Fréttatíminn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttatíminn - 24.06.2016, Qupperneq 47

Fréttatíminn - 24.06.2016, Qupperneq 47
Elín tók áskorun frá manninum sínum að ganga á Esjuna, þrátt fyrir að vera í slæmu formi og nýbúin að eignast barn „Ég hafði lítið sem ekkert hreyft mig í rúmt ár enda nýbúin að eignast barn og því var gönguferð á toppinn á Esj- unni töluverð áskorun. Maðurinn minn skokkaði léttur á fæti á undan mér báð- ar leiðir en á þrjóskunni hafðist þetta. Þegar ég kom heim var ég svo gjör- samlega búin á því en var svo heppin að eiga BetterYou magnesíum flögur í kílóapoka. Ég setti hálfan poka í baðkar- ið, lá þar í hálftíma og fann þreytuna líða úr mér. Daginn eftir var ég spræk og með litlar sem engar harðsperrur með- an maðurinn minn gat ekki hreyft sig í þrjá daga á eftir og dauðöfundaði mig af magnesíum baðinu. Viku seinna hljóp ég 7 km í kvennahlaupinu og fór svo heim í magnesíumbað og eins og síðast leið mér bara vel í fótunum daginn eftir. Ég er frekar spæld yfir að hafa ekki verið búin að uppgötva magnesíumflögurnar og magnesíum spreyin þegar ég var á fullu í fótbolta í Pepsi deild kvenna. Það er klárt mál að magnesíum flögurnar hefðu getað hjálpað mér að halda fótun- um ferskum þegar álagið var sem mest. Ég mæli eindregið með magnesíum flögunum í baðið eftir að búið er að taka vel á því og svo er BetterYou magnesí- um spreyið mjög handhægt og upp- lagt að hafa það í íþróttatöskunni eða göngubakpokanum. Maður spreyjar því á sig fyrir og eftir æfingar eða fjall- gönguna,“ segir Elín Pálmadóttir, fram- kvæmdastjóri Bókhalds og kennslu ehf. Útsölustaðir: Flest apótek, heilsubúðir og heilsuhillur stórmarkaða og verslana. Frekari upplýsingar á www.gengurvel.is „Fjölmörg ensk úrvals­ deildarlið nota BetterYou Magnesíum böð eftir leiki og æfingar og eru leikmenn mun fljótari að ná upp styrk og vöðvabata en eftir ís­ böð,“ segir Andrew Thomas hjá Better You. „Spreyin eru frábær lausn þar sem þeim er úðað beint á vandamálasvæðið og virknin kemur nánast strax. Frábært í íþróttatöskuna eða göngubakpokann.“ Skothelt ráð gegn harðsperrum! Artasan kynnir Magnesíum flögur og Magnesíum Oil sprey frá Better You hafa sem reynst sérstaklega vel fyrir alla þá sem stunda íþróttir, mikla útivist eða fjallgöngur. Hvort heldur er fyrir börn, unglinga eða fullorðna, fyrir og eftir æfingar eða göngur, til að lina þreytuverki, krampa og strengi. Fótboltafár á Íslandi Sýndu fótboltastrákunum okkar stuðning í verki með því að spila fótbolta á grænum svæðum höfuðborgarinnar Sólrún Lilja Ragnarsdóttir solrunlilja@amk.is Óhætt er að segja að fótboltafár ríki á Íslandi vegna velgengni íslenska karlalandsliðsins á EM í fótbolta. Fárið snýst að miklu leyti um að horfa á fótbolta og jafnvel fá sér öl með, en það er um að gera að færa stuðninginn við liðið á næsta stig og fara út á tún eða fótboltavöll og spila smá fótbolta til heiðurs strákunum okkar. Ef þú kannt ekki leikinn þá kallarðu bara til einhvern með smá þekkingu og færð hann með þér í lið. Fótboltavelli eða græn svæði til íþróttaiðkunar má nefnilega finna víðsvegar um höfuðborgina og hér eru nokkrar tillögur. Garðurinn við Landakotskirkju Er ekki mikið notaður en hann er nokkuð rúmgóður og hentar því ágætlega fyrir boltaleiki. Það getur reyndar verið vindasamt á svæð- inu en á sólríkum sumardögum skín sólin þar nánast allan daginn. Víðistaðatún Stórt grænt svæði á milli norð- ur- og vesturbæjar Hafnarfjarðar. Túnið samanstendur af nokkrum stórum grasbölum og því mjög hentugt fyrir knattleiki. Hljómskálagarðurinn Flestir þekkja garðinn og hafa ein- hvern tíma átt leið þar um. Hann er stór og því auðvelt að stunda boltaleiki eða aðrar íþróttir í stærri hópum. Sólin skín þar allan lið- langan daginn og tilvalið er að taka með sér nesti til að gæða sé á eftir æsilegan boltaleik. Klambratún Er vinsælt til ýmiskonar íþróttaiðkunar og þar má hæglega spila fótbolta með góðu móti. Það er um að gera að virkja krakkana í boltaleik á túninu en ef þeim fer að leiðast leikurinn geta þau farið á skemmtilegt leiksvæði sem er á Klambratúni. Ægisíða Við Ægisíðu er fótboltavöllur með mörkum sem er mikið notaður af fótboltakrökkunum úr KR og Gróttu en þegar völlurinn er laus er ekkert því til fyrirstöðu að grípa með sér boltann og skora nokkur mörk. Laugardalur Eitt vinsælasta útivistarsvæðið á höfuðborgarsvæðinu og þar er svo sannarlega hægt að spila fótbolta með tveimur fullskipuðum liðum. Svo er hægt að skella sér í sund í Laugardalslauginni eftir leikinn. Gufunes Stórt og vinsælt útvistarsvæði í Grafarvogi þar sem góð aðstaða er til íþróttaiðkunar, eins og fótbolta. Helsti ókosturinn er að stundum blæs vindur af hafinu. …heilsa11 | amk… FÖSTUDAGUR 24. JÚNÍ 2016 Ég setti hálfan poka í baðkarið, lá þar í hálftíma og fann þreytuna líða úr mér. Daginn eftir var ég spræk og með litlar sem engar harðsperrur meðan maðurinn minn gat ekki hreyft sig í þrjá daga á eftir og dauðöfundaði mig af magnesíum baðinu. Fyrir svefninn og fótaóeirð Hentar öllum Sérstak­ lega fyrir íþrótta fólk
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.