Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.07.1971, Blaðsíða 41

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.07.1971, Blaðsíða 41
írétlabróf frá skt-mmlincfnd árshálíOar. Arshátíð Hjúkrunarfélags Islands var haldin að Hótel Borg föstudag- inn 26. marz s.l. Guðlaug Guðmundsdóttir flutti stutt ávarp og bauð gesti velkomna. Meðan á borðhaldi stóð, skemmti Karl Einarsson með eftirhermum, einnig var fjöldasöngur. Seinna um kvöldið sungu Þrjú á palli nokkur lög, við ííóðar undirtektir. Dans var síðan stiginn af miklu fjöri fram eftir nóttu, og skemmti fólk sér hið bezta. Guölaug Guömundsdóttir. félngsfundur. Eélagsfundur HFl var haldinn í Domus Medica 1. marz s.l. Formaður setti fundinn kl. 20.30. Ritari las upp fundargerð síðasta fundar og var hún samþykkt. Á dagskrá var inn- taka nýrra félaga. Teknir voru inn 43 nýir félagar og er tala félaga inn- an HFÍ nú 1043. Annað dagskrárefni var: Samstarf niilli lækna og hjúkrunarkvenna. í umræðunum tóku þátt læknarnir Kristín E. Jónsdóttir, Jón Þorsteins- son og Höskuldur Baldursson, hjúkrunarkonurnar Kristín Pálsdótt- ir, María Gísladóttir og Guðrún Mar- gi'ét Þorsteinsdóttir, auk þeirra tóku niargir fundarmanna til máls. Fram k°m meðal annars: aí'> bæta mætti samstarfið með hæfi- legum kærleikshug milli stéttanna. að nauðsyn beri til, að efla kynn- ■ngu á námi og starfssviði inn- byrðis hjá starfshópum sjúkra- húsanna. aÖ bæta kennslu hjálparfólks á sjúkradeildum og efla skilning þess á þeim störfum sem það hef- ur með höndum. að leggja meiri áherzlu á reglu- bundna fræðslufundi fyrir starfs- fólk. að læknanemar þyrftu að nema af hjúkrunarkonum, svo sem með- ferð á sterilum áhöldum, ídæling- ar og ýmsar aðrar hjúkrunarað- gerðir, til þess að þeir geti sem laeknar orðið hin æskilegasta fyr- irmynd. a® nauðsyn væri á frekari samræm- mgu á störfum lækna og hjúkr- unarkvenna þar sem þessir aðilar taekju meira tillit til hvors ann- ars í daglegri vinnuhagræðingu. aa læknar tækju ekki nægilegt tillit til deildanna, þegar mikið álag rikti þar, og legðu inn sjúklinga, sem orsakaði lélegri þjónustu og °f mikið álag á starfsfólkið. 0 mun meiri nákvæmni væri þörf í meðferð lyfja og sú regla væri viðhöfð, að sá, sem sæi um til- tekt lyfsins í það skiptið, gæfi sjúklingi það, en léti ekki annan um það. að leggja mun meiri áherzlu á um- ræðufundi starfsfólksins þar sem tekin er fyrir læknis- og hjúkr- unarmeðferð hinna einstöku sjúkl- inga. Samþykkt var á fundinum sú til- laga að taka saman niðurstöður frá umræðunum og senda tímariti HFI, Læknablaðinu og Læknanemanum tii birtingar, en því miður hafa þær enn ekki borizt. Fundurinn var mjög fjölmennur og létu margir í ljósi þá ósk, að áframhald yrði á umræðufundum sem þessum. Fundur Snmlaka heilbrigitis- stétta var haldinn í Domus Medica sunnu- daginn 25/4 sl. Fundarefni var þjón- usta á sjúkrahúsum og hjúkrunar- kvennaskorturinn. Frummælendur voru Ingibjörg Magnúsdóttir forstöðukona, Sig- mundur Magnússon læknir og Hauk- ur Þ. Benediktsson framkvæmda- stjóri. Fundarstjóri var Árni Björns- son læknir, sem hvatti fólk til að vera stuttort og gagnort. Fundurinn var ágætlega vel sóttur og mjög fróð- legur og skemmtilegur og var langt frá því að fundargestir væru búnir að tala nóg, þegar tíminn, sem við höfðum til umráða, var útrunninn, en fundurinn stóð frá kl. 14—17. María Pétursdóttir, formaður Sam- taka heilbrigðisstétta, tók fyrst