Fréttatíminn

Issue

Fréttatíminn - 24.06.2016, Page 64

Fréttatíminn - 24.06.2016, Page 64
Unnið í samstarfi við Akureyrarstofu Kaffi í görðum heima-manna er dálæti flestra á Hríseyjarhátíðinni,“ segir Linda María Ásgeirsdóttir, einn skipuleggjanda hátíðarinnar. „Þá opna íbúar Hríseyjar heimili sín fyrir gestum og gangandi og bjóða í kaffi. Fólk sækir hingað aftur á ári hverju að heimsækja sömu húsin. Hér er allt svo heimil- islegt og fjölskylduvænt.“ Hríseyjarhátíðin er sannkölluð fjölskylduhátíð aðra helgina í júlí, og hefur verið svo frá árinu 1997. Á hverju ári flykkjast fjölskyldur með ferjunni Sævari frá Árskógs- sandi til Hríseyjar, en siglingin tekur um 15 mínútur. „Það er upp- lifun út af fyrir sig að sigla með ferjunni umvafin fjallasalnum og fallegri náttúru,“ segir Linda Mar- ía og bætir við að þá sé ævintýrið rétt að hefjast við bryggjuna. Dagskrá helgarinnar er fjöl- breytt og nóg um að vera fyrir börnin. Þar á meðal óvissuferð þar sem ferðast verður um eyjuna á traktor og fá börnin að njóta sín í öruggu umhverfi eyjunnar í nánu sambandi við náttúruna. „Við leggjum upp úr því að börnin leiki sér í náttúrunni. Skralli trúður frá Hrísey fer með krakkana í fjöru- ferð og leikur listir sínar. Á há- tíðarsviðinu verður nóg um lifandi dagskrá þar sem ýmsir listamenn stíga á stokk og skemmta há- tíðargestum. Ratleikurinn verður á sínum stað en hann slær í gegn Ormsteiti er Héraðshátíð Fljótsdalshéraðs sem fer fram á Egilsstöðum 10-14 ágúst þar sem heimamenn og gestir samgleðjast. Hátíðin er nú haldin í 23 skiftið en ýmsar hefðir hafa fest sig í sessi svo sem Karnival gangan sem verður fjörug með þáttöku heimamanna með ýmsum skemmtilegum atriðum, Sirkus Íslands verður með og Aksturs Íþróttaklúbburinn START frá Egilsstöðum skemmtir Karnival þátttakendum með tónlist leikinni úr glæsilegum bifreiðum í göngunni. Við bjóðum upp á barnahátíð þar sem Magga Stína tekur vel á móti börnunum og öðrum gestum, þar verður að finna söngvakeppni barna, ferugðar- samkeppni gæludýra verður á sínum stað, hoppukastalar af ýmsum gerðum, og margt fleira skemmtilegt fyrir börnin. Gistihúsið á Egilsstöðum býður í laugardags morgunkaffi en þangað eru allir heimamenn og gestir hjartanlega velkomnir en sérstaklega viljum við hvetja þá sem eru nýlega fluttir í Hérað til að láta sjá sig í Gistihúsinu svo við getum formlega boðið þá velkomna. Bókakaffi býður í bóka og ljóða upplestur, Helgi Björnsson Skemmtir hátíðargestum eins og honum er einum lagið. Markaður með kolaportsstemningu stendur alla hátíðina, Leikfélag Fljótsdalshéraðs sem er 60 ára í ár skemmtir gestum og margt margt fleira, allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Við vonumst eftir góðri þátttöku heimamann því hátíðin er fyrst og fremst fyrir þá þó svo að aðrir séu hjartanlega velkomnir. Hátíð fjölskyldunnar í perlu Eyjafjarðar Hríseyjarhátíð fer fram helgina 8.–10. júlí. Heimamenn bjóða í kaffi, börnin fá að kynnast náttúrunni í fjöruferð með Skralla trúði og blásið verður til ratleiks, traktorsferða og brekkusöngs. Það verður fjölbreytt dagskrá fyrir alla fjöl­ skylduna sem kýs að njóta samverunnar í kyrrð og fegurð Hríseyjar. Fjöruferð Skralli trúður leiðir krakkana í fjöruferð á Hríseyjarhátíðinni, þar leikur hann listir sínar og krakkarnir fá að leika sér. Brekkusöngur Á laugardagskvöldinu á Hríseyjarhátíð sameinast gestir og heimamenn í brekkusöng. Sundlaugin ómissandi Sundlaugin í Hrísey er ómissandi eftir göngu en fjölmargar gönguleiðir er í boði á eyjunni. Stórbrotin náttúra, kyrrð og fjölbreytt gróður­ og fuglalíf einkenna eyjuna. á hverju ári þar sem Hrísey öll er leikvangurinn. Einnig verða hinir vinsælu vatnaboltar á staðnum, sem má stíga inn í og spóla á vatni.“ Komið verður til móts við alla aldurshópa með fjölbreyttri dagskrá. Samverustund fjöl- skyldunnar í næði og áhyggjuleysi er höfð að leiðarljósi. „Við viljum að fólk komi og njóti kyrrðarinn- ar, samverunnar og náttúrunnar. Það verður að sjálfsögðu fjör og skemmtilegheit, við leggjum mikið upp úr því að það sé eitthvað fyrir alla,“ segir Linda María. Á laugar- dagkvöldinu stendur fjörið hæst en þá sameinast gestir og heima- menn í brekkusöng við varðeld til miðnættis. Í Hrísey búa um 130 manns allt árið um kring og er hún sannköll- uð perla Eyjafjarðar. Eyjan býður upp á fyrirtaks tjaldsvæði með góðri aðstöðu fyrir þau sem vilja tjalda. Á heimasíðu Hrís- eyjar verður hægt að koma sér í samband við heimamenn og fá upplýsingar um gistingu og afþreyingu í eyjunni. Fallegar gönguleiðir eru um eyjuna og hvetur Linda María sem flesta til þess að kanna þær. „Það er til- valið að kíkja í lautarferð og svo í sundlaugina okkar sem er alveg æðisleg.“ Hríseyjarbúðin, Verbúðin 66, Gallerí Perla og sundlaugin verða opin yfir alla helgina. Nánari upplýsingar um hátíð- ina, ætlun ferjunnar og Hrísey al- mennt má nálgast á www.hrisey.is …sumarhátíðir 12 | amk… FÖSTUDAGUR 24. JÚNÍ 2016

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.