Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.07.1971, Síða 2
HöfuÖlausn hin nýja
Hr. læknir Stefán Skaftason og hjúkrunarlið
Háls-, nef- og eyrnadeild Borgarspítalans, Reykjavík.
Þótt ég tækni þrotinn sé
þennan óð að spinna,
flyt ég lækni fáni-Ste
fátækt ljóða minna.
Meðan lífs ég mæli svið
milli gleði og sorgar,
eg hann lofa og allt hans lið
á spítala- Borgar.
Innrás gerði hann í minn haus
sem ekki var í lagi,
mörg þar skrölti skrúfan laus
og skran af ýmsu tagi.
Bitrum geiri beitti hann
búnum til af stáli,
allan dreif hann óþverrann
út með reku og páli.
Ekki dugðu orðin tóm
ýmislegt var fleira:
sauma þurfti gat í góm,
gramsa í nefi og eyra.
Allt fór þetta eftir von
utan mæðu og trega,
Stefán Skafta- stæltur -son
stagaði prýðilega.
Býst ég við að batni mér
brátt á þessum vetri,
þeir liggja ekki á lausu hér
læknar aðrir betri.
Háls- á, nef- og „heyrnardeild"
hópur kvenna fríður
að mér hlúði í einni heild
sem englaskari blíður.
Lík var þeirra bjarta brá
bliki norðurljósa,
ástúð lagði augum frá
sem ilminn hvítra rósa.
Þar var ekkert óðagot,
allt í föstum skorðum,
margt við sprautu- og mælapot
miðlað hlýjum orðum.
Er mitt kemur ævikvöld
yrði ég næsta feginn,
ef mig slíkur englafjöld
annaðist hinumegin.
Þögult er mitt þakkarmál
þegar létt er raunum,
allt mitt hjarta og alla sál
ég ykkur gef að launum.
Óðum nálgast árið nýtt,
aftur hækkar sólin.
Eg mun hugsa ofurhlýtt
ykkar til um jólin.
Ég er aftur orðinn frár,
andinn hress og glaður.
Nú ég verð hið næsta ár
nýr og betri maður.
Þótt hörmung æði heims um ból
og hrynji margt eitt tárið,
gefi ykkur gleðileg jól
guð og farsælt árið.
5.—12. nóv. 1970.
Loftur ámundason,
stofu 305.
TÍMARIT
HJÚKRUNARFÉLAGS
ÍSLANDS
2. TÖLUBLAÐ 1971
47. ÁRGANGUR
ÚTGEFIÐ AF
HJÚKRUNARFÉLAGI (SLANDS
SKRIFSTOFA
ÞINGHOLTSSTRÆTI 30
REYKJAVlK
OPIN MÁNUDAGA, ÞRIÐJU-
DAGA, FIMMTUDAGA OG
FÖSTUDAGA
KL. 9-12 OG 2-5
FORMAÐUR
MARlA PÉTURSDÓTTIR
VIÐTÖL EFTIR SAMKOMULAGI
SlMI 21177
GJALDKERI
RAGNHEIÐUR STEPHENSEN
RITARI
MARlA GUÐMUNDSDÓTTIR
RITSTJÓRN
INGIBJÖRG ÁRNADÓTTIR
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARM.
SlMI 35623
LILJA ÓSKARSDÓTTIR
SlMI 15168
ALDA HALLDÓRSDÓTTIR
SlMI 84270
BLAÐIÐ KEMUR ÚT
ÁRSFJÓRÐUNGSLEGA
ÁSKRIFTARGJALD
ER 175 KRÓNUR
VERÐ I LAUSASÖLU
50 KRÓNUR
SELT I BÓKAVERZLUN
ISAFOLDAR
PRENTUN
(SAFOLDARPRENTSMIÐJA HF.