Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1974, Qupperneq 9

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1974, Qupperneq 9
Umsöpn Samtaka heilbrigðisstétta um O . 7 7 O y a , frumvarp til laga um jóstureyöingar o.fl. Samtök heilbrigðisstétta þakka bréf heilbrigðis- og trygginganefndar neðri deildar Alþingis, dags. 20. nóvember 1973, þar sem óskað er eftir umsögn um frumvarp til laga um fóstureyðing- ar o. fl., 95. mál, lagt fyrir 94. löggjafarþing 1973. Samtök heilbrigðisstétta fagna því, að lagt hefur verið fyrir Alþingi frumvarp að nýjum lögum um fóstureyðingar og ófrjósemisaðgerðir, þar sem stefnt er að því að færa löggj öf um þessi mál til samræmis við aðstæður nútíma þjóð- félags. Vegna margháttaðra þjóðfélagsbreytinga og framfara í læknavísindum er eðlilegt, að lög- gjöf um þetta efni frá 1935 sé að nokkru leyti úrelt, enda þótt hún hafi á sínum tíma verið gerð af mikilli gjörhygli og framsýni. Þrjú aðildarfélög Samtaka heilbrigðisstétta hafa sent Alþingi umsagnir um frumvarpið og vísast til þeirra varðandi ýmis sjónarmið, sem ber að vega og meta við frágang laganna. Á fulltrúafundum, sem Samtök heilbrigðis- stétta hafa haldið um mál þetta, hefur einkum verið lögð áhersla á eftirfarandi atriði: 1. Að sá þáttur frumvarpsins, sem fjallar um fræðslu, tryggi ekki, að fræðslan verði fram- kvæmd á skipulegan hátt og nái til þeirra einstaklinga, sem helst þurfa hennar með. 2. Að breytingar þurfi að gera á 1. málsgrein 9. gr. Grein þessi er ekki nægilega ljós í öll- um atriðum. Einkum beri að breyta tíma- takmörkum og gera þau skýrari. Þá er tal- inn ágalli, að réttar föðurins sem umsagn- araðila er ekki nægilega gætt, þegar um vígða sambúð er að ræða. 3. Að nokkuð skorti á, að löggjöf þessi tryggi, að búið sé í alla staði ákjósanlega að þeim konum, sem þurfa að gangast undir þær að- gerðir, er lögin fjalla um. Fræðslunefnd Samtaka heilbrigðisstétta hef- ur f jallað um fræðslukafla frumvarpsins og sam- ið um það greinargerð, sem fylgir hér með. Með hliðsjón af ofansögðu ber stjórn Sam- taka heilbrigðisstétta fram eftirfarandi athuga- semdir. I. kafli. náAgjöf og frn'öslíi. Kafla þessum er skipt í óeðlilega margar greinar. Sumt af efni hans getur e. t. v. fallið betur að fræðslulöggj öfinni, eða átt frekar heima í reglugerð, sem setja þarf í tengslum við vænt- anleg lög. 1. og 2. gr. kaflans mætti sameina í eina grein, sömuleiðis mætti einnig sameina 3. gr. og 4. gr. 5. greinin er óþörf, þar sem efni hennar get- ur fallið inn í reglugerð varðandi sjúkratrygg- ingar. Einnig virðist fyrsta málsgrein þess- arar greinar nokkuð óeðlileg og verður helst skilin þannig, að starfsfólk ráðgjafarþjónust- unnar eigi annaðhvort að annast sölu getn- aðarvarna eða úthluta þeim ókeypis. 7. gr. Setningin: „í samráði við fræðsluyfir- völd“ er of óljós, þar sem ekki kemur glöggt fram, hvaða aðili það er, sem á að hafa sam- ráð við fræðsluyfirvöld um menntunaratriði þau, er greinin fjallar um. Til þess að 7. gr. verði raunhæf, þarf að koma til samvinna yfirvalda og heilbrigðismála og menntamála. Þessi samvinna má ekki verða tilviljunar- kennd og virðist nauðsynlegt, að hún verði fastmótuð í lögum eða í reglugerð. Ákvæði vantar um það, hver á að hafa eftir- lit með fræðslu þeirri, sem um getur í I. kafla, en það gæti t. d. verið landlæknir. Þá vantar ákvæði um nánari framkvæmd fræðslunnar og um útgáfu bæklinga, en slíkt er nauð- synlegt til þess að samræma fræðsluna og gera hana raunhæfa, þannig að hún geti náð til þeirra aðila, sem mest þurfa á henni að halda. öll þessi atriði og raunar fleiri, er eðlilegt að sett verði í reglugerð, en í frum- varpið vantar heimild til að setja reglugerð, tengda I. kafla laganna. II. kafli. Fóstnreyöingar. 9. gr. Varðandi fyrstu málsgrein 9. greinar viljum við taka eftirfarandi fram: „fram- kvæmd fyrir lok 12. viku ..." breytist í „framkvæmd fyrir lok 10. viku ... “ Sett verði reglugerð, er ákveði nánar um TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS 111

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.