Fréttatíminn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttatíminn - 24.06.2016, Qupperneq 16

Fréttatíminn - 24.06.2016, Qupperneq 16
16 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 24. júní 2016 lóaboratoríum lóa hjálmtýsdóttir Í Fréttatímanum hefur undanfar-ið verið fjallað um hvernig fyr-irsjáanleg fjölgun ferðamanna mun umbreyta íslensku sam- félagi. Í heildina litið eru þetta já- kvæðar breytingar. Við erum stödd á upphafsmetrum meiri vaxtar í gjald- eyristekjum en varð hér á stríðsár- unum. Auknar gjaldeyristekjur munu styrkja stoðirnar undir atvinnulífinu og efnahagnum. Þær munu einnig styrkja blessaða krónuna. Efnahags- stjórn næstu ára mun snúast um að halda verðgildi krónunnar niðri í stað þess að halda henni uppi. Þessum vexti fylgja erfið og snúin verkefni. Sum snúa að ferðaþjónust- unni sjálfri en önnur að öðrum deild- um samfélagsins. Stjórnvöld þurfa að hrista af sér slenið og lyfta sér af vegasjoppu- og útihátíðarstiginu hvað varðar aðbún- að ferðamanna. Byggja þarf upp stór- ar þjónustumiðstöðvar með veitinga- sölu, salernisaðstöðu, fræðslu og verslun við Þingvelli, Geysi, Gullfoss, Jökulsárlón og fleiri vinsæla staði. Þar vantar aðstöðu sem getur árlega tekið á móti einni til þremur milljón- um manna. Verkefni dagsins er ekki að bjóða út rekstur á kömrum. Stjórnvöld þurfa ekki aðeins að styðja við fyrirsjáanlega upp- byggingu ferðaþjónustu heldur ekki síður að gæta að gæðum og neyt- endavernd fyrir ferðamennina. Gera þarf átak til menntunar starfsfólks og byggja upp opið gæða- og verðmat til að beina ferðafólki þangað sem besta þjónustan fæst fyrir lægsta verðið. Ferðamannaþjónustan er þegar orðin mikilvægasta atvinnugrein landsins. Með fyrirsjáanlegum vexti mun mikilvægi hennar aukast enn frekar. Íslendingum stendur til boða að verða meðal þeirra þjóða sem hafa mestar tekjur hlutfallslega af ferðaþjónustu. Til að ná þeirri stöðu og viðhalda þurfa stjórnvöld að rífa sig upp úr hagsmunagæslu fyrir hefðbundnar undirstöðugrein- ar og snúa sér af alvöru að upp- byggingu ferðaþjónustu. Þótt ferðaþjónustan muni þjást af vaxtarverkjum næstu árin er hætt er við að mestur sársaukinn komi fram annars staðar. Ferðaþjónustan getur skapað mikið af láglaunastörfum en hins vegar hlutfallslega fá störf sem henta ungu og menntuðu fólki. Á sama tíma mun fjölgun ferða- manna þrengja að húsnæðiskostum ungs fólks. Íbúðarhúsnæði verður breytt í gistiheimili, fasteignaverð mun hækka og byggingarverk- takar munu fremur byggja hótel en íbúðarhúsnæði. Við þessu þarf að bregðast með húsnæðisstefnu sem tryggir öllum öruggt húsnæði á viðráðanlegu verði. Setja þarf lög sem tryggja réttindi leigjenda og verja þá fyrir snöggri hækkun leiguverðs. Slíkar reglur eru til í öllum siðuðum lönd- um. Það er löngu tímabært að Ís- lendingar taki þær upp. Ríki og borg þurfa síðan sjálf að byggja upp mikið af leiguhús- næði, ein sér eða í félagi við verka- lýðshreyfinguna. Slíkt hefur verið gert í nágrannalöndum okkar og reynst vel. Réttlátur leigumarkað- ur sprettur ekki upp af sjálfum sér. Ísland er sönnun þess. Stjórnvöld þurfa líka að stórauka framlög til rannsókna og nýsköpun- ar til að virkja innstreymi fjármagns til að skapa betur launuð störf. Að öðrum kosti munum við áfram sjá á eftir ungu menntuðu fólki. Land- flóttinn getur orðið krónískur þrátt fyrir auknar tekjur og meiri hag- vöxt, studdur áframhaldandi lélegri atvinnustefnu. Samhliða þessum aðgerðum þarf nýja stefnu varðandi innflytjend- ur og flóttamenn. Ferðaþjónustan mun draga til landsins tugi þúsunda starfsmanna á næstu árum. Það er óverjandi að það fólk verði fyrst og fremst flutt inn af fyrirtækjum í leit að ódýru vinnuafli. Setja þarf á stofn virka mannréttindavernd fyrir fólk sem hingað leitar og stór- aukna þjónustu við nýbúa. Mikil fjölgun ferðamanna breytir forsendum annarra atvinnugreina. Það er til dæmis fráleitt að flytja ís- lenskt lambakjöt til New York þegar ljóst er að New York-búar muni flykkjast til Íslands. Þegar fólkið kemur til lambanna er óþarfi að flytja lömbin til fólksins. Nú þegar er íslenskur landbúnað- ur hættur að anna eftirspurn eftir smjöri, eggjum, kjúklinga- og nauta- kjöti. Aukinn ferðamannastraumur gerbreytir öðrum forsendum bú- vörusamnings. Byggðasjónarmið hans standast ekki lengur. Landbún- aður var líklega aldrei besta tækið til að tryggja dreifða byggð, en hann er það sannarlega ekki lengur. Ferða- mannaþjónusta hefur kveikt nýtt líf í sveitunum og mun gera það enn frekar á næstu árum. Það er ekki bara gagnslaust heldur skaðlegt að styrkja á sama tíma atvinnugreinar sem hafa litla vaxtarmöguleika og skaffa starfsfólki sínu léleg laun. Gunnar Smári FERÐAMENN BREYTA ÖLLU Köllunarklettsvegi 1, 104 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Útgefandi: Gunnar Smári Egilsson. Ritstjórar: Gunnar Smári Egilsson og Þóra Tómasdóttir. Fréttastjóri: Þóra Kristín Ásgeirsdóttir. Ritstjórnarfulltrúi: Höskuldur Daði Magnússon. Dreifing: Póstdreifing. Framkvæmdastjóri og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 83.000 eintökum í Landsprenti. SVÍNVIRKAR FYRIR HÓPA SÆTA SVÍNIÐ // Hafnarstræti 1–3 / Sími 555 2900 / saetasvinid.is ELDHÚSIÐ ER OPIÐ 11.30–23.30 KJALLARINN á Sæta svíninu er ný og skemmtileg aðstaða fyrir hópa af öllum stærðum og gerðum. KJALLARINN er frábær fyrir alls konar tilefni; hádegis- eða kvöldverð, veislur, vinnufundi, kokteilboð, bjórkvöld eða fyrir „Happy Hour“ eftir vinnu. FYRSTA FLOKKS AÐSTAÐA Í NOTALEGUM SAL • Sæti fyrir allt 60 manns – hægt er að taka á móti fleirum í standandi veislu • Skjávarpi og tjald • Tilvalið er að koma með eigin tónlist og/eða skemmtiatriði • Bar • Frábær staðsetning í hjarta Reykjavíkur Í boði eru fjölbreyttar veitingar; girnilegir hópmatseðlar, spennandi veitingar fyrir standandi veislur og auðvitað fljótandi veigar. Við hlökkum til að taka á móti þínum hóp! GASTROPUB
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.