Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1973, Side 35

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1973, Side 35
snyrtiborðinu eða náttborðinu. En það er í hæsta máta hugs- unarleysi, því að einmitt snyrti- borð mömmu með öllum þess- um spennandi krukkum og glös- um er einn skemmtilegasti stað- urinn fyrir barnið að athuga. Flest slysin vei'ða vegna þess, að börnin borða töflur, sem því miður er oftast allt of mikið af á heimilunum, og margar þeirra eru húðaðar í skærum litum, svo að barnið heldur, að það sé sæl- gæti. Smám saman hefur lyfjanotk- un færzt yfir mörkin, frá því að lyf séu tekin samkvæmt þörf og eftir fyrirmælum læknis yfir í ofnotkun og ávana, og börnin geta einmitt orðið fórnardýr þeirrar misnotkunar, því að þá vill varúðin í meðferð lyfja oft- ast sljóvgast. Það eni 5 gullnar reglur í sam- bandi viö lyfjanotkun: rétt lyf í réttum skömmtum handa réttum sjúklingi á réttum tímum á réttan hátt. Afgangslyf á ekki að geyma, eftir að fyrirmælum læknis um notkun þeirra hefur verið full- nægt. Það er alrangt að geyma slík lyf, því að þar með er sú hætta fyrir hendi, að gripið sé til þeirra, ef einhver veikist á heimilinu með svipuð einkenni og sá, sem upphaflega fékk lyf- in. En þar með er ekki sagt, að þau hæfi sjúkdómi hins né að ástæða sé yfir höfuð til að gefa lyf eða að skammtur sá, sem gefinn er, hæfi sjúklingi. Því á að fleygja afganginum eftir notkun. öruggast er að skola lyfjunum gegnum salern- issvelginn. Þau lyf, sem oftast eru þó til á heimilum og gott getur verið að eiga, svo sem væg verkjalyf (magnyl og fleiri slík), geta líka verið litlum börnum lífs- hættuleg, séu þau tekin í stór- um skömmtum. Þau á því að geyma á öruggum stað. Bezt er að hafa læstan lyfja- skáp, sem sé svo hátt uppi, að börn geti ekki komizt í hann, jafnvel þótt þau nái í lykilinn. Á sumum heimilum eru járn- og vítamíntöflur á morgunverð- arborðinu. Ef barn á 2—5 ára aldri borðar 8—20 stk. af járn- töflum, getur líf þess verið í hættu. Sömuleiðis geta sum víta- mín, tekin í of stórum skömmt- um, ef ekki verið hættuleg, þá a. m. k. haft óheillavænleg áhrif á barnið, t. d. D-vítamín. Um önnur efni en lyf, sem fyrirfinnast á hverju heimili í meira eða minna mæli, er ýmis- legt að athuga í sambandi við óvitabörn. Þvottalögur, ýmiss konar hreinsiefni og ýmsar sýr- ur o. fl. geta oft freistað barns- ins. Ef til vill eru efni þessi í litskrúðugum umbúðum. Barnið heldur, að þarna sé saft eða gos- drykkur, og sýpur á. Þessi efni á aö geyma á öruggum staö, þar sem börn geta alls ekki náö til þeirra. Hér á eftir veröa talin nokk- ur atriði, sem vert er að Leggja á minniö, ef slys skyldu veröa þrátt fyrir varúðarráðstafanir. Ef bamvð hefur meövitund: 1. Ef eitriö er ekki ertandi efni (undantekningar eru þó jarð- olíur o. fl.), þarf strax að láta barnið kasta upp. Gefið því mjólk eða vatn að drekka (helzt volgt), það verkar þynnandi og dregur úr áhrifum eitursins og auð- veldar barninu að kasta upp. Leggið síðan barnið á mag- ann, yfir hné ykkar, og sting- ið fingri í kokið á því. 2. Ef eitriö er ertandi efni, má barnið alls ekki kasta upp. Ertandi efni eru t. d. sýrur, og þær eru í mörgum sótt- hreinsunar- og hreinsiefnum, sem því miður eru aðgengileg fyrir börn nærri því í hverju baðherbergi og eldhúsi. Ert- andi efni getur lokað vélind- anu, og jarðolíuefni geta skemmt lungun, ef þeim er kastað upp, því að alltaf er sú hætta fyrir hendi, að eitt- hvað fari niður í lungnapíp- urnar við uppköst. Ef barnið getur kyngt, þarf það að fá efni, sem eyðir áhrifum eitursins, svo sem mjólk, magnesíum eða kol- duft með magnesíumsúlfat hrært út í vatni. Síðan má gefa skeið af salatolíu til að minnka ertingu slímhúðar. Ef barniö er meðvitundarlaust: 1. Ef þaö andar, á aö leggja það í líflegu. Barnið er lagt á hliðina með neðri handlegg út frá líkamanum, neðri fót- leggur krepptur og efri hand- leggur með höndina inn und- ir vangann. 2. Ef barnið anduar ekki, verö- ur aö veita því öndumirhjálp. Vil ég benda á kaflann um öndunarhjálp með blásturs- aðferðinni, sem lýst er mjög nákvæmlega í máli og mynd- um í hinni nýju útgáfu af bókinni „Hjálp í viðlögum“ eftir Jón Oddgeir Jónsson. Vil ég hér með mæla ákveðið með, að hvert heimili eignist þessa bók, sem veitir mjög skýrar og skilmerkilegar leið- beiningar um hvers konar fyrstu hjálp, þegar slys ber að höndum. En athugið þetta fyrst og fremst við eitrunarslys (sem og önnur slys), hvort sem þau verða í heimahúsum eða annars staðar: Kallið strax á lækni eða sjúkrabíl. Takið eitrið með á sjúkrahúsið í upprunalegu um- búðunum, því með því má spara dýrmætar mínútur. Með því að setja sér og halda einfaldar varúðarreglur mætti fækka og ef til vill að mestu útiloka slík slys á börnum sem hér hafa verið tekin til athug- unar og umhugsunar. □ TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS 29

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.