Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1974, Blaðsíða 47
Lög Itoykjavíkimleildar II11.
1. gr. Nafn deildarinnar er Reykja-
víkurdeild HPl.
2. gr. Umdæmi deildarinnar er:
Reykjavík og Reykjaneskjördæmi.
Heimili og varnarþing hennar er í
Reykjavík.
3. gr. Félagsdeildin er deild úr HFÍ
og starfar samkvæmt lögum þess.
4. gr. Félagar geta þeir orðið. sem
eru í HFÍ og búsettir í umdæmi deild-
arinnar. Aukafélagar geta orðið
hjúkrunarnemar löggiltra skóla í um-
dæmi deildarinnar, sem lokið hafa
reynslutíma sínum. Þeir hafa tillögu-
rétt og málfrelsi á fundum, en ekki
atkvæðisrétt.
5. gr. Hlutverk deildarinnar er:
1. Að auka félagslegan áhuga og
kynni innan hjúkrunarstéttarinn-
ar og fá félaga til að vinna að
sameiginlegum áhugamálum.
2. Að vinna að bættum heilbrigðis-
háttum í umdæmi deildarinnar.
3. Að stuðla að bættri aðstöðu hjúkr-
unarstéttarinnar til náms og
starfa.
6. gr. Aðalfund skal halda ár hvert
á tímabilinu okt.—nóv., og hefur
hann æðsta vald í málefnum deild-
arinnar. Hann skal boðaður með
tveggja vikna fyrirvara. Hann er
löglega boðaður með auglýsingu í a.
m. k. tveim dagblöðum í Reykjavík,
enda sé fundarefnis getið. Aukafundi
getur stjórnin haldið, ef hún telur
efni til eða ef 1/10 félagsmanna
krefjast þess.
7. gr. Á aðalfundi skulu tekin fyr-
ir þessi mál:
1. Skýrsla deildarstjórnar.
2. Reikningsskil.
3. Skýrslur og tillögur nefnda, ef
kosnar hafa verið.
4. Tillögur deildarstjórnar.
5. Kjör deildarstjórnar.
6. Kjör endurskoðenda.
7. Önnur mál.
8. gr. Deildarfundum stýrir kjörinn
fundarstjóri. Fundai'gei'ð skal lesin
eigi síðar en á næsta fundi og stað-
fest af fundarstjóra og ritara. Ef
fundui' samþykkir, má fresta frá-
gangi fundargerðar til þar næsta
fundar. Ef um skriflega atkvæða-
greiðslu er að ræða, er atkvæðaseðill
því aðeins gildur, að kosnir séu jafn-
margir og kjósa ber. Gildir sú regla
einnig á stjórnarfundum.
9. gr. Stjórn deildarinnar skal skip-
uð 5 mönnum, og skal kosning vera
skrifleg, nema annað sé samþykkt.
Formaður skal kosinn sérstaklega til
tveggja ára. Meðstjórnendur skulu
kosnir til tveggja ára. Hlutkesti ræð-
ur, hverjir tveir meðstjórnendur
ganga úr stjórn í fyrsta sinn.
Þrjá varamenn skal kjósa sérstak-
lega og taka þeir þátt í stjórnar-
störfum, ef aðalmaður forfallast um
lengri eða skemmri tíma, eða þar til
kjörtímabili aðalmanns lýkur.
Þeir taka sæti í stjórninni þannig,
að sá, sem flest atkvæði fær, er fyrsti
varamaður, sá. sem næstflest atkvæði
fær, er annar varamaður, síðan kem-
ur sá þriðji. Fyrsta varamann eða
annan, ef ekki næst til hins, skal
jafnan boða á stjórnarfundi, en at-
kvæðisrétt hefur hann því aðeins, að
aðalmaður sé forfallaður. Hann hef-
ur hins vegar málfrelsi og tillögurétt.
