Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.07.1971, Qupperneq 40
FRÉTTIR og TILKYilNGAR
llpilbri)i(Usmálii ráif
Keykjavíkur.
Eins OG getið var um í fyrsta tölu-
blaði þessa árgangs, var á síðasta ári
stofnað Heilbrigðismálaráð Reykja-
víkur.
Ritstjórnin hefur farið þess á leit
við mig, að ég segði nánar frá starf-
semi ráðsins.
Á vegum Reykjavíkurborgar eru
reknar nokkrar heilbrigðisstofnanir:
Borgarsjúkrahúsið, sem stjórnað var
af sjúkrahúsnefnd, Heilsuverndar-
stöð Reykjavíkur, sem hafði sérstaka
stjórnarnefnd, og loks heilbrigðis-
nefnd Reykjavíkurborgar, sem hafði
með höndum stjórn heilsuverndar-
starfs og heilbrigðiseftirlits í borg-
inni.
Þar sem starfsemi þessara þriggja
nefnda var nátengd á marga vegu,
var horfið að því ráði að fela einni
stofnun, Heilbrigðismálaráði Reykja-
víkur, yfirstjórn allra þessara mála,
en eldri nefndir lagðar niður. Fer
því Heilbrigðismálaráð nú með stjórn
allra þessara stofnana í umboði borg-
arstjórnar og undir yfirstjórn
hennar.
í júní 1970 var Heilbrigðismálaráð
skipað til fjögurra ára. I ráðinu eiga
sæti eftirtaldir aðalfulltrúar:
Birgir ísleifur Gunnarsson, hrh,
formaður,
Ulfar Þórðarson, læknir, varafor-
maður,
Árni Björnsson, læknir,
Gunnlaugur Snædal, læknir,
Halldór Steinsen, læknir,
Herdís Biering, hjúkrunarkona,
Margrét Guðnadóttir, prófessor.
Varafulltrúar:
Alda Halldórsdóttir, hjúkrunar-
kona,
Arinbjörn Kolbeinsson, læknir,
Björgvin Guðmundsson, borgarfull-
trúi,
Jónatan Þórmundsson, prófessor,
Ólafur Jensson, læknir,
Ólafur B. Thors, borgarfulltrúi,
Ottó Michelsen, forstjóri.
Fulltrúi borgarstjóra:
Páll Líndal, borgarlögmaður.
Framkvæmdarstjóri Heilbrigðismála-
ráðs:
Dr. med. Jón Sigurðsson, borgar-
læknir.
Fljótlega eftii' að Heilbrigðismála-
ráð hóf störf sín, voru stofnaðar
starfsnefndir, sem hafa með daglegt
starf stofnananna að gera, en allar
ákvarðanir þessara starfsnefnda eru
bornar undir Heilbrigðismálaráð til
samþykktar.
1 starfsnefnd Borgarspítalans eiga
sæti auk borgarlæknis Haukur Bene-
diktsson, framkvæmdarstjóri sjúkra-
hússins, Sigurlín Gunnarsdóttir, for-
stöðukona, og Karl Strand, yfirlækn-
ir, sem kjörinn er af læknaráði Borg-
arspítalans. Annað starfslið sjúkra-
hússins situr fundi starfsnefndar-
innar, eftir því sem það er kvatt til.
Allar ályktanir starfsnefndar eru
bókaðar og fundargerðir sendar til
Heilbrigðismálaráðs til samþykktar.
I starfsnefnd Heilsuverndarstöðv-
arinnar eiga sæti borgarlæknir, Guð-
mundur Skúlason, framkvæmdar-
stjóri stofnunarinnar, og Sigríður
Jakobsdóttir, forstöðukona. Sömu
starfsreglur gilda í þessari nefnd og
þeirri, sem getið var um á undan.
Starfsnefnd heilbrigðiseftirlits er
skipuð borgarlækni, Þórhalli Hall-
dórssyni, framkvæmdarstjóra heil-
brigðiseftirlits, auk þess heilbrigðis-
fulltrúum borgarinnar, sem nú eru
sex talsins.
Geta má þess, að starfsnefnd Borg-
arspítalans fer einnig með málefni
annarra sjúkrastofnana borgarinnar,
svo sem sjúkradeildarinnar í Heilsu-
verndarstöðinni, Hvítabandinu og
Arnarholti.
