Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.07.1971, Blaðsíða 35

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.07.1971, Blaðsíða 35
án þess að að sé gáð. Vissulega ætti hjúkrunarnemi að vera sjálfur fær um að virða eigið ástand og það, hvort hann geti gegnt starfa sínum til fullnustu. En skyldan kallar — það veldur erfiðleikum á deild, ef nema vantar til starfa, sem og annan starfs- kraft. Og nemi skyldi sízt auka á erfiðleika deildar. Ef til vill mótast skyldurækni nemans og af eiginhagsmunum, löngun hans til að ljúka námi á tilskildum tíma. Þegar hjúkrunarnemi hefur störf á deild eru honum sýndir óteljandi skápar og skúffur með þeim orðum, að hér sé þetta geymt og þarna sé hitt geymt o. s. frv. Honum er kynnt það nauð- synlegasta, sem til þarf, svo að hann geti leyst störf sín af hendi, en of sjaldan leiðbeint um það, sem beinlínis varðar hjúkrun hvers sjúklings, heldur fálmar hann sig áfram í blindni. Það má gott heita, ef hjúkrunarnemi getur fálmað sig áfram. Yfirleitt verður hann að hlaupa við fót í myrkri og verði honum það á að reka sig á blindhorn, er stjakað harkalega við honum með þeim orðum, að allir séu nemarnir eins, „ani áfi’am án þess að gá að sér“. Og hjúkrunarneminn spyr sjálfan sig í undrun: „Hvers vegna hefur þetta blindhorn ekki verið merkt, fyrst það veldur svo mörgum árekstrum?" Eftir nokkurra vikna eða mánaða veru á deild kveður hjúkrun- arneminn og kvittar með þökk fyrir móttökurnar á einkunnaseðil, og ræður mestu um útkomu seðilsins, hversu slétt og fellt starf nemans og öll hans framkoma hefur verið. Tölurnar á einkunna- seðlinum skyldu vera hjúkrunarnemanum viðmiðun og leiðarljós, ef mat deildar á frammistöðu hjúkrunarnemans væri raunhæft og sanngjarnt. En slíkt mat verður ekki lagt nema deild leggi rækt við nemann. Frá alda öðli hefur kærleikur til sambræðra kallað einstakl- inga til þess starfa að hjálpa og hjúkra sjúkum. Mannkærleik- urinn er og verður talinn frumskilyrði góðrar hjúkrunar. En þjóð- félagið í dag heimtar menntun til hvers kyns starfa. örar fram- farir læknavísinda heimta hjúkrunarkonur með þekkingu og menntun. Hlutverk hjúkrunarskóla er að svara þessum kröfum. Það er flestra mál, að H.S.l. leitist við að gegna hlutverki sínu vel. Því miður heyrast raddir þess efnis, hvaða þýðingu bókleg ítroðsla skólans hafi eiginlega. Það er ekki létt verk fyrir skólann að stefna að bættri hjúkrunarkennslu, þegar hjúkrunarnemar og hjúkrun- arkonur eru svo stirð í taumi sem raun ber vitni. Svo ein- kennilega sem það kann að láta í eyrum, virðist sá andi oft ríkj- andi meðal okkar hjúkrunarnema og hjúkrunai’kvenna, að aukin bókleg kennsla sé til þess eins ætluð að vera skrautblóm á barmi skólans, og jafnvel okkar, en komi að litlu gagni í starfi. Til að mynda heyrir hjúkrunarnemi, sem hefur störf á deild ekki ósjaldan þessa setningu: „Ykkur er víst kennt þetta öðru- vísi í skólanum". Vissulega er námið í skólanum aðeins undirstaða, sem byggt er á í starfi, undirstaða, sem síðan mótast og breytist eftir aðstæðum hverju sinni. Það skyldi þó engan undra, að blá- nema, sem verður að tileinka sér nýja umbúnaðaraðferð allt að því hvern dag, finnist á stundum hjúkrunarkonur og eldri nemar breyta um of undirstöðuatriðum eftir eigin höfði. Virðingarleysi gagnvart kennslu skólans grefur smám saman undan trú nemans á tilgang og gildi kennslunnar og skapar leiða hans gagnvart bóklegu námi, deildarkennslu og öðru slíku. Fræðsla um sjúkdóma, einkenni, meðferð o. s. frv. sýnist hjúkrunarnem- TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS 65
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.