10. gr. Stjórnarfundum stýrir for-
maður, og gengst hann fyrir verka-
skiptingu milli stjórnarinnar. At-
kvæðagreiðsla skal vera skrifleg, ef
einhver stjórnarmanna óskar þess.
Kjósa skal varaformann, ritara og
féhirði.
11. gr. Endurkjör stjórnarmanna
er heimilt, en enginn er skyldur til
stjórnarstarfa lengur en tvö kjör-
tímabil í senn. Endurskoðendur skulu
vera tveir og einn til vara. Endur-
skoðendur skulu kosnir til tveggja
ára í senn, þannig, að einn er kos-
inn á hverjum aðalfundi, svo og vara-
endurskoðandi.
12. gr. Reikningsár deildarinnar er
almanaksár, en stjórnarár milli að-
alfunda.
13. gr. Félagsgjöld eru samkvæmt
samþykkt aðalfundar HFÍ.
14. gr. Formaður sér um stjórnun
deildarinnar og skal vera fulltrúi
hennar út á við.
í forföllum formanns gegnir vara-
formaður störfum hans. Ritari held-
ur gerðabók yfir störf funda stjórn-
ar og deildar, skráir þar samþykktir
og aðalefni umræðna. Féhirðir sér
um bókhald og fjármál deildarinnar.
15. gr. Lögum þessum verður ekki
breytt nema á aðalfundi deildarinn-
ar, og skulu breytingartillögur hafa
borist deildarstjórn. skriflega, viku
fyrir aðalfund.
Ilj úskapart ilkyimi Mg:u-.
Herdís Ásgeirsdóttir, hjúkrunar-
kona, og Geoffrey Lionel Matthew-
man, stálsmiður.
Anna María Jónsdóttir, hjúkrunar-
kona, og Benedikt Geir Eggertsson,
húsasmiður.
Stefanía V. Sigurjónsdóttir, hjúkr-
unarkona, og Axel Eiriksson, úr-
smiður.
FOTOTEKAPIA
LjósamcAferA gegn gulu lijá nyliuróuui.
Framh. af bls. HO.
Aukið magn bilirubins í blóði nýburða getur
valdið heilaskaða (kernicterus). Blóðskiptum
hefur verið beitt sl. aldarfjórðung til að hafa
hemil á blóðgulunni, oftast með góðum árangri.
Fototerapia hefur hins vegar notið vaxandi vin-
sælda undanfarin þrjú ár, m. a. vegna þess, að
um er að ræða einfaldari meðferð en blóðskiptin.
Börnin liggja nakin í ljósum 12—72 klst. Hvít
eða blá ljós af bylgj utíðninni 400—500 mu eru
talin áhrifamest. Ljósin brjóta niður bilirubinið
í húðinni. Lifrin skilar ofangreindum úrgangs-
efnum út með gallinu. Jafnóðum og húð-bilirub-
inið brotnar niður, síast blóð-bilirubinið út í
húðina, þar sem það brotnar niður fyrir áhrif
frá ljósunum.
Verkun Ijósanna á bilirubin er ókunn og jafn-
framt nákvæm efnasamsetning niðurbrotsefn-
anna.
Ljósin eru ekki jafnáhrifarík gegn gulu og
blóðskiptin og geta ekki komið algerlega í stað
þeirra. Hins vegar er talið, að þau geti fækkað
blóðskiptum um allt að 75%.
Nauðsynlegt er að hylja augu þeirra barna,
sem fá ljósameðferð, því að sterk Ijós geta skað-
að retina. Annars telja flestir þessa meðferð
hættulitla. Reynslutími er hins vegar of stutt-
ur enn þá til að gefa skýlaus svör um þetta
atriði.
Ljósameðferð gegn nýburðagulu hefur verið
beitt í vaxandi mæli við Fæðingardeild Land-
spítalans sl. ár og hefur reynst mjög vel. Eink-
um hefur meðferðin reynst vel hjá fyrirburð-
um með „fysiologiska“ gulu, en slík börn þola
blóðskipti verr en fullburða börn.
TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS 145