Fréttatíminn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttatíminn - 24.06.2016, Qupperneq 62

Fréttatíminn - 24.06.2016, Qupperneq 62
Unnið í samstarfi við Viðburðastofu Norðurlands Boðið verður upp á við-burði tengda fjallgöngum, fjallahlaupi, þríþraut, sjó-sundi, hjólreiðum, hlaupum, golfi og gefst fólki tækifæri á að spreyta sig á Kirkjutröppuhlaupinu og mörgu fleiru á sumarleikunum á Akureyri. Dagskráin er afar fjöl- breytt og viðamikil og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Mark- miðið er fyrst og fremst að fjöl- skyldan öll, eða einstakt hæfileika- fólk innan raða hennar, fái notið sín með heilnæmri hreyfingu og útivist. „Við erum afar stolt af því að halda raunverulega fjölskylduhátíð sem er í sátt við íbúa og umhverf- ið á Akureyri. Við notum sömu hugmyndafræði þessa verslun- armannahelgi og undanfarin ár,“ segir Davíð Rúnar Guðjónsson viðburðastjóri um Íslensku sumar- leikana. „Nú styttist í verslunarmanna- helgina og undirbúningur stend- ur sem hæst, en sem fyrr verður hún helguð börnum og fjölskyldu- fólki. Áherslan þetta árið verður á íþrótta- og útivistarhátíð sem við köllum Íslensku sumarleikana á Ak- ureyri,“ segir Davíð. Það eru Vinir Akureyrar, sem er áhugamanna- félag hagsmunaaðila í verslun og ferðaþjónustu, sem standa að há- tíðinni í samvinnu við Akureyrar- stofu. „Með gríðarlega aukinni útivist landsmanna er fyrsti kostur margra að njóta náttúru hvort sem er til að keppa í fjölbreytilegum hlaupa- mótum, allskonar hjólamótum, synda við mismunandi aðstæður eða jafnvel blanda þessu öllu saman í þríþraut. Þeir sem vilja stunda útivist án þess að vera alltaf að keppa, labba um fjöll og firnindi, skokka á eigin forsendum eftir fjallastígum eða malbiki og enn aðrir fara í skemmtilegan hjólatúr með fjölskyldu eða öðrum með svipaða getu um falleg svæði. Þetta allt og margt fleira verður í boði á Akureyri um verslunarmanna- helgina,“ segir Davíð. Hann segir fjölskyldum af öll- um stærðum og gerðum boðið að koma og skemmta sér saman. „Við hvetjum alla til að grípa með sér hlaupaskóna, gönguskóna, hjólið, kayakinn, golfsettið, frisbeesettið eða hvað sem er.“ Unað verður við leik og keppni alla fjóra dagana, sumir reyna mikið á sig en aðrir ekki neitt, og einnig verður að sjálfsögðu boðið upp á alla þá afþreyingu sem þekkst hef- ur á Einni með öllu í gegnum tíðina. Mikið verður um skemmtilega dagskrá fyrir krakkana og í raun alla fjöl- skylduna, skemmti- dagskrá og tónleikar í miðbæ Akureyrar og á flötinni fyrir neðan Leikhúsið, dansleikir og glæsi- legir tónleikar með mörgum af þekktari hljómsveitum landsins á skemmtistöðum bæjarins. Nokkrir af þeim listamönn- um sem staðfest hafa komu sína í ár eru Páll Óskar, Glowie, Hildur, Agent Fresco, Emmsjé Gauti, Úlfur Úlfur, Rhytmatik, Dúndurfréttir, Dynheimaballið, Einar Mikael, Leik- hópurinn Lotta og Óskar Péturs- son. „Fastlega má reikna með fleiri þúsundum gesta á hvern viðburð og á lokatónleikana og flugelda- sýningu á sunnudagskvöldinu, sem hafa undanfarin ár verið mjög vel sóttir í frábærri stemningu.“ …sumarhátíðir 10 | amk… FÖSTUDAGUR 24. JÚNÍ 2016 Við erum afar stolt af því að halda raunverulega fjölskyldu hátíð sem er í sátt við íbúa og umhverfið á Akureyri. Davíð Rúnar Guðjónsson Viðburðastjóri Viðburðastofu Norðurlands Meðal listamanna se m koma fram: Páll Óskar, Glo wie, Hildur, Agent Fresco, Emmsjé Gauti og Úlfur Úlfur Íslensku sumarleikarnir á Akureyri Óhefðbundin íþróttakeppni fyrir alla Íslensku sumarleikarnir, Iceland Summer Games, verða haldnir á Akureyri um verslunarmannahelgina, þar sem íbúum og gestum bæjarins gefst kostur á að spreyta sig, á hinum ýmsum viðburðum tengdum heilsu og útivist. Góð skemmtun Glæsilegir tónleikar verða um allan bæ á Akureyri á Íslensku sumarleikun- um. Páll Óskar, Glowie, Hildur, Agent Fresco, Emmsjé Gauti og Úlfur Úlfur eru meðal þeirra sem munu koma fram. Æsispennandi keppni Kirkjutröppubrun og -hlaup er meðal þess sem fólk getur keppt í á Íslensku sumarleikunum á Akureyri um verslunarmannahelgina. Sjónarspil Stórkostleg flugeldasýning er endapunktur Íslensku sumarleikanna á Akureyri.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.