Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1973, Síða 32

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1973, Síða 32
HJUKR UNIASTRALIU Aö beiöni ritstjórnar tímarits- ins skrifaöi ástralska hjúkrun- arkonan Beth Jackson eftirfar- andi grein og lýsir frumstæöum skilyrÖum til hjúkrwtvar i strjál- býlinu. Greinina íslenzkaöi vinkona Beth, Svanhildur Gísla- dóttir hjúkrunarkona, sem hefur veriö búsett í Ástralíu í 10 ár, og sendir um leiö sínar beztu kveöjur heim á Frón. ástralía er g'amalt og geysi- stórt land, skipt í sex fylki, auk nokkurra eyja, aðallega við norð- ur- og austurströndina. Vegna mjög ólíks veðurfars og innflytj- enda af mismunandi þjóðerni eru vandamálin með tilliti til hjúkrunar mörg og af ýmsu tagi. Læknishjálp og heilsuvernd verður hverj u sinni að haga eftir þörfum. Áður en umsækj andi er tekinn í kennslusjúkrahús, þarf hann að hafa stundað nám að minnsta kosti í þrjú ár í gagnfræðaskóla eða menntaskóla, en getur svo byrjað hjúkrunarnám sautján ára að aldri. Fyrst tekur við sex til tólf vikna námskeið, en eftir það vinna nemarnir á hinum ýmsu deildum í þrjú ár og stunda bóklega námið samhliða vinnunni. Flestir nemendur búa í hjúkrunarkvennabústöðum tengdum við sjúkrahúsið, og smáupphæð er tekin af kaupi þeirra fyrir fæði og húsnæði. Einkennisbúningar, kappar og sokkar eru lagðir til, og þvottur á búningum er ókeypis. Að loknu þriggja ára námi í sjúkrahúsinu læra flestar hjúkr- unarkonur ljósmæðrastörf í níu mánuði og mæðra- og ungbarna- eftirlit í fjóra mánuði. Þær hafa þá þrj ú skírteini og eru að ensk- um sið kallaðar „systur“. Síðan síðari heimsstyrjöldinni lauk, hafa yfir milljón innflytj- endur komið hingað og setzt að, einkum í stórborgunum Sydney, Melbourne og Adelaide. Þeir hafa komið frá Frakklandi, Þýzkalandi, Hollandi, Júgóslav- íu, Póllandi, Ítalíu og Grikklandi. Vinna hjúkrunarliðs í sjúkra- húsum í borgum og í héruðum úti á landi, þar sem innflytj- endurnir hafa aðallega setzt að, hefur oft reynzt torveldari en ella vegna tungumálaerfiðleika og ólíkra lifnaðarhátta. Sérstak- lega er fólk frá Suður-Evrópu hrætt og ráðvillt, þegar það þarf að leggjast á sjúkrahús, og því gengur illa að skilja, af hverju fjölskylda þess getur ekki verið hjá því allan daginn. Grátur og bænir í lok heimsóknartímans er algengur viðburður. Til þess að hjálpa hjúkrunarliði, aðstand- endum og sjúklingum til gagn- kvæms skilnings eru túlkar til- tækir í öllum stærri sjúkrahús- um, og leiðarvísar um meðferð barna og mörg önnur viðfangs- efni eru prentaðir á mörgum tungumálum. Patricia, Catherine, Mary og Joan eru allar hjúkrunarkonur, sem búa og vinna í þúsund mílna fjarlægð. Systir Patricia hefur læi*t eft- ir margra ára störf úti á landi að fást við vandamál ólík þeim, sem mæta okkur í vel útbúnum sjúkrahúsum í borginni. Auk þess að líta eftir sjúklingum í þorpinu, þar sem hún býr, þarf hún að gefa leiðbeiningar í gegn- um senditækið til fólks, sem býr langt í burtu, og ráðgast við „fiuglækninn“ (The Flying Doc- tor), sem hefur aðsetur í Alice Springs. (Alice Springs er stærsta borgin í Norðurfylk- inu). Kvíðinn hjarðmaður getur beðið um hjálp í gegnum sendi- tækið fyrir félaga sinn, sem hef- ur dottið af hestbaki. Mennirn- ir, sem reka nautahjarðirnar, eru mánuðum saman í burtu og tjöld þeirra langt frá mannabú- stöðum. Patriciu grunar af gamalli reynslu, að hann sé rif- brotinn, og biður félaga hans að vefja taumunum utan um hann til stuðnings. Sprungið nýra er önnur algeng og miklu alvar- legri afleiðing af byltu eða ef hesturinn slær, og til að ganga úr skugga um, hvort svo sé, bið- ur hún slasaða manninn að kasta þvagi í lófa sér strax, ef hann getur, og aftur eftir tuttugu mín- útur og láta hana vita, hvort blóð sé í þvaginu. Ef svo er, verður hún að komast í samband í gegnum senditækið við „flug- lækninn" til að flytja slasaða manninn á sjúkrahús í Alice Springs. (Patricia biður slas- aða manninn að kasta þvagi í lófa sér, af því að það er gott að sjá í gegnum þvagið, ef það er í hendi manns. Auk þess hafa mennimir engin ílát nema drykkjarílát sín). Systir Catherine starfar hjá 26 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.