Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.07.1971, Qupperneq 25
Á VARP
fyrir hönd nemenda
við hrautsbáningu
Flutt af Sólveigu K. Jónsdóttur
Heiðraði skólastjóri, kennarar
og gestir.
Það hefur komið í minn hlut
að flytja hér nokkur fátækleg
þakkar- og kveðjuorð frá okkur
skólasystrunum, sem nú ljúkum
prófi frá Hjúkrunarskóla Is-
lands.
Fyrir rúmum þremur árum
niættum við hér til náms í skól-
anum fullar framtíðarvona um
námið og starfið. Við vorum
óstýrilátar og flögrandi, eins og
fjallalækur í vorleysingum, sem
flæðir yfir bakka sina.
Það er skylt að játa, en við
áttum draum sameiginlegan, að
verða hjúkrunarkonur, fórn-
fúsar og skilningsríkar, og við
vorum að hefja nám, sem við
vissum af afspurn að var erfitt
og krefjandi.
Okkur hefur þótt skólinn
strangur, námsefnið tyrfið og
sumt gamaldags og oft ætlazt
til meira af okkur en sanngjarnt
niætti teljast. Jafnframt vitum
við, að stjórn skólans hefur oft
þótt við erfiðar og stundum þótt
illt að hemja okkur innan eðli-
legra takmarkana skólaaga. En
við þökkum kennsluna, sem nú
hefur fært okkur að settu marki.
Margar gleðistundir eigum við
H’á kennslu hér í skólanum og
eins á deildum sjúkrahúsanna.
Við þökkum okkar góðu kenn-
Ul’um, sem sýnt hafa okkur
^nikla þolinmæði, eins þökkum
við starfsfólki skólans, ekki sízt
°kkar ágætu símavakt, sem bezt
hefur kynnzt brestum okkar, en
h’ka oftast séð fram hjá þeim.
°g ekki má gleyma starfsstúlk-
unum í eldhúsinu, því að mat-
Ur er mannsins megin. En mest
°g bezt hafa námsárin þrjú,
skólinn og dvölin á sjúkrahús-
Framh. á bls. 69.
Nemendur Heyrnleysingjaskólans
heimsœkja Hjúkrunarskóla lslands
Undanfarin ár hefur sá siður verið viðhafður í H.S.Í. að bjóða börnum frá
Heyrnleysingjaskólanum í heimsókn. Hafa nemendur haft veg og vanda af
þessari skemmtun barnanna, og er álitamál, hvor aðilinn hefur liaft meiri
ánægju af hinum vel heppnuðu heimsóknum.
TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS 59