Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.07.1971, Blaðsíða 10

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.07.1971, Blaðsíða 10
og eiga þessir aðilar að aðstoða hver annan? — 1 þessu sambandi verður að gera sér ljóst, að heilbrigðis- stjórnin og þar með hjúkrunar- deildin er ekki til orðin sérstak- lega í þágu hjúkrunarkvenna. Hlutverk hennar er að vinna að heilbrigðismálum þjóðfélagsins, þjóðarinnar í heild. Aftur á móti beinist starf Danska hjúkrunar- félagsins að því að gæta hags- muna hjúkrunarkvenna. En við höfum sameiginleg markmið, því að rétt eins og heilbrigðis- stjórnin getur ekki stuðlað að góðu heilbrigðisástandi með þjóðinni án dugmikilla lækna, hjúkrunarkvenna, sjúkraliða og annarra getur Danska hjúkrun- arfélagið ekki heldur náð ár- angri, nema samtökin stuðli að því að hjúkrunarkonurnar verði sem hæfastar til starfa, jafn- framt því að þau vinni svo sem eðlilegt er að betri launakjör- um þeirra. Hjúkrunardeildirnar innan Danska hj úkrunarfélagsins og heilbrigðisstjórnarinnar hafa á seinni árum komið á samstarfi sín í milli, og ég held að báðir aðilar meti þetta samband mjög mikils. Þessi möguleiki til að geta með frjálslegum hætti kynnt hvor öðrum sameiginleg vandamál, svo að samhæfa megi kraftana eftir föngum, er ákaf- lega mikils virði. — Það er alkunnugt, að þér hafið reynslu af alþjóðlegum vettvangi. Gætuð þér sagt okk- ur nokkuð um hvert stefnir á þessu sviði? — Það er athyglisvert að fylgjast með þróuninni. 1 mörg- um þróunarlandanna er eins og hér hjá okkur unnið að því að bæta menntunina, en þessar þjóðir standa að því leyti bet- ur að vígi, að einmitt vegna þess að þær verða að byggja næstum frá grunni, geta þær dregið lær- dóm af reynslunni, bæði hinni góðu og hinni lakari. Með því móti geta þær tekið stökk langt fram í tímann og skipulagt menntun, sem víða er mun full- komnari en sú sem tíðkast hjá okkur. Það væri mjög gagnlegt, ekki aðeins fyrir þessi lönd, heldur sannarlega einnig fyrir danskar hj úkrunarkonur, ef komið yrði á meiri gagnkvæm- um skiptum í framtíðinni. Ég vildi óska, að sem allra flestar danskar hjúkrunarkonur ættu kost á að starfa í einhverju þró- unarlandi í svo sem tvö ár. Það mundi verða þeim hvatning að kynnast hinum mikla áhuga og því mikla starfi, sem innt er af hendi, og þær mundu sjálfar geta orðið að miklu liði. Vissu- lega hefur í nokkrum þróunar- löndum verið komið á betri hj úkrunarmenntun en við eigum við að búa, en þau hafa svo að segja ekkert fólk með þessa menntun — eða mjög fátt. Hjúkrunarkonur verða að gera sér grein fyrir því, að ætli þær að starfa í þróunarlandi, verða þær að af la sér framhaldsmennt- unar. f mörgum þessara landa er krafizt háskólaprófs til þess að fá stöðu við hjúkrunarskól- ana. Loks geta danskar hjúkr- unarkonur einnig með slíkri dvöl komizt að raun um, hversu vel okkur líður hér heima og hvað við höfum vanizt á að gera miklar kröfur í allri velsæld- inni. — Nú þegar við erum á leið- inni inn í Efnahagsbandalag Evrópu er eklci úr vegi að spyrja yður, hvernig þér teljið að olck- ur muni takast að fá því fram- gengt, að gerðar verði sæmi- lega viðunandi kröfur til þeirra sem að hjúkrun starfa í fram- tíðinni ? — Ef þróunin hérlendis held- ur áfram á þá lund, að starfs- undirbúningur hjúkrunarstétt- arinnar verði stöðugt betri, fæ ég ekki séð, að veruleg ástæða sé til kvíða í þessu efni. Að sjálf- sögðu verður að gera ráð fyrir að þau stjórnvöld sem ráðstafa stöðunum, muni hafa skilning á því, að ekki beri að ráða er- lenda hjúkrunarkonu í yfir- mannsstöðu, ef vafi leikur á um hæfni hennar. En hjúkrunar- konur, hvort sem þær kunna að koma frá ftalíu, Frakklandi eða Þýzkalandi, munu geta komið hér til starfa, og þá kemur, eins og ég hef áður sagt, til kasta danskra hjúkrunarkvenna að meta, hvað útlendingarnir séu færir um, og jafnframt hlýtur það að vera ófrávíkjanleg skylda hvers einasta sjúkrahússeig- anda og vinnuveitanda að sjá til þess, að kostur sé á mennt- un starfsliðs innan stofnunar- innar. Fyrir því er eflaust víða séð nú þegar, en ef við göng- um í Efnahagsbandalagið, verð- ur a. m. k. ekki hjá slíku komizt. — Teljið þér, að danskar hjúkrunarkonur láti undir höf- uð leggjast að haldxi fram verð- leikum sínum, og hvað getur hugsanleg vanræksla í þeim efn- um haft í för með sér í yðar stöðu, þar sem þér þurfið að hafa samstarf við löggjafarað- ila og stjó'rnvöld? — Ég vil gjarnan leggja áherzlu á, að ég er mjög hreyk- in af því að vera hjúkrunar- kona. Ég hef líka ávallt verið hreykin af dönsku hjúkrunar- kvennastéttinni. Ég minnist þess, að einu sinni þegar ég starfaði í Austurlöndum nær, spurði starfsmaður frá Alþjóða- heilbrigðismálastofnuninni mig, hvaðan beztu hjúkrunarkonurn- ar kæmu, því að ég hafði látið gagnrýnisorð falla um ástand- ið í ýmsum löndum. Og þá var mjög erfitt fyrir mig að stilla mig um að segja, að ég teldi skandinaviskar og þar á meðal danskar hjúkrunarkonur meðal þeirra beztu. Ekki vegna þess, að það sé ekki fjölmörgu áfátt, sérstaklega varðandi menntun- ina, en danskar hjúkrunarkonur hafa alltaf haft skilning á nauð- syn þess að láta í té góða hjúkr- un, þ. e. a. s. leggja sig virki- lega fram í þágu sjúklingsins. 44 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.