Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.07.1971, Síða 26

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.07.1971, Síða 26
STJÓRNARKJÖR HFÍ Útdráttur úr lögurn Hjúkrunarfélags íslands 13. gr. Stjórn félagsins skipa 7 félag- ar. Kjörtímabil er 4 ár. For- maður skal kosinn sérstaklega fjórða hvert ár, og aðrir stjórn- endur þannig, að 2 þeirra gangi úr stjórninni í senn, þegar ekki er kosinn formaður. Endurkosn- ing er heimil. Stjórnin kýs sér sjálf varaformann, og skiptir að öðru leyti með sér verkum. Verði autt sæti stjórnarmanns á milli aðalfunda, velur stjórnin sjálf mann í hið auða sæti og gildir kjör hans til næsta aðalfundar. Á stjórnarfundum ræður fjöldi atkvæða. Séu atkvæði jöfn, ræð- ur atkvæði formanns úrslitum. 14. gr. Fjórum mánuðum fyrir aðal- fund skipar stjórn félagsins 3 félaga í nefndanefnd (uppstill- ingarnefnd) og 3 félaga í kjör- stjórn. Nefndanefnd (uppstill- inganefnd) tekur við tilnefn- ingu um stjórnendur og sér um undirbúning stjórnarkosningar. Berist fleiri tilnefningar um stjórnendur en kjósa á hverju sinni, skal fara fram skrifleg leynileg kosning. Kjörstjórn skal þá senda at- kvæðaseðla öllum félögum utan Reyk j avíkur, Selt j arnarness, Kópavogs, Garðahrepps og Hafnarfjarðar um leið og aðal- fundur er boðaður. Gætir kjör- stjórn þess að svo sé frá þeim gengið að full leynd verði með kosningunni. Félagar sem seðla hafa fengið, endursenda þá til kjörstjórnar áður en kjörfundi lýkur, en hann skal halda degi fyrir aðalfund. Skal kjörfundur standa yfir minnst 10 klst., og vera boðaður um leið og aðal- fundur. Skulu minnst 2 aðilar sem sæti eiga í kjörstjórn vera á kjörfundi meðan kosning stendur yfir. Séu eigi fleiri tilnefndir í félagsstjórn en kjósa á, teljast þeir rétt kjörnir til næstu fjög- urra ára, án atkvæðagreiðslu. Kjöri stjórnenda skal lýst á aðalfundi. Stjórnin ræður starfsmenn og ritstjóra, og ákveður þeim laun. Heimilt er félagsstjórn að skipa nefndir er hafi með höndum ákveðin verkefni. Samkvœmt félagslögum hafa pví verið sendir út atkvæðaseðlar ásamt eftirfarandi bréfi: ST.IÓItX.\ltK.IÖn H.F.f. Hér með er efnt til stjórnar- kjörs í Hjúkrunarfélagi fslands. Kjósa skal 2 félaga í stjórn til fjögurra ára. Kosningin er bundin við þá félaga sem eru á kjörseðlinum. Utankjörstaðaatkvæði skulu berast skrifstofu Hjúkrunar- félags fslands fyrir 4. júní 1971. Vr stjó'rn ganga: María Guðmundsdóttir, ritari Ragnheiður Stephensen, gjaldkeri. / stjóm sitja áfram: María Pétursdóttir, formaður María Finnsdóttir, varaformaður Sigurhelga Pálsdóttir Ingibjörg Helgadóttir Gerða Ásrún Jónsdóttir. Bréfi þessu fylgir kjörseðill, umslag utan um kjörseðilinn og límist það aftur. Umslag með utanáskrift til H.F.f. og nafni og heimilisfangi sendanda á bakhlið. 1 því skal senda hið fyrra umslag með kjörseðlinum til félagsins. Gætið þess að skrifa nafn yðar og heimilis- fang á bakhlið umslagsins til H.F.l. greinilega. Atkvæðið er því aðeins gilt, að nafn yðar sé læsilegt. Kjörstjóm. 60 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.