp. Í samtali við Dodda vandaði hann Stefáni ekki kveðjurnar. „Þetta var bara eitthvert ljúg- vitni,“ segir hann um ástæðu þess að hann hafi verið handtekinn í tengslum við málið, en sjálfur var hann 17 ára gamall þegar Guðmund- ur og Geirfinnur hurfu. „Ég var spurður hvort ég hefði verið farþegi í bjöllu árið 1974 á Hamarsbrautinni,“ segir Þórður. „Stefán átti að vera að keyra bíl- inn. Hann á að hafa misst stjórn, keyrt á eitthvert skilti og svo á Guð- mund,“ útskýrir Þórður þegar hann er spurður hvað lögreglan vildi honum. „Þetta var nú bara einhver lygasaga, og ef ég hefði verið höf- undur hennar, þá hefði ég nú látið okkur rúnta um á flottari bíl,“ segir Þórður og hlær. „Ég lét nú bara dóttur mína fletta því upp á skattkortinu mínu hvar ég var. Þá kom í ljós að ég var að vinna á Eskifirði á þessum tíma,“ segir Þórður og bætir við: „Þetta er bara tilbúningur frá a-ö.“ Lögreglan virðist því vera að skoða hvort ekið hafi verið á Guð- mund þetta kvöld og þá hugsanlega hvort að ökumaður og farþegar hafi svo losað sig við lík Guðmundar þar sem ökumaður hafi átt að vera ölv- aður. Verið að stúta framtíð minni „Ég verð nú að viðurkenna að ég átti ekki von á þessu,“ segir Þórður spurður hvað honum finnist um að hafa verið bendlaður við málið um 40 árum síðar. Hann segir að Stefán hafi áður nefnt nafn sitt í tengslum við málið í skýrslutökum hjá lög- reglu, en sjálfur hafi Þórður ekki vitað af því fyrr en hann mætti til yfirheyrslu í síðustu viku. „Ég vissi ekki af þessum fyrri vitnisburði,“ segir Þórður. Hann segist einnig undrandi á handtöku- skipun lögreglunnar, „Ég hefði nú bara mætt ef ég hefði verið boðað- ur í skýrslutöku. Þessi yfirheyrsla tók nú ekki nema um hálftíma. Ég spurði lögfræðinginn minn að því, og þeir halda nú sínum tímum til haga til þess að fá greitt fyrir sína vinnu,“ segir Þórður. „Ég á nú ekki bara eintóma vini. Ég held að það sé bara verið að reyna að stúta framtíðinni minni,“ segir Þórður sem er einnig ósáttur við að hann hafi verið kallaður óreglumaður í fjölmiðlum. „Ég er atvinnubílstjóri, og það segir sig sjálft að óreglumenn halda ekki lengi í bílprófið,“ segir Þórður sem losnaði út af Litla-Hrauni árið 2006. Hann hefur síðan unnið ýmsa verkamannavinnu. Vinnur, étur og sefur Í grein Gerðar Kristnýjar kom fram að Þórður hefði átt erfitt með að aðlagast samfélaginu aftur eftir að hafa afplánað fyrir fyrra morðið. Spurður hvort það sama hefði átt við nú, þegar hann sat í fangelsi í rúm tíu ár, svarar Þórður: „Ég ber mikla virðingu fyrir Gerði, hún skrifaði góða grein á sínum tíma. Þetta er alltaf vinna. Ég hef lítið annað gert undanfarin ár en að vinna, éta og sofa. Svo kom hrunið og ég varð atvinnulaus í nokkurn tíma, en svo fékk ég aftur vinnu. Ég hef í raun unnið hjá sama fyrirtæk- inu síðan ég losnaði.“ Þórður hefur því unnið sig í gegnum erfiðasta hjallann og virð- ist enn eiga í góðu sambandi við dóttur sína sem nokkuð er fjallað um í grein Gerðar. Þórður reynir að halda sig á beinu brautinni og virð- ist ganga vel, að eigin sögn. Í lokaorðum greinar Gerðar Kristnýjar árið 1994 varpar Þórður áhugaverðu ljósi á áfengisböl sitt. Því ljúkum við greininni á tilvitn- un í greinina, þar sagði Þórður um eigin glæpi: „Tilfinningin að hafa banað tveimur mönnum er auð- vitað ólýsanleg. Það er ekkert sem getur bætt fyrir það, hvorki fanga- vist né annað. Annars hugsa ég ekki mikið um sjálfan mig. Ég hef heldur áhyggjur af dóttur minni og þeim áhrifum sem þetta hefur hana. Þetta virðist þó ekki há henni neitt í skólanum og hún er minn helsti stuðningsmaður. Það hefur alltaf verið gott samband á milli okkar og við getum talað um allt. Þess vegna hef ég sagt henni frá þessu eins og það gerðist og bent henni á hvað áfengi og vímugjafi geta haft hörmulegar afleiðingar; Það er ekki fræðilegur möguleiki að ég hefði framið þessa glæpi edrú.“ „Ég var spurður hvort ég hefði verið farþegi í bjöllu árið 1974 á Hamarsbraut- inni.“ Mikið var fjallað um Guðmundar- og Geirfinnsmálið í fjölmiðlum, og var umfjöll- unin af ólíkum toga. Meðal annars var í fyrstu fjallað um umfangsmikla leit að Guðmundi, sem var upphaflega talinn hafa orðið úti á leið heim til sín. 108 Reykjavík Sími: 595 0500 www.egillarnason.isSuðurlandsbraut 20 Opnunartímar: mán - fös kl. 9–18 og lau kl. 11–15 VIÐ GETUM TENGT ÞIG VIÐ BESTU PARKETSLÍPARA LANDSINS HAFÐU SAMBAND OG VIÐ RÁÐLEGGJUM ÞÉR MEÐ SLÍPUN, LÖKKUN, OLÍUBURÐ OG ALMENNT VIÐHALD Áreiðanleg vörn alla nóttina. Þú upplifir hreinleika og ferskleika þegar þú vaknar. Eini tíðatappinn með verndandi SilkTouch™ vængjum NÝJUNG! JJ 24 08

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.