til máls og setti fundinn og minntist m. a. á nauðsyn þess að ræða vanda- málin um hjúkrunarkvennaskortinn frá faglegu sjónarmiði. Sömuleiðis talaði hún um hve nauðsynlega við þyrftum að geta menntað sjálf okkar hjúkrunarkennara hér heima. Ingibjörg Magnúsdóttir forstöðu- kona talaði m. a. um leiðir til úr- lausnar á hjúkrunarkvennaskortinum og benti á ýmsar leiðir til úrbóta eins og t. d.: Fleiri barnaheimili, hús- hjálp fyrir giftar hjúkrunarkonur, erlendar hjúkrunarkonur, fleiri sjúkraliðar, bætt aðstaða hjúkrunar- kvennaskólans, svo eitthvað sé nefnt. Því næst tók til máls Haukur Bene- diktsson framkvæmdastjóri Borgar- spítalans. Taldi hann að fara þyrfti fram athugun á störfum hjúkrunar- kvenna með tilliti til hvort aðrir geti tekið við einhverju af störfum þeirra. Einnig kvað hann m. a. nauðsynlegt að við gætum menntað hér heima fleiri stéttir innan heilbrigðisþjónust- unnar, eins og t. d. sjúkraþjálfara, félagsráðgjafa, iðjuþjálfara o. fl., en skort á sérmenntuðu starfsfólki við spítalana kvað hann eina af orsök- um til hærri meðallegudagaf jölda sjúklinga hér en erlendis. Sigmundur læknir kvað aðaltilgang fundarins vera hvatningu til átaka. Sömuleiðis sagði hann að hjúkrunar- kvennaskorturinn væri ekkert nýtt vandamál, það hafi alltaf verið til staðar, einnig á tímum umræðuleysis. Hann sagði m. a. að hjúkrunarkon- um væri nauðsynlegt að halda við menntun sinni og kunnáttu bæði með því að vinna eitthvað og sækja upp- rifjunarnámskeið væru þau fyrir hendi, sjálfra sín og þjóðfélagsins vegna. Hann sagði að það þyrfti að vera til staðar spjaldskrá svo hægt væri að hafa beint samband við þær hjúkrunarkonur, sem ekki væru í starfi og hvetja þær til starfa í stóru eða smáu og láta þær finna, að þjóð- félagið þyrfti á þeim að halda. Eftir fundarhlé tók fyrst til máls Ragnheiður Guðmundsdóttir læknir, hún kvað nauðsyn á að fá háskóla- deild fyrir hjúkrunarkonur. Við þurf- um háskólamenntað hjúkrunarfólk til kennslu og forystustarfa. Einnig kvað hún nauðsyn á að bæta sjúkra- liðanámið, lengja það í eitt ár, og hafa stöðuga verklega og bóklega kennslu allan tímann. Því næst tók til máls Sigrún Gísla- dóttir hjúkrunarkona, hún kvað okk- ur vanta tilfinnanlega hjúkrunar- málafulltrúa. Ýmis atriði til úrlausn- ar vandanum taldi hún vera m. a. að við þyrftum barnaheimili, sem tækju yngri börn en tveggja ára og fleiri en eitt af hverri hjúkrunarkonu. Margt fleira markvert kom fram í ræðu Sigrúnar, sem of langt yrði upp að telja. Arinbjörn Kolbeinsson tók til máls og nefndi m. a. að flestar hjúkrun- arkonur framtíðarinnar yrðu giftar og kvað margt þarfnast athugunar við til að fá þær til stai-fa og er það áður komið fram, nema hvað hann taldi að skattamál væri þar stórt atriði. Sigurður Sigurðsson landlæknir sagði m. a. að við þyrftum að gæta að hvað við gerðum, yfirvega það vandlega og gera það í réttri röð. Páll Gíslason yfirlæknir minntist á það m. a. að við þyrftum að læra að nota aðstoðarfólk og halda við menntun þess. Sömuleiðis þyrftum við að mennta meira af aðstoðarfólki hér heima. Einar Ágústsson alþm. sagði nokk- ur orð undir lokin, kvað hann augu sín hafa opnast fyrir ástandinu eins og það væri á sjúkradeildum, er hann þurfti sjálfur að liggja á sjúkrahúsi fyrir eigi alllöngu. Kvað hann það Framli. á bls. 73. TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS 71
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.