Starfsnefndir halda að jafnaði
fundi vikulega og oftar, ef þörf ger-
ist, en Heilbrigðismálaráð hefur fast-
an fundartíma, vikulega á föstudög-
um kl. 12—14.
Verulegur hluti af starfi ráðsins
er fólginn í eftirliti með fundargerð-
um starfsnefnda, því að ályktanir
þeirra öðlast ekki gildi fyrr en Heil-
brigðismálaráð hefur samþykkt þær.
Þannig hafa flest mál, sem ráðið
tekur til meðferðar, verið rækilega
undirbúin af starfsnefndum áður.
Framkvæmdarstjórar Borgarspít-
alans, Heilsuverndarstöðvarinnar og
heilbrigðiseftirlits sitja fundi ráðs-
ins, og veita þeir upplýsingar eða
skila greinargerðum, eftir því sem
þörf gerist í einstökum málum.
Fyrstu mánuði af starfstíma ráðs-
ins var farið í eftirlits- og kynningar-
ferðir í allar þær stofnanir, sem und-
ir það heyra. Hafa ferðir þessar
stuðlað verulega að aukinni þekkingu
meðlima ráðsins á starfsemi þessara
stofnana. Hafa ferðir þessar verið
hinar ánægjulegustu og skapað ákjós-
anlegan starfsgrundvöll.
Svo sem sjá má af skipan ráðsins,
er það að mestum hluta skipað fag-
fólki, læknum og hjúkrunarkonum,
og er óhætt að segja, eftir þann
stutta tíma, sem ráðið hefur starf-
að, að þessi skipan mála hefur veriS
vel ráðin.
Mikil eindrægni ríkir á fundum og
mun óhætt að fullyrða, að meðlimir
ráðsins binda miklar vonir við starf-
semi þess á komandi tímum.
Herdís Biering.
Frétí frá
IljúkrunarKkólsi íslaniis.
1. Brautskráðir voru í lok febrúar
s.l. 43 nemendur og væntanlega
verða brautskráðir 44 nemendur í
sept. n.k. Á síðasta ári var svip-
uð tala eða 43 + 39 = 82 nem-
endur brautskráðir.
2. Nú eru 210 nemendur í skólanum,
á síðasta ári voru nemendur að
meðaltali 230.
3. Nýir nemendur hefja nám 2svar
á ári, venjulega í marz og sept-
ember.
Mikil aðsókn er að skólanum.
Flestir þeirra, sem byrja í haust
hafa 2ja ára nám í viðbót við
gagnfræðapróf eða landspróf.
Margir koma nú úr framhalds-
deildum gagnfræðaskólanna.
Venjulega eru nokkrir stúdentar
í hverjum hópi.
Ráðgert er að afhenda umsóknar-
eyðublöð skólans síðari hluta apr-
íl-mánaðar fyrir námskeið, sem
hefjast í september n.k. og marz
1972 og verður það auglýst nánar
eftir miðjan april-mán.
4. Hjúkrunarkennaraskortur er hér
ríkjandi og hefur verið árum sam-
an. Skólinn hefur leyfi til að
greiða 6 föstum kennurum laun.
Starfandi eru nú aðeins 2 kenn-
arar með hjúkrunarkennararétt-
indum, en í hinum fjórum stöðun-
unum eru nú 7 hjúkrunai'konur,
fjórar þeirra fastráðnar og þrjár
lausráðnar, þar af eru aðeins
2 í fullu starfi.
Þrátt fyrir, að margir stunda-
kennarar vinna við skólann eru
þessir starfskraftar engan veginn
nægdlegir og sem dæmi má nefna,
að þeir tveir hjúkrunarkennarar,
sem eru með réttindi hafa á síð-
ustu 6 mánuðum til samans unnið
um 600 stundir í yfirvinnu. Þessi
mikla yfirvinna, ásamt of lágum
lamium, en hjúkrunarkennarar
voru í 17. launaflokki, þegar al-
mennar hjúkrunarkonur voru í
15. fl., hefur greinilega orðið ein
aðalorsök þess, að hjúkrunarkenn-
arar hafa ekki séð sér fært að
vinna hér mörg ár samfellt.
Við hjúkrunarskóla af sambæri-
legri stærð á Norðurlöndum þykir
hæfilegt að hafa 1 hjúkrunar-
kennara fyrir hverja 15—20 nem-
endur og jafnvel er sums staðar
farið að setja mörkin við 10—12
nem. á hvern kennara.
70 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS