Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1973, Blaðsíða 12

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1973, Blaðsíða 12
skapa betri heim, hreinni og göf- ugri? Við sjálf mótum heim- inn, heimurinn erum við sjálf. Við höfum allt of lengi vanrækt mátt hugans og tilfinningalífs- ins og ekki hvað sízt lagt litla rækt við þá sjúkdóma, sem þar eiga aðsetur. En óski maður einlæglega að breyta einhverju til batnaðar í mannlífinu, þá verður hann alltaf að byrja á sjálfum sér og vera öðrum for- dómalaus fyrirmynd. En nú er mál til komið að gera smávegis grein fyrir þeim geðsjúkdómum, er hrjá mann- kynið og verða alltaf fjötur um fót þeim, sem þeir lenda á. En fyrst skulum við staldra ögn við orðin geðsjúkdómur, geðdeild, geðlæknir o. s. frv. Sumt fólk hefur andúð á þessum nöfnum. Það viðurkennir fúslega, að það sé slæmt á taugum, en geðsjúkt sé það sannarlega ekki. Það virðist miða öll vandkvæði geð- heilsunnar við brjálæði, sem nú er óalgengt fyrirbæri, nema þá helzt hjá þeim persónum, sem þola ekki áfenga drykki, en drekka sig þó ofurölvi. Að minnsta kosti er enn þá mjög algengt, að geðsjúklingar óski þess, að deildin héti taugadeild og sérfræðingur þeirra bæri nafnbótina taugalæknir. En taugarnar, sem flytja tilfinn- ingaboðin til heilans, geta verið stálhraustar, þó að boðin, sem þær flytja, séu sjúkleg og röng. Okkur er enn þá ekki stærri stakkur skorinn en að við höld- um öll, að okkar viðhorf og dóm- greind sé hið eina rétta. Og hversu mörgum skjátlast ekki þar? Á þessu tvennu er mikill munur, enda sérmenntaðir menn til í hvorri grein, þ. e. a. s. bæði geðlæknar og taugalæknar. Mér finnst eðlilegt að líkja tauga- kerfinu við símakerfið, þó að þar séu fleiri miðstöðvar. Hugs- ið ykkur slíka firru, ef sím- notandi fengi ógeðfelldar frétt- ir gegnum síma og krefðist þess, að gert væri við línuna, því að um hana hefðu sér borizt vond- ar fréttir, línan hlyti að vera biluð. Lífið ætti að hafa kennt okkur, að allt í okkur getur bil- að, jafnt sálin sem líkaminn. En enginn verður svo sjúkur, að persónuleg einkenni hans hverfi með öllu. Ilugklofinn er vanda- samasta verkefni geðlækna. Hann er þekktur í öllum menn- ingarlöndum og nokkuð jafn- algengur, þegar miðað er við íbúafjölda. Sjúkdómurinn er álíka almennur hjá báðum kynj- um og oft blandaður öðrum sjúkdómsmyndum. Hugklofinn kvað vera algengari meðal ógiftra og fráskilinna en meðal giftra, ekkna og ekkjumanna. Ástæðan gæti verið sú, að hjóna- band verkaði hagstætt á sálar- lífið, en líklegra þykir, að við- horf sjúklingsins orsaki, að færri þeirra á meðal treysti sér í hjónaband. Félagsfræðilega séð er flest þetta sjúka fólk að finna á lægstu þjóðfélagsþrep- um erlendra stórborga, þar sem höfðatalan er há og stéttaskipt- ingin meira áberandi en hjá okkur. Og er þetta hrap niður þjóðfélagsþrepin svokölluð í fullu samræmi við sjúkdóms- myndina. Hinir sjúku hljóta fyrr eða síðar að gefast upp í vel launuðum ábyrgðarstöðum og leita léttari verkefna, því að einbeitingarhæfni þeirra bregzt og ábyrgðargeta þrýtur. Þessi sjúkdómur birtist oft snemma á ævinni og er oft greinilegur frá 15—16 ára aldursskeiði, en getur einnig komið í ljós seinna. Fyrstu sjúkdómseinkennin eru oft óljós, t. d. uppgjafar- og ein- angrunartilhneigingar. S j úkl- ingurinn fer að draga sig í hlé og á erfitt með að festa hugann við nám og starf, hann losnar úr sambandi við félaga sína og fer að lifa í sínum sjúklega hug- arheimi. Heima fyrir fær sjúkl- ingurinn sennilega ávítur fyrir trassaskap og fúllyndi. Ekki bætir það úr, hann einangrast meir og meir. Ofskynjanir og ranghugmyndir eru fylgifiskar þessa sjúkdóms, hugurinn hleyp- ur úr einu í annað, meira og minna samhengislaust, svo að sjúklingurinn á erfitt með að lýsa ástandi sínu. Oft finnst þessum sjúklingum, að þeir verði fyrir áhrifum frá t. d. út- varpi og sjónvarpi, geislum og rafstraumum, sem miðað sé að þeim. Þeim finnst jafnvel, að aðrir geti lesið hugsanir þeirra og neytt inn í þá óvelkomnum hugsunum. Þeir geta heyrt hvíslandi og skipandi raddir, sem segi þeim að gera þetta eða hitt. Þeir hafa þá tilfinningu, að allt sé breytt, og það leiðir af sér angist, ráðleysi og van- mátt. Reiknað er með því, að um það bil 1% manna fái ein- hvern tíma á ævinni hugklofa. Sjúkdómurinn setur einnig sín spor í útlit og atferli mannsins. Svipbrigði minnka, og andlit og hreyfingar stirðna. Nú skulum við athuga aðra geðlæga sjúkdómsmynd, sem á fagmáli nefnist maníó-depres- siv. Mér þætti eðlilegt að líkja þessum sterku sveiflum tilfinn- ingalífsins einfaldlega við flóð og fjöru. I maníunni, sem er sjúklegt ofvirkniástand, er sj úklingurinn fær í flestan sjó og sér sér alla vegi færa, er glaður og hressilegur, í sátt við Guð og alla menn. Þessi sjúk- lega bjartsýni leiðir menn oft út í alls konar kaup og brask og verkefnaklúður, sem raun- vei'uleg geta sjúklingsins stend- ur ekki undir. Þeir koma ekki auga á eðlileg takmörk sín, af því að raunsæi þeirra er meira og minna horfið út í veður og vind. Síðan smáfjarar út í til- finningalífinu. En það er ekki numið staðar við heilbrigðu lín- una, sem við höfðum hugsað okkur, heldur hrapar tilfinn- ingalífið misjafnlega langt nið- ur fyrir hana og hafnar í því ástandi, er nefnist depression, og á íslenzku kallast þunglyndi, sem er alls ekki fullnægjandi 10 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.