Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.07.1971, Side 39

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.07.1971, Side 39
að framkvæma við allar beztu aðstæður og- gæta ýtrustu gagn- i'ýni. Þarna erum við í aðstöðu, þar sem freistingarnar og siðfræði- jegar kröfur geta hæglega rek- izt á. Nýja lækningatilraun má aðeins gera á sjúklingum með ttfjög langt genginn sjúkdóm, en ónæmismeðferðin, samkvæmt skýringum okkar, er aðeins lík- ieg til að gefa glæsilegan ár- angur á byrjunarstigum hins ill- kynjaða sjúkdóms, þar sem aðr- ar aðferðir eru jafnframt lík- iegastar til árangurs. Þannig verður ekki komizt hjá að gera tilraunirnar við mjög erfið skil- yi’ði, 0g enga fyrirhöfn má spara til þess að gera sér fyrir fi’am grein fyrir, hvaða sjúkl- ingar séu líklegastir til að gefa hagstæðastar svaranir við með- ferðinni. Aðeins að þessum skil- yi’ðum uppfylltum getur verið siðfræðilega stætt á að nota ónæmismeðferð við byrjandi illkynja mein. V lyf. Framh. af bls. 55. cephalothin. Skammtar ofan f j ögurra gramma á sólarhring geta valdið nýrnaskemmdum („tubular necrosis“). Bæði cephalothin og cephalo- i’idin geta orsakað „falskt- Pósitíft" sykurpróf á þvagi, nieð Benedikts eða Fehlings- upplausn og Clini-test, en ekki með Tes-Tape. ^ephaloglycine (Kafocin) : Ab- sorberast frá görnum, blóð- concentration lág, en mikið mugn í þvagi. Notað við þvag- vegssýkingu eingöngu. Skammtar: 250—500 mg f jór- um sinnum á sólarhring. Barnaskammtar: 20—50 mg a kg á sólarhring. Aukaverkanir: Niðurgangur (algengt). Húðútþot (3—5%, eosiaophilia, hiti. ePhalexin (Keflex) : Absorber- ast vel frá görnum, og nást við inntöku eins háar blóð- og vefja-concentrationir og af 2 fyrstnefndu lyfjum gefnum í innspýtingum. Má gefa með máltíðum. Skilst út í þvagi í hárri concentration. Fullorðinsskammtar: 1—4 gm á dag í 3—4 skömmtum. Barnaskammtar: 25—50 mg á kg á sólarhring. Aukaverkanir: Niðurgangur, ógleði, uppköst algeng. Húð- útþot (0,6%). Engar auka- verkanir frá nýrum, jafnvel af stórum skömmtum (8 gm á dag í 2 vikur). Staphylococcar, sem eru ónæmir fyrir Methicillin (Staph-cillini, Celbenini), eru ónæmir fyrir cephaloex- ini einnig, en ekki fyrir ce- phalothini. Heimildir: The Medical Clinics of N. Am., Vol. 54 Sept. 1970. The Pharmacological Bain of Ther- apeutics; L. S. Goodman & A. Gilman (1965). Enriurlia^fing langlegusjuklinga. Framh. af bls. 57. áður en þeir fóru í rúm- ið. Kl. 18 Hagrætt á bakið. Hækk- að vel undir höfði. Sjúkl- ingur mataður. Lækkað undir höfði. Fékk 200 ml af vökva. Ef nokkur tími vannst til, var sjúklingurinn látinn fara fram úr smástund um þetta leyti til að borða. Kl. 20 Sjúklingur látinn yfir á vinstri hlið. Kvöldað- hlynning. Þvottur. Nudd. Passívar æfingar. Vökvi gefinn per os. 200 ml. Gætt að plastpoka. Kl. 22 Sjúklingur látinn yfir á hægri hlið. Nuddað. Gætt að plastpoka. Kl. 24 Sjúklingur látinn á bak- ið. Nuddað. Gætt að plastpoka. Kl. 2 Sjúklingur látinn yfir á vinstri hlið. Nuddað. Gætt að plastpoka. Kl. 4 Sjúklingur látinn á hægri hlið. Nuddað. Gætt að plastpoka. Kl. 6 Sjúklingur látinn á bak- ið — síðan fram úr, eins og lýst er að framan. Ég verð að segja, að hvergi hef ég haft meiri ánægju af að hjúkra en á þessari erfiðu deild. Sá árangur, sem fékkst með samvinnu allra, sem störfuðu á deildinni: brosið, sem fór að koma fram á vörum þessara vina okkar —- roðinn, sem færð- ist í kinnar þeirra — styrkur- inn og lífsgleðin, sem jókst dag frá degi, — þau laun voru sann- arlega þess virði, að við legð- um okkur fram. Ég vona, að einhver þessi ráð megi létta undir með hjúkrunarliði okkar og þá um leið sjúklingunum. Ávarp. Framh. af bls. 59. um sýnt okkur lífið sjálft í hnot- skurn, gleði þess og sorgir, hug- rekki og þreklund hinna sjúku, og þann fórnfúsa kærleika, eig- inleika, sem hverjum manni er dýrmætastur. Sá lærdómur hlýt- ur að verða okkur dýrmætt veganesti. Ég líkti skapferli okkar við fjallalæki í vorleysingum. Þeg- ar sumrar, minnkar vatnið í lækjunum og bakkarnir koma í ljós blómum skrýddir, vermdir af sólu, og með haustinu breyt- ist umhverfið allt í litadýrð, ólýsanlega, sem heillar hvert sjáandi auga. Þá leitar lækur- inn rólega uppruna síns. Sú er von mín, að líf okkar, sem nú erum að vígjast hjúkr- unarstarfi, taki á sig slíka mynd og á þann veg fáum við sýnt þakklæti til þjóðar vorrar, sem gaf okkur tækifæri til þessa náms. Ég þakka þá virðingu, sem okkur hefur verið sýnd í dag, og kveð skólastjóra okkar og kennara með þakklæti og trega. TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS 69

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.