Fréttatíminn

Eksemplar

Fréttatíminn - 24.06.2016, Side 58

Fréttatíminn - 24.06.2016, Side 58
Unnið í samstarfi við LungA Listahátíðin LungA fer fram dagana 10. - 17. júlí á Seyðisfirði. Yfir 120 manns sækja listasmiðj- ur á mánudeginum og standa að undirbúningi helgarinnar þar sem afraksturinn verður sýnd- ur hátíðargestum. „Seyðisfirði er árlega breytt í lifandi, allsherj- ar stúdíó. Á hverju horni má sjá nýsköpun og listir,“ segir Ólafur Daði Eggertsson einn skipu- leggjanda hátíðarinnar. „Í fyrra var sundlaugar- garðinum breytt í skúlptúragarð á borð við listasafn Einars Jónssonar. Úti á götu voru ungmenni búin að þróa lífræna kaffigerð og byggðu sína eigin kaffivél. Í kirkjunni voru raftónleikar og svo margt, margt fleira sem vert er að upplifa.“ LungA var sett á laggirnar árið 2000 og er fastur liður í íslensku listasenunni síðan þá. Seyðis- fjörður klæðist sínu fínasta pússi, iðandi af lífi, listum og skreyting- um. „Tónleikasvæðið er byggt við sjávarsíðuna hjá gömlu fisk- verksmiðjunni af skapandi hópi einstaklinga. Barinn er byggður úr gömlum skipahlutum og sérstök „hang-out“ aðstaða verður þá sem kjósa að sitja og spjalla. Ég get fullyrt að það er engu líkt að upplifa tónleika á slíku metnaðar- fullu tónlistarsvæði með sjávar- síðuna á kantinum,“ segir Ólafur, fullur tilhlökkunar. Hápunktur hátíðarinnar er úti- tónleikar á áðurnefnda sviðinu, laugardaginn 16. ágúst. Þó nokk- ur spennandi nöfn hafa verið tilkynnt. Ungi rapparinn GKR mætir á svæðið, hljómsveitin Fu- fanu, rísandi pönkdúóið Hatari og hljómsveitin Fura sem hefur vakið verðskuldaða athygli á norður- löndunum. Einnig elektró bandið aYia sem Ólafur er spenntur fyrir. „Þau eru frumleg en á sama tíma „catchy“, þau eiga eflaust eftir að ná langt.“ Ólafur segir skipu- leggjendur bíða spennta eftir að upplifa þá frjó- semi og það fallega andrúms- loft sem skapast á LungA þegar fjöldi einstaklinga víðsvegar að úr heiminum kemur saman í þeim tilgangi að skapa, skemmta sér og fagna fjöl- breytileika, listum og lífinu. Þó svo megináherslan sé á laugardeginum þá verður þétt dagskrá alla vikuna. Improv Ís- land mætir á mánudeginum en uppselt hefur verið á allar sýn- ingar þeirra í Þjóðleikhúskjallar- anum í vetur. Þrjár leiksýningar sem tilnefndar voru til Grímunnar verða sýndar í vikunni, karaoke kvöld og DJ partí. Allar nánari upplýsingar um hátíð- ina má finna á www.lunga.is. Upplýsingar um þjónustu, tjald- stæði og bæinn má nálgast á www.visitseydisfjordur.is Unnið í samstarfi við Skemmtifélag Stöðvarfjarðar Mikið verður um dýrð-ir á Stöðvarfirði um næstu helgi, 30. júní til 3. júlí, en þá verð- ur fjölskylduhátíðin Støð í Stöð haldin í bænum. Tilefnin eru ærin því bæði er verið að fagna 110 ára afmæli Stöðvarhrepps og 120 ára verslunarafmæli Stöðvarfjarðar. Haukur Árni Björgvinsson, einn af skipuleggjendum hátíðarinnar, segir að mikið verði um dýrðir og nóg um vera fyrir alla. „Bænum er skipt upp í hverfi og verður veitt viðurkenning fyrir best skreytta húsið og best skreytta hverfið,“ seg- ir Haukur. Hátíðin hefst fimmtudaginn 30. júní með sýningunni Stef á mynd, stef á strengi sem er 60 ára afmælishátíð Önnu og Garðars. Boðið verður upp á bæjarrölt undir leiðsögn Hrafns Baldurssonar og um kvöldið fer fram spurningakeppnin Barsvar á Kaffi Söxu. „Það verður nóg um lifandi tónlist þessa helgina á Stöðvarfirði. Má þar nefna Hilmar Garðarsson, Bjössa Greifa, Svan Vilbergsson og Öldu Garðars- dóttur ásamt Tinnu Önnudóttur,“ segir Haukur. Og talandi um tón- list þá verður Hátíðarlag Stöð í Stöð frumflutt við setningu há- tíðarinnar á föstudagskvöldið á Balanum. Ekki er enn ljóst hvert lagið er og stendur keppnin nú sem hæst. Haukur segir að ballþyrstir gestir fái fullt við sitt hæfi. „Það verða einnig tvö böll, bæði á Tvöföld afmælishátíð á Stöðvarfirði Veiði Höfnin á Stöðvarfirði er gjöful af fiski og um að gera að taka veiðistöngina með. Tvöfalt afmæli Stöðvarfjörður mun skarta sínu fegursta um næstu helgi. Bæjarrölt Boðið er upp á bæjarrölt undir leiðsögn á hátíðinni. föstudag og laugardag. Á föstu- daginn koma fram Bjössi Greifi og hljómsveitin Tikka og á laugar- deginum mætir sjálft Buffið og heldur uppi stemningu fram eftir nóttu á alvöru sveitaballi í íþrótta- húsinu.“ Og það verður að nógu af taka fyrir börnin. „Fyrir börn verður frítt í hoppukastala og froðu- skemmtun, þar sem slökkviliðið á svæðinu mun sjá um að dæla froðu yfir hluta af hátíðasvæð- inu þar sem hægt verður að busla og hafa gaman. Auk þess mæta Skrímslin og sjá um fjörið fyrir krakka á laugardeginum. Á hátíðarsvæðinu á laugardaginn verður svo hlussubolti sem er fyrir fimmtán ára og eldri,“ segir Haukur. Á sunnudeginum verður rólegri stemning í bænum. Í skólanum verður ljósmyndasýning úr sögu Stöðvarfjarðar og í eftirmiðdaginn geta gestir gætt sér á pylsum og hlustað á ljúfa harmonikkutóna í Nýgræðingi. LungA 2016 Listinni fagnað á Seyðisfirði Listahátíðin LungA fer fram á Seyðisfirði þar sem sköpun, listum og menningu er fagnað með námskeiðum, fyrirlestrum og fjölbreyttum viðburðum. Uppskeruhátíð er haldin á laugardeginum þar sem afrakstur 120 einstaklinga úr lista­ smiðjum LungA verður til sýnis víðsvegar um bæinn og lýkur kvöldinu á heljarinnar útitónleikum. „Ég er að fara í fyrsta skiptið á LungA og er mjög spennt. Ég ætla að fylgjast með listasmiðju Kriðpleir, sviðslistahópi sem er búinn að gera ýmis- leg skemmtileg leikverk. Síðan er Seyðisfjörður svo geggjaður staður, ég hlakka til að vera í þessu umhverfi með skemmti- legu og skapandi fólki.“ Snæfríður Sól Gunnarsdóttir „LungA há- tíðin er í alla staði frábær og ótrúlega vinaleg. Hún er einskonar afdrep til þess að pæla í sjálfum sér. Skemmtileg- ast er að vera alla vikuna, þá kynnist maður fólkinu sem verða góðir vinir manns. Það fá allir að vera með og taka þátt, það eru einfaldlega ekki nógu margar klukkustundir í sólarhringnum á LungA.“ Birnir Jón Sigurðsson Risastór listasýning „Seyðisfirði er árlega breytt í lifandi, allsherjar gallerí. Á hverju horni má sjá nýsköpun og listir.“ Stórskemmtilegir tónleikar Hápunktur hátíðarinnar er útitónleikar á laugardagskvöldinu, staðfest nöfn á hátíðinni eru GKR, Fufanu, Hatari og aYia. …sumarhátíðir 6 | amk… FÖSTUDAGUR 24. JÚNÍ 2016 Það verður nóg um lifandi tónlist þessa helgina á Stöðvarfirði. Má þar nefna Hilmar Garðars- son, Bjössa Greifa, Svan Vilbergsson og Öldu Garðarsdóttur ásamt Tinnu Önnu- dóttur. LungA hefur verið fastur liður í íslensku listasenunni fr á árinu 2000 110 Á hátíðinni ve rður 110 ára afmæl i Stöðvarhrepp s fagnað

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.