Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1974, Blaðsíða 3
María Pétursdóttir og Ingibjörg Helgadóttir. — Ljósm. Staffan Björck.
Nýr formaður í Hjúkrunarfélags íslands
Hjúki anarfélag íslands tilkynnir hér með,
að María Pétursdóttir, sem verið hefur for-
maður félagsins frá 1964, lætur nú af störf-
iun. Hún hefur sem kunnugt er verið í
stjórn félagsins í 25 ár og þar af formaður
frá árinu 1964. Árið 1972 var stofnaður nýr
hjúkrunarskóli, Nýi hjúkrunarskólinn, og
hefur María verið skólastjóri frá upphafi.
Frá 1. október 1974 tók Ingibjörg Helga-
dóttir, hjúkrunarkona á Kleppsspítalanum,
við formennsku í Hjúkrunarfélagi íslands.
Hún var endurkjörin í stjórn félagsins á
aðalfundi í júní 1974 en gat eigi tekið við
formennsku fyrr en nú sökum fjarveru.
Ingibjörg lauk hjúki'unarnámi frá
Hjúkrunarskóla íslands árið 1963 og hef-
ur síðan starfað á Landspítalanum, Klepps-
spítalanum og Södersjukhuset í Stokk-
hólmi. Hún lauk nú í haust sérnámi í geð-
hjúkrun frá The Royal Edinburgh Hospital,
Skotlandi.
Heimilisfang Ingibjargar er Rofabær 31,
Reykjavík, sími 81005.
Tímarit HFÍ þakkar Maríu margra ára
samstarf og óskar Ingibjörgu Helgadóttur
alls hins besta. □