Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1974, Blaðsíða 19

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1974, Blaðsíða 19
að láta smyrslin verka í þvagrás í 5-—10 mín., áður en tækið er fært upp. Það hefur sýnt sig, að auk þess að deyfa þvagrás vel, svo að aðgerðin verði sársaukaminni, þá desin- ficerar það mjög mikið og hindrar infection. Þetta er rétt að nota við þvagtöku, bæði hjá konum og körlum. Hibitane obstetrical cerarn inniheldur 1% chlorhexidin gluconat. Það er fljótandi og blandast vel vatni. Ég álít, að þetta krem geti alveg komið í staðinn fyrir hexachlora- phen við þvott á ungbörnum. Það verkar að vísu ekki eins vel gagnvart staphilococcum og hexachloraphen, en chlorhexidin verkar á gram. neg. sýkla, sem hexachloraphen gerir ekki. Krem þetta er mjög notað við vaginal- skoðanir og skurðaðgerðir og penslað bæði á slímhúð í vagina og húðina í kring, þar sem það er ekki ertandi á húð og slímhúð. Það er mjög gott að nota krem þetta til að hreinsa með brunasár. Kremið er einnig not- að til að undirbúa húð daginn fyrir skurð- aðgerðir og látið liggja 5—6 min., en þá þerrað af lauslega. Hibitane 1:1000 í vatnsupplausn. Notað til að desmficera t.. d. trachealtúbur, andlits- maska, þvagflösk.ur og önnur glerílát. Hlutir þessir skulu að jafnaði liggja klst. í upp- lausninni, en 1 lilst., ef þeir eru taldir mik- ið sóttmengaðir. Hibitane 1:5000 í i atnsupplausn. Notkun: a) Til sótthreinsunl r á cystoscopum, resecto- scopum o. s. frv. /erkfærin eiga að hanga upp á endann í vókva þessum í 20 mín. b) Til blöðruskolunar við cystoscopiu, ure- throscopiu o. s. frv. c) Til þess að væta í servettu, tuffur o. s. frv. við skurðaðgerðir í kviðarholi og víðar. d) Til skolunar á kviðarholi og brjóstholi, ef ástæða þykir til að skola þarma. En ekki notað við aðgerðir á heila og mænu — e) Til skolunar á skurðsárum við og við, með- an verið er að loka skurðinum. f) Eftir að tekið hefur verið þvag frá sjúkl- ingi með þvaglegg eða við endoscopiskar aðgerðir á þvagfærum, er gott að skilja eftir í blöðrunni um 50 ml. af þessum vökva. Sannað þykir, að það fækki til muna þvagfærasýkingum eftir þessar að- gerðir. g) Til bakstra á óhrein sár, brunasár o. s. frv. Hibitane 0,5% í 70% alkoholblöndu. Þar hefur verið sett í litarefni, til þess að ekki sé villst á þessari spíritusblöndu og vatnsupplausnunum, sem nefndar hafa verið. Þetta notum við til penslunar á húð fyrir skurðaðgerðir. Verkfæri, sem dottið hafa t. d. á gólf eða óhreinkast á annan hátt, með- an verið er að nota þau, má leggja í blöndu þessa í 3 mínútur, og teljast þau þá vel desin- ficeruð til áframhaldandi notkunar við að- gerðir. Áður en þau eru notuð, t. d. við skurð- aðgerðir eða saumaskap og þess háttar, er þó rétt að skola sprittblönduna af í Hibitane vatnsupplausn 1:5000. Plastslöngur, gúmmíkatheter o. s. frv. má leggja í sprittblöndu þessa í 3 mínútur og nota síðan, eftir að skolað hefur verið með vatnsupplausninni. „Savlon“ hospital concentrat er samansett úr Hibitane og „Cetavlon", en Cetavlon er sérlega virkt gegn gram, pos. sýklum, en Hibitane aftur á m.óti sérlega virkt gegn gram. neg. sýklum. Þetta má nota í vatns- upplausn, 0,5%, til þess að þvo með og skola alls konar tæki og húsbúnað, svo sem borð, stóla, skálar, skjólur og margt fleira. Savlon skal ekki nota útþynnt í meira en viku, fleygja þá blöndunni og fá ferska upplausn. Savlon og Hibitane á ekki að geyma í flösku með korktappa. Hibitane „lozenges“ innihalda 5 mg. Hibi- tane og 2 mg. Benzocain í bragðgóðu efni. Þessu er ætlað að koma í veg fyrir eða lækna sýkingar í munni og kverkum, t. d. við ton- sillitis eða sár í munni. Einnig er mælt með þessu eftir tonsillectomiur og tanndrætti í því skyni að koma í veg fyrir bakteríusýk- ingu. Ef komin er sýking, er mælt með að láta eitt „lozenges“ bráðna hægt í munni á 2 klst. fresti, en sem varnarlyf má nota 4—5 „lozenges“ á dag. „Naseptin nasal-carrier-cream“ inniheldur 0,1% Hibitane og 0,5% Neomycin. Nefkrem þetta er talið geta komið í veg fyrir sýkingu milli fólks, t. d. sjúklinga og starfsfólks, sem telur sig kvefað. Sett er í hvora nös krem á stærð við hálfa kaffibaun, síðan skal þrýsta nefinu saman, til þess að kremið komist bet- ur upp í nefið. Tvennt hið síðastnefnda hefur ekki fengist skráð hér á landi. Margt fleira mætti segja um þessa hluti, en ég læt þessu nú lokið hér með. □ TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS 121
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.