Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1973, Page 36
Efri mynd frá vinstri: Gunnar Eydal, Guðrún Víkingsdóttir, Elsa Tryggvadóttir. — Neðri mynd frá
vinstri: Helga Jóhannesdóttir, Sigrún Jónatansdóttir, María Pétursdóttir, Friðmey Eyjólfsdóttir og Ingi-
björg Baldursdóttir. — Ljósm.: Sigurjón Jóhannsson.
NÁMSKEIÐ FYRIR TR ÚNAÐARMENN
HAIDIÐ DAGANA 15.-17. JANÚAR 1973 Á VEGUM
B.S.R.B. OG HJÚKR UNARFÉLA GS ÍSLANDS
Námskeiðið sóttu um 20 hjúkr-
unarkonur, sem kosnar höfðu
verið aðal- eða varamenn í hin-
um ýmsu heilbrigðisstofnunum
landsins, einnig sat formaður
HFl námskeiðið.
Fyrsta daginn fór Gunnar Ey-
dal yfir drög að reglugerð um
trúnaðarmenn og ráð innan
HFl. Var þar rætt um drögin
og hugsanlegar breytingar á
þeim. Gert er ráð fyrir, að trún-
aðarmenn séu við hverja stofn-
un, einn eða fleiri fyrir liverja
einingu, þ. e. 3—4 sjúkradeildir
eða 15—20 félagsmenn. Trún-
aðarnefnd er kosin, þar sem 3
trúnaðarmenn eða fleiri eru við
sömu stofnun. Nefndin skal
halda reglulega fundi og ræða
þar mál, sem upp koma. Trún-
aðarráð skal vera starfandi inn-
an Hjúkrunarfélags Islands. Er
það skipað trúnaðarmönnum
starfandi í sjúkrahúsum og öðr-
um heilbrigðisstofnunum. Trún-
aðarráð skal vera málsvari trún-
aðarmanna og nefnda gagnvart
félaginu. Einnig skal það annast
upplýsingar varðandi heilbrigð-
ismál og kcma þeim til trún-
aðarmanna um allt land, sem
síðan koma þeim til félagsmanna
hver á sínum stað. Einnig skal
ráðið annast fræðslu og stuðla
að aukinni þekkingu innan stétt-
arinnar.
Hlutverk trúnaðarmanna og
nefnda er að vera tengiliður
milli félagsmanna HFl, trúnað-
arráðs og forráðamanna stofn-
ana.
Drög þau, sem hér hefur ver-
ið rætt um, birtust í heild í
Tímariti HFÍ 3. tbl. 1972.
Þar sem trúnaðarmenn eiga
að veita félögum sínum upplýs-
ingar og gefa ráðleggingar,
þurfa þeir að þekkja vel rétt-
indi og skyldur, lög og reglur og
kjarasamninga opinberra starfs-
manna, sérstaklega það, sem
varðar hjúkrunarstéttina, og lög
Hjúkrunarfélagsins, en þau ætti
reyndar hver félagsmaður að
kynna sér.
Samtalstækni var einn liður á
30 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS