Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1974, Blaðsíða 35
HJÚKRUNARNEMA
Helgina 9. og 10. nóvember
verður lialdin sýning á hjúkr-
unargögnum á vegum HNFÍ.
Verður sýningin haldin í
kennslustofum HSl. Það eru 4
fyrirtæki, sem versla með hjúkr-
unarvörur, sem munu kynna
vörur sínar. Um leið verður
haldinn kökubasar.
Fimmtudaginn 24. október
verða teknir 101 nýir nemar inn
í nemafélagið.
22. október verður haldinn
fundur með stjórn HNFl og
stjórn nema í hjúkrunarnáms-
braut Háskóla Islands. Fyrir-
hugað er að ræða hugsanlegt
samstarfs þessara tveggja
nemafélaga.
Sig?'íðu?' Guðmimdsdóttir.
Aðalfundur danskra
hjúhrunarnema
Hinn 16. sept. lögðu tveir hjúkr-
unarnemar, Erna Einarsdóttir
og Ingigerður Ólafsdóttir, upp
í heilmikla reisu til Danaríkis.
Þó að ríkið sé ekki stórt og hrað-
inn mikill nú á dögum, tók okk-
ur langan tíma að komast á
ákvörðunarstað. Eftir að hafa
ferðast í 15 tíma með flestum
tegundum farartækja, sem sjást
þar um. slóðir, svo sem þotu,
lestum, ferju, leigubíl og svo
auðvitað fótgangandi, tókst það
loks.
Endastöð var Báring hojskole
á Fjóni, lýðháskóli langt frá
borgarlífi og spillingu, í fallegu
umhverfi með hin sérstöku
dönsku bændabýli allt í kring.
Sem dæmi um menninguna má
nefna banka staðarins, sem var
opinn 3 daga vikunnar, 2 tíma
í senn.
Erindi ckkar á þennan stað
var að sækja aðalfund danskra
hj úkrunarnema og N E K-
(Nordisk Elevkongres) -mót.
Þarna var samankominn fjöldi
nema, tilbúnir að leggja hart að
sér næstu daga. Þar var unnið
frá kl. 9 á morgnana og langt
fram á kvöld, aðallega í hóp-
vinnu og einnig var fyrirlestur
um námsbækurnar og fleira.
Danskir hjúkrunarnemar eru
óánægðir með námsbækurnar og
þá aðallega uppsetningu og verð.
Hvað segðu þeir, ef þeir læsu
námsbækur á erlendu tungu-
máli? Þeir voru ófeimnir að
spyrja um hlutina og mun frek-
ari í tali við sína yfirmenn en
við eigum að venjast hér heima.
Annan daginn var haldinn
NEK-fundur með þátttöku
Dana, Norðmanna og Islend-
inga. Aðrir mættu ekki til leiks,
líklega önnum kafnir heima
fyrir.
Þetta var mjög góður fundur
og mikið rætt um norræna sam-
vinnu og hvað mætti gera til
bóta. Við skýrðum frá okkar
vandamálum varðandi áhuga-
leysi nemenda á félagsstörfum
og komumst að því, að við erum
ekki ein um það. Við sögðumst
hafa áhuga á að hafa NEK-mót
hér heima og boðuðum til þess
á síðasta hausti, en ónóg þátt-
taka var. Vonandi stendur það
til bóta og stendur til að gera
aðra tilraun á vori komanda.
Til að geta haldið uppi góðri
norrænni samvinnu með reglu-
legum fundum er kostnaðarhlið-
in vandamál, jafnvel á milli
hinna nálægu Norðurlanda. Því
var ákveðið, að NEK-fundir
væru haldnir 4 sinnum á ári í
stað a. m. k. 6 áður. Fundirnir
skulu haldnir í tengslum við að-
alfundi í hverju landi til að geta
fylgst með gangi mála í hverju
landi. Þar að auki er tengiliður
(koordinator) skipaður til að
halda skýrslugerð og koma mál-
um á framfæri á milli funda.
Þannig er hægt að fylgjast með
gangi mála, ef af einhverjum
ástæðum er ekki hægt að senda
fulltrúa á fund.
Síðar um kvöldið var haldinn
fundur með öllum þátttakend-
um mótsins og útlendingarnir
kynntu gang mála heima fyrir
og svöruðu fyrirspurnum.
Þriðja og síðasta daginn var
vinnu haldið áfram, reynt að
komast að niðurstöðum eftir
hópvinnu, kosningar fóru fram
og fleira.
Þetta voru mjög ánægjulegir
dagar með góðu fólki og áhuga-
sömu. Ekki má gleyma hinum
ósvikna danska mat, sem við
röðuðum í okkur eftir bestu
getu. Ætti þetta allt saman að
vera góður orkugjafi til starfs
af fullum krafti með HNFl.
Ema Einarsdóttir og
Ingige?-<5ur ólafsdóttir.
TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS 133