Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.07.1971, Blaðsíða 12

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.07.1971, Blaðsíða 12
Kristín Óladóttir. Kristín Óladótt/ir, deildarhjúkr- unarlcona gjörgæzludeildar Borgarspítalans. Þann 25. OKT. síðastliðinn var opnuð á Borgarspítalanum deild, sem nefnd hefur verið gjörgæzludeild. Áður hafa verið birtar tvær góðar og ítarlegar greinar í Hjúkrunarblaðinu um þessar deildir (eftir Þorbjörgu Magn- úsdóttur yfirlækni í 1. tbl. 1969 og Sigrúnu Gísladóttur í 4. tbl. 1969), og þess vegna ætla ég að stikla á stóru og lýsa í nokkr- um orðum þessari fyrstu deild sinnar tegundar (þ. e. almennri gjörgæzludeild) á Islandi. Upphaflega var húsnæðið sem gjörgæzludeildin notar, alls ekki ætlað fyrir þessa starfsemi, eins og víða þar sem þessar deildir hafa verið settar á fót, og þess vegna undrast ég, hversu vel henni hefur verið fyrir komið á ekki fleiri fermetrum en hún hefur til umráða. Rúm er fyrir 12 sjúklinga á deildinni. Sjúkrastofur eru 3, og er leguplássum skipt þannig: 1. sjúkrastofa er fyrir 6 sjúkl- inga sem þarfnast sérstakrar gjörgæzlu og „intensiv" með- ferðar, svo sem við öndunar- erfiðleika, blóðrásartruflanir og truflanir á vökva- og saltjafn- vægi, svo eitthvað sé nefnt. Þessir sjúklingar koma frá öll- GJOR GÆZL UDEILD BORGARSPÍTALANS um legudeildum spítalans, ásamt slysadeild. Þessari stofu má skipta þannig, að hægt er að ein- angra tvo eða jafnvel fleiri sjúklinga ef með þarf. 2. sjúkrastofa er rúmgóð ein- angrun með anddyri fyrir einn gjörgæzlu og „intensiv“ með- ferðar sjúkling með smithættu eða þá sem þarf að einangra af öðrum ástæðum. 3. sjúkrastofa er fyrir fimm sjúklinga eftir uppskurð, og eru þeir þar mismunandi langan tíma eftir þörfum, skemmst 1— 2 klukkustundir, en í lengsta lagi til næsta morguns. Séu þeir lengur á deildinni, teljast þeir þurfa sérstakrar meðferðar og flytjast þá yfir í aðra hvora hina stofuna. I sjúkrastofunum hefur verið leitazt við að koma öllu sem hag- anlegast fyrir. Skápar með fær- anlegum plastskúffum eru í hverri stofu. I þeim eru hlutir og áhöld tilbúin fyrir ýmsar að- gerðir, svo sem vökvagjöf í æð, skiptingar á sárum, intubation, ísetningu þvagleggja og venu- katetera o. fl. Einnig skyndi- lyfjabakkar með nauðsynlegum lyfjum, sprautum, nálum og hjartanálum. Engin sængurborð eru á stofunum, þau tækju of mikið pláss, en notazt er við gluggakistur, sem eru breiðar, við höfðalag rúmanna, og laus hjólaborð. Á gluggakistur og veggi eru festar stálslár, þar sem hengja má á ýmsa hluti eftir þörfum, svo sem ílát fyrir sogleggi og sótthreinsunar- vökva, blóðþrýstingsmæla, tæki fyrir sog og súrefni, öndunar- vélar o. m. fl. Við hvert rúm eru útleiðslur, á aðra hlið fyrir sog og súrefni, en hina raf- magnstæki, m. a. hjartarafsjár- tæki og púlsmæli, sem gefa sjálf- krafa aðvörunarmerki fram í vaktherbergið, sé eitthvað að. I sj úkrastofunum eru ílát með sótthreinsandi vökva, þar sem allt óhreint er sótthreinsað í eina klukkustund, áður en það er þvegið. Reynt er að gæta ítr- asta hreinlætis, þess vegna eru engin handklæði, heldur ein- göngu einnota bréfhandþurrkur og olnbogastýrð höld við krana og ílát fyrir sápulög. Væntanlegir eru á deildina sérstakir vagnar, sem notaðir verða í stað rúma. Þeir eru hærri, með lausar grindur í stað gafla, auðvelt er að steypa þeim, og verður í alla staði þægilegra að vinna við „gjörgæzludeildar“- sjúklinga á þeim en í venjuleg- um sjúkrarúmum, jafnframt því, að þeir verða jafn þægileg- ir fyrir þá. Skol eru tvö, hreint og óhreint, og er á milli þeirra mátulega stórt op, til að skjóta megi hlut- unum yfir í hreina skolið, þegar búið er að hreinsa þá. I óhreina skolinu er bekjuhreinsari, sem sótthreinsar sjálfkrafa með köldu og heitu vatni í ákveðinn tíma. Einnig er þar þrískiptur stór vaskur fyrir sótthreinsun, þvott og sískol með köldu vatni. Þá er þar vatns-sog til hreins- 46 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.