Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1974, Side 6

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1974, Side 6
sérstaklega hjá Dönum, en þeir hafa unnið að slíku um nokkurt skeið, en ekki hlotið erindi sem erfiði enn sem komið er. Eli Kristiansen, Noregi, gerði m. a. náms- styrki að umræðuefni og kvað Norsk sykepleier- forbund nýlega hafa veitt viðtöku fjárupphæð, er næmi norskum kr. 210 þúsund, er nota ætti í því skyni að styrkja hjúkrunarkonur til náms. Eli skýrði einnig frá kjarabaráttu norskra hjúkrunarkvenna, er leiddi til verkfalls vissra hópa innan stéttarinnar fyrir um ári. Hún kvað hjúkrunarstéttina hafa notið mikils stuðnings og skilnings almennings í Noregi í kjarabaráttu sinni. Ulrica Croné, Svíþjóð, vakti athygli á nýju launakerfi og samningum, er fært hefðu hjúkr- unarkonum 13% launahækkun, hagstæðum ráðningarreglum fyrir starfsmanninn, er gerðu það m. a. að verkum, að vinnuveitendur gætu ekki eins auðveldlega sagt starfsmanni upp. Ulrica ræddi einnig menntunarmálin og kvað vera hægt að nema stjórnun við háskóla í Sví- þjóð. II6]iumrii‘ður: Unnið var í 8 hópum og var umræðugrund- völlur sem hér segir: Hvaða meginsjónarmið þurfa að liggja til grundvallar launastigum hjúkrunarkvenna? Hvaða áhrif hefur vinnutími og vinnufyrir- komulag á skoðanir um hjúkrunarstarfið, að- löðun starfsfólks og starfsframkvæmdir ? Hvernig er hægt að hugsa sér þróun trún- aðarmannakerfisins í framtíðinni? Stefna varðandi ráðningar og stöðuhækkanir hjúkrunarkvenna og hver á að hafa tillögu- og ákvörðunarrétt við veitingu stöðu og stöðu- hækkanir ? Hvernig lítur þjóðfélagið og vinnuveitendur á starf hjúkrunarkvenna, og hvaða ástæður eru til þess að launa einn starfshóp við hjúkr- un hærra en annan? Hvernig getur starfsmat haft stöðug áhrif á nýráðningu og stöðuhækkanir hjúkrunar- kvenna, til hvers á að taka tillit og hversu oft á starfsmatið að fara fram? Hvaða stjórnir og nefndir á vinnustaðnum geta orðið til þess að sjónarmið hjúkrunar- kvenna komi fram á ábyrgan hátt? Hversu víðtækt og af hvaða ástæðu telst það nauðsynlegt fyrir hjúkrunarstarfið og gæði hjúkrunarinnar, að hjúkrunarkonur fái frí á launum til að auka kunnáttu sína og við- halda henni? Þar sem niðurstöður hópanna eru 8 smábæk- ur, vil ég góðfúslega benda á að félögum eru þær heimilar til yfirlestrar og athugana. Þær liggja frammi á skrifstofu HFl. Er niðurstöður liópanna lágu fyrir, fóru fram liáborðsum- ræður. Akveðið var að nýta skýrslumar sem undirstöðu að frekari störfum nefndarinnar er lagði fram allt það efni er unnið var ú t frá í umræðunum um laun og starfsaðstöðu. Nefndin mun siðan skila áliti. Islensku þátttakendumir: frá vinstri: Sigurður H. Jónsson, Kristín Óladóttir, Ingibjörg Helgadóttir, Nanna Jónasdótt- ir, Guðrún Sveinsdóttir og Ingibjörg Amadóttir. Á mynd- ina vantar Vigdísi Steinþórs- dóttur. I ræðustól: Gerd Zetter- ström Lagervall. —» 108